Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Íslenska; Notkunarleiðbeiningar - IKEA HEMKOMST AA-2359767-2 Bedienungsanleitung

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Íslenska
Þrif
Áður en varan er tekin í notkun ætti að þvo
hana, skola og þurrka vandlega.
Vöruna má setja í uppþvottavél. Þurrkið alltaf
eftir þvott til að forðast bletti eftir kalkið í
vatninu. Blettum má ná af með volgu vatni og
örlitlu af ediki.
Til að koma í veg fyrir bletti af völdum salts ætti
ekki að salta matinn fyrr en suðan hefur komið
upp.
Notið ekki stálull eða annað sem getur rispað
yfirborðið.
Botninn er aðeins kúptur þegar hann er
kaldur en þenst og flest út í hita. Leyfið
eldunaráhöldum alltaf að kólna fyrir þvott. Þá
nær botninn aftur sinni fyrri lögun og verður
síður ójafn með tímanum.
Notkunarleiðbeiningar
Pannan er ekki með viðloðunarfrítt yfirborð. Besta
leiðin til að steikja er að hita fyrst pönnuna á háum
hita og lækka svo hitann um helming þegar þú
setur matinn út á pönnuna. Það þarf aðeins lágan
til miðlungsháan hita. Maturinn gæti fests við
pönnuna í fyrstu en losnar fljótlega. Notið alltaf
smjör eða olíu þegar steikja á mat. Snúðu matnum
sjaldan til að fá fallega brúna áferð.
Gott að vita
Þessi vara hentar á allar gerðir helluborða og
í ofn.
Þú getur sparað orku með því að nota alltaf
hellu sem er jafnstór eða minni en botn
eldunarílátsins að þvermáli.
Hafðu í huga að ílátið verður heitt við notkun.
Notaðu alltaf pottaleppa.
Lyftu pönnunni þegar þú færir hana til á
keramikhelluborði til að yfirborðið rispist síður.
Látið aldrei þurrsjóða í ílátinu því botninn getur
skekkst við ofhitnun.
10

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis