Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Peltor 3M WS ProTac XP Bedienungsanleitung Seite 59

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 16
3. NOTKUN/AÐGERÐIR
3:1 Að kveikja og slökkva á heyrnartólunum
Þrýstu á On/Off/Mode hnappinn (B:7) í 2 sekúndur til þess að kveikja eða slökkva á heyrnartólunum.
3:2 Bluetooth-pörun
Hægt er að para heyrnartólin og tengja við Bluetooth-tæki sem styðja sniðin: A2DP, HFP eða HSP.
ATHUGAÐU að þú getur aðeins streymt steríóhljómi/tónlist frá tæki (farsíma, tölvu o.s.frv.) sem styður A2DP Bluetooth-snið.
Gakktu úr skugga um að heyrnartólin séu hlaðin og slökkt á þeim.
Þrýstu á On/Off/Mode hnappinn (B:7) í 5 sekúndur.
Þá fara heyrnartólin í pörunarham sem staðfestur er með endurteknum raddskilaboðum: „Bluetooth pairing mode"
(Bluetooth-pörunarhamur).
Virkjaðu Bluetooth-aðgerðina í símanum þínum og leitaðu að nýjum tækjum. Eftir nokkrar sekúndur birtist „Peltor WS5"
á skjánum.
Veldu „Peltor WS5".
Ef síminn biður um lykilorð, slærðu inn: 0000.
Pörun er staðfest með raddskilaboðunum: „pairing complete" (pörun lokið).
Þegar Bluetooth-pörun hefur verið virkjuð, nær hún sjálfkrafa sambandi við heyrnartólin í næsta sinn sem þau eru notuð
með raddskilaboðum til staðfestingar „connecting Bluetooth" (tengi Bluetooth), og svo: „connected" (tengt) þegar tækin
hafa verið pöruð saman.
Þú getur parað og vistað allt að þremur tækjum. Heyrnartólin reyna sjálfkrafa að tengjast því tæki fyrst sem síðast var tengt
við þau.
3:3 Að hringja
Þegar hringja á eða svara, verða heyrnartólin að vera pöruð og tengd við farsíma með Bluetooth-möguleika, sjá Bluetooth-
pörun.
Að svara
Þegar hringt er í símann heyrast raddskilaboðin „incoming call" (hringing) í heyrnartólunum.
Svaraðu með því að þrýsta snöggt á Bluetooth-hnappinn (B:10).
Að hafna símtali
Hafnaðu símtali með því að þrýsta á Bluetooth-hnappinn og halda honum niðri í 2 sekúndur (B:10).
Raddstýrð hringing
Þrýstu snöggt á Bluetooth-hnappinn (B:10).
Að hringja á ný
Þrýstu á Bluetooth-hnappinn og halda honum niðri í 2 sekúndur (B:10).
3:5 Að stilla styrk umhverfishljóða
Að auka hljóðstyrk. Þrýstu á (efri) + hnappinn (B:8).
Að draga úr hljóðstyrk. Þrýstu á (neðri) - hnappinn (B:8).
3:6 Að stilla hljóðstyrk (í farsíma)
Þú getur stillt hljóðstyrk í miðju símtali með því að þrýsta á (+) eða (–) hnappana (B:8).
Þrýstu á On/Off/Mode hnappinn (B:7) og svo á (+) eða (–) hnappana (B:8) til þess að stilla umhverfishljóðstyrkinn á meðan á
símtali stendur.
3:7 Að stilla hljóðstyrk á tónlist sem streymt er
Þú getur stillt hljóðstyrkinn á meðan tónlist er streymt með því að þrýsta á (+) eða (–) hnappana (B:8). Þrýstu snöggt á On/Off/
Mode hnappinn (B:7) og svo á (+) eða (–) hnappana (B:8) til þess að stilla umhverfishljóðstyrkinn á meðan á símtali stendur.
IS
57

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis