Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Tæknilegar Upplýsingar - Bosch Drive Unit Performance Line SX BDU3142 Originalbetriebsanleitung

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 3
Íslenska – 2
(3) Teinasegull
b)
(4) CenterLock-segull
(5) Gjarðarsegull
a) Lögun og uppsetningarstaða skynjarans getur verið önnur en hér
kemur fram
b) Uppsetningarstaða getur verið önnur en hér kemur fram
Tæknilegar upplýsingar
Drifeining
Vörukóði
Málafl við sírekstur
Hámarkstog á drifi
Málspenna
Notkunarhitastig
Geymsluhitastig
Varnarflokkur
Þyngd, u.þ.b.
Bosch eBike Systems notar FreeRTOS (sjá www.freertos.org).
A)
Ljós á hjóli
Spenna u.þ.b.
Hámarksafl
– Framljós
– Afturljós
A) Ekki mögulegt með rafhlöðu rafhjólsins í öllum útfærslum fyrir
tiltekið land, allt eftir gildandi lögum og reglum
Ef perur eru ekki settar rétt í geta þær eyðilagst!
Upplýsingar um hávaða frá drifeiningu
Við venjulega notkun er hljóðþrýstistig (A-hljóðstig)
drifeiningarinnar < 70 dB(A). Ef rafhjólið er hreyft úr stað í
leyfisleysi gefur drifeiningin frá sér viðvörunartón í tengslum
við þjónustuna <eBike Alarm>. Þessi viðvörunartónn getur
farið yfir 70 dB(A) hljóðþrýstistigið og nær 80 dB(A) í
2 metra fjarlægð frá drifeiningunni. Viðvörunartónninn er
ekki í boði fyrr en búið er að virkja þjónustuna <eBike
Alarm> og hægt er að gera hann aftur óvirkan í appinu eBike
Flow.
Uppsetning
Hraðaskynjari athugaður (sjá mynd A)
Speedsensor (slim)
Hraðaskynjarinn (2) og tilheyrandi CenterLock-segull (4)
eða teinasegull (3) eru settir þannig upp frá verksmiðju að
þegar hjólið snýst fari segullinn framhjá hraðaskynjaranum í
að minnsta kosti 2 mm og í mesta lagi 15 mm fjarlægð.
Ef gerðar eru breytingar verður að gæta þess að rétt bil sé á
milli segulsins og skynjarans (sjá mynd A).
0 275 007 3D3 | (13.02.2023)
Drive Unit
Performance Line SX
BDU3142
BDU3143
BDU3144
BDU3145
W
250
Nm
55
V=
36
°C
−5 ... +40
°C
+10 ... +40
IP55
kg
2
V=
12
W
17,4
W
0,6
Athugaðu: Þegar afturhjólið er sett á og tekið af skal gæta
þess að skemma ekki skynjarann eða festingu hans.
Þegar skipt er um dekk þarf að ganga þannig frá snúru
skynjarans að hún sé ekki of strekkt og að ekki sé brotið upp
á hana.
Aðeins er hægt að taka CenterLock-segulinn (4) af og setja
hann aftur á að hámarki fimm sinnum.
Gjarðarsegull
Þegar gjarðarsegull er notaður þarf ekki skynjara til að greina
snúning hjólsins. Drifeiningin greinir sjálf þegar segullinn er
nálægt og reiknar hraða og aðrar nauðsynlegar upplýsingar
út frá því hversu oft segulsviðið kemur fyrir.
Þar sem drifeiningin er viðkvæm fyrir segulsviðum skal gæta
þess að ekki séu fleiri segulsvið nálægt henni (t.d. fótstig
með seglum, segulmælar fyrir snúningshraða sveifar o.s.frv.)
sem valdið geta truflunum í drifeiningunni.
Notkun
Til þess að geta sett rafhjólið í gang þarf stjórnbúnað sem
tilheyrir kynslóðinni the smart system. Sjá
notendahandbókina fyrir stjórnbúnaðinn og e.t.v. annan
búnað sem tilheyrir kynslóðinni the smart system.
Upplýsingar um hvernig hjólað er á rafhjólinu
Hvenær vinnur drifið?
Drifið aðstoðar þig við að hjóla þegar þú stígur á fótstigin.
Ekki er veittur stuðningur nema að stigið sé á fótstigin.
Afköst drifsins fara alltaf eftir því hversu miklu afli er beitt á
fótstigin og hversu hratt þeim er snúið.
Ef litlu afli er beitt og snúið er hægt er stuðningurinn minni en
ef miklu afli er beitt og snúið hratt. Þetta gildir óháð því
hvaða stuðningsþrep er stillt á.
Drifið slekkur sjálfkrafa á sér þegar hraðinn fer yfir 25 km/h.
Þegar hraðinn fer niður fyrir 25 km/h stendur drifið
sjálfkrafa aftur til boða.
Undantekning á þessu er teymingarhjálpin sem gerir kleift að
teyma rafhjólið á litlum hraða án þess að stíga á fótstigin.
Þegar teymingarhjálpin er notuð geta fótstigin snúist með.
Einnig er hvenær sem er hægt að hjóla á rafhjólinu eins og
venjulegu hjóli, annaðhvort með því að slökkva á því eða með
því að stilla stuðningsþrepið á OFF. Hið sama á við þegar
rafhlaða rafhjólsins er tóm.
Samspil drifeiningar og gírskiptingar
Jafnvel þótt um rafhjól sé að ræða er gírskiptingin notuð með
sama hætti og á venjulegu reiðhjóli (sjá notendahandbók
rafhjólsins).
Óháð því um hvernig gírskiptingu er að ræða er mælt með því
að stíga léttar á fótstigin í stutta stund á meðan skipt er um
gír. Þannig verður auðveldara að skipta um gír og dregið er úr
sliti á aflrásinni.
Með því að setja í réttan gír er hægt að auka hraðann og
drægið án þess að leggja meira á sig.
Bosch eBike Systems

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis