Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

3M PELTOR Bull's Eye I Bedienungsanleitung Seite 58

Earmuffs
Vorschau ausblenden Andere Handbücher für PELTOR Bull's Eye I:
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 19
3M™ PELTOR™ Bull's Eye I og III eyrnahlífar
Bull's Eye I H515FB*
Bull's Eye III H540A*
*Sýnir aðra útgáfu af vörunni
1.
INNGANGUR
1.1. ÆTLUÐ NOTKUN
Þessum eyrnahlífum er ætlað að veita starfsmönnum vernd
gegn hættulegum hávaða. Gert er ráð fyrir því að allir
notendur lesi og skilji meðfylgjandi leiðbeiningar notenda
ásamt því að kunna að nota tækið.
2.
ÖRYGGI
2.1. MIKILVÆGT
Lestu vinsamlegast, gerðu þér grein fyrir öllum
öryggisupplýsingum í leiðbeiningum þessum og farðu eftir
þeim áður en þú tekur heyrnartólin í notkun. Geymdu
leiðbeiningarnar til þess að geta leitað í þær síðar. Hafðu
samband við tæknideild 3M (samskiptaupplýsingar er að
finna á öftustu síðu).
!
VIÐVÖRUN
Heyrnarhlífarnar draga úr hættu á heilsutjóni vegna hávaða
og annarra háværra hljóða. Séu heyrnarhlífar notaðar rangt
eða notkun þeirra sleppt þann tíma sem dvalist er í
hættulegum hávaða, getur það leitt til heyrnarskerðingar
eða -taps. Ræddu við verkstjóra, kynntu þér leiðbeiningar
notenda eða hafðu samband við tæknideild 3M til þess að
kynna þér rétta notkun. Ef þér finnst eins og þú sért með
bómull í eyrunum eða heyrir són eða suð í eða eftir hávaða
(byssuskot meðtalin), eða ef þú hefur einhverja aðra
ástæðu til að ætla að þú glímir við heyrnarvanda, skaltu
yfirgefa hávaðasama umhverfið umsvifalaust og hafa
samband við lækni og/eða verkstjóra þinn.
a. Dragðu úr þeirri hættu sem getur fylgt sprengingu með
því að nota ekki ekki eiginöruggan búnað eða fylgihluti í
mögulega sprengifimu umhverfi.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það
dregið úr verndargetu heyrnarhlífanna og jafnvel leitt
til heyrnartjóns:
a. 3M mælir eindregið með því að hver og einn notandi
felli allar heyrnarhlífar vandlega að sér. Rannsóknir
benda til þess að stundum sé hljóðeinangrun minni en
hljóðdeyfingargildi á umbúðum gefa til kynna vegna
frávika við að fella hlífarnar að hverjum notanda fyrir sig
og færni viðkomandi og hvatningu til þess. Kynntu þér
viðeigandi reglur og leiðbeiningar á merkimiða um
aðlögun suðhlutfalls/falla til merkis. Séu viðeigandi
reglur ekki fyrir hendi er mælt með því að lækka
suðhlutfall/föll til merkis til að geta betur metið
dæmigerða vernd.
b. Gættu þess að réttar heyrnarhlífar séu valdar, þeim
komið fyrir, þær aðfelldar og haldið við. Sé búnaðinum
komið fyrir á ófullnægjandi hátt, dregur það úr getu
hans til þess að deyfa hávaða. Kynntu þér meðfylgjandi
upplýsingar um rétta notkun.
c. Skoðaðu heyrnarhlífarnar fyrir hverja notkun. Séu þær
skemmdar, veldu þér óskaddaðar heyrnarhlífar eða
forðastu hávaðasamt umhverfi.
d. Sé nauðsynlegt að bæta við frekari persónuhlífum (t.d.
öryggisgleraugum, öndunargrímum o.s.frv.), ber að
velja sveigjanlegar og þunnar teygjur eða bönd til þess
að þau hafi sem minnst áhrif á heyrnarhlífapúðana.
Fjarlægðu allt annað (t.d. hár, húfur, skartgripi,
heyrnartól, hreinlætishlífar o.s.frv.) sem gæti dregið úr
einangrunargildi eyrnahlífapúðanna og verndargildi
hlífanna.
e. Ekki beygja eða breyta lögun höfuðspangar,
hálsspangar eða útbúnaðarfestinga og gættu þess að
hún sé nógu öflug til þess að halda eyrnahlífunum
tryggilega á sínum stað.
f. Eyrnahlífar og einkum þó eyrnapúðar geta orðið lélegir
með tímanum og þá þarf að skoða með reglulegu
millibili í leit að t.d. sprungum og hljóðleka. Séu
heyrnarhlífapúðarnir notaðir reglulega, ber að skipta um
þá og frauðhringina að minnsta kosti tvisvar á ári til
þess að viðhalda fullnægjandi vernd, hreinlæti og
þægindum.
g. Sé ekki farið eftir ofangreindum kröfum, skerðir það
verndareiginleika heyrnarhlífanna verulega.
EN 352 Öryggisyfirlýsingar:
• Séu einnota hlífar notaðar getur það haft áhrif á
hljóðfræðilega eiginleika eyrnahlífanna.
• Ákveðin efnafræðileg efni geta valdið tjóni á vöru
þessari. Nánari upplýsingar má fá hjá framleiðanda.
2.2. ATHUGASEMD
• Þegar heyrnarhlífarnar eru notaðar í samræmi við
leiðbeiningar notenda, draga þær bæði úr stöðugum
hávaða, svo sem í iðnaði eða frá ökutækjum og
flugvélum, og skyndilegum hávaða, til dæmis
byssuskotum. Erfitt er að segja fyrir um þá
heyrnarvernd sem þörf er á eða í raun er veitt hvað
varðar váhrif af skyndilegum hávaða. Það hefur áhrif á
vernd gegn hávaða frá byssuskotum um hvaða tegund
vopns er að ræða, hve mörgum skotum er hleypt af,
hvaða heyrnarhlífar eru valdar, hvernig þær passa og
eru notaðar, hvernig um þær er annast og fleira.
Kynntu þér betur heyrnarvernd gegn skyndilegum
hávaða á vefsíðunni www.3M.com/hearing.
• Hitastig við notkun: -20°C (-4°F) til 50°C (122°F).
• Varúð - Myndefni með vöru er aðeins til útskýringar.
53
IS

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Diese Anleitung auch für:

Peltor bull's eye iii

Inhaltsverzeichnis