Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Peltor 3M WS ProTac XP Bedienungsanleitung Seite 58

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 16
IS
WS ProTac XP
Sú vara /vörur sem lýst er í notendaleiðbeiningum þessum er í samræmi við ákvæðin sem lýst er í tilskipun 89/686/EEC um
persónuhlífar (PPS) og tilskipun R&TTE um viðtækjabúnað og búnað fyrir fjarskiptamiðstöðvar 1999/5/EC. Þar af leiðandi
uppfyllir varan kröfur um CE-merkingu.
Gerðarlýsingar:
MT15H7AWS5*
MT15H7FWS5*
MT15H7P3*WS5*
MT15H7BWS5*
1. WHAT IS WHAT
(B:1) Höfuðspangarvír (ryðfrítt stál)
(B:2) Tveggja punkta upphengi (höfuðspangarvír)
(B:3) Eyrnapúðar (PVC-þynna og pólýesterfrauð)
(B:4) Hljóðnemi fyrir umhverfishljóð
(B:5) Höfuðspangarbólstrun (PVC)
(B:6) Flex-hljóðtengi inn
(B:7) On/Off/Mode (Á/Af/Hamur)
(B:8) VOL+, VOL- (Hækka, lækka)
(B:9) Talhljóðnemi
(B:10) Bluetooth-hnappur
(B:11) PTT-hnappur (Flex-heyrnartól)
Athugasemd:
B:1 Gerð með hálsspöng: ryðfrítt stál. Gerð með hjálmfestingu: ryðfrítt stál, samanbrjótanleg höfuðspöng: ryðfrítt stál.
B:4 Bólstrun á hálsspöng: POE. Bólstrun á samanbrjótanlegri höfuðspöng: leður.
2. AÐ AÐHÆFA OG STILLA
Hvirfilspöng og samanbrjótanleg höfuðspöng (mynd C)
Dragðu skálarnar út og leggðu skálarnar yfir eyrun þannig að þéttihringirnir umlyki þau alveg (1).
Stilltu hæð skálanna með því að renna þeim upp eða niður á meðan höfuðspönginni er haldið kyrri (2).
Höfuðspöngin ætti að liggja yfir sjálfan hvirfilinn (3).
Gerðin með samanbrjótanlegri höfuðspöng hentar ekki á hjálma fyrir lítil höfuð.
Hjálmfesting (mynd D)
Smelltu hjálmfestingunum í festiraufarnar á hjálminum (1).
Hlífarnar hafa tvær stillingar: Loftræstistillingu (2) eða vinnustillingu (3).
Hlífarnar verða að vera í vinnustillingu við notkun!
Þrýstu höfuðspangarvírunum inn á við þar til smellur heyrist báðum megin og gættu þess að hvorki skálin né vírarnir snerti
innra byrði hjálmsins eða hjálmbrúnina því að það getur hleypt inn hljóði.
Athugasemd! Settu aldrei hlífar með röku frauði á hjálminn (4)!
Samþykktar samsetningar hjálmfestra gerða (mynd K)
Eingöngu ætti að nota þá gerð þessara eyrnahlífa, sem festar eru við hjálm, með öryggishjálmum eins og þeim sem tilgreindir
eru í (mynd K).
1. Gerð hjálms
2. Tegund hjálms
3. Hjálmfesting
4. Höfuðstærð: S=lítil, N=miðlungs, L=stór.
Hálsspöng
Opnaðu höfuðspangarbandið og leggðu heyrnartólin yfir eyrun þannig að eyrnapúðarnir falli vel að.
Hnýttu höfuðspangarbandið þar sem eyrnapúðarnir eru á sínum stað yfir eyrunum.
Höfuðspangarbandið ætti nú að liggja beint yfir hvirfilinn.
56
Gerð með höfuðspöng
Gerð með samanbrjótanlegri höfuðspöng
Gerð með hjálmfestingu
Gerð með hálsspöng

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis