Tónlist streymt frá Bluetooth®-tæki
1. Kveikið á höfuðbúnaðinum (sjá fyrri skref).
2. Kveikið á tónlistarspilaranum í símanum (eða öðru tæki).
3. Spilið/gerið hlé með því að ýta stutt á hnappinn kveikja/slökkva.
4. Stillið hljóðstyrkinn með því að ýta á hljóðstyrkshnappana til að HÆKKA/LÆKKA (A12, A13).
5. Skiptið í næsta lag með því að halda hnappinum til að HÆKKA inni í 2 sekúndur.
6. Spilið lag frá byrjun með því að halda hnappinum til að LÆKKA inni í 2 sekúndur.
7. Skiptið í fyrra lag með því að halda hnappinum til að LÆKKA inni í 4 sekúndur.
Svara/ljúka/hafna símtali
Flestir símar senda eigið merki um símtal í höfuðbúnaðinn. Ef ekki þá eru 7 mismunandi tónar til staðar fyrir símtöl.
1. Símtali er svarað með því að ýta stutt á hnappinn kveikja/slökkva. 4 hækkandi tónar staðfesta að símtalið er tengt.
2. Símtali er lokið með því að ýta stutt á hnappinn kveikja/slökkva. 4 lækkandi tónar staðfesta að símtalinu er slitið.
3. Haldið hnappinum kveikja/slökkva inni í 2 sekúndur til að hafna símtali. 2 staðfestingartónar heyrast.
Hringdu með röddinni frá höfuðbúnaðinum í gegnum tengdan síma
Sjá notendaleiðbeiningar fyrir símann þinn ef hann styður hringingu með röddinni.
1. Haldið hnappinum kveikja/slökkva inni í 3 sekúndur. Hljóðmerki staðfestir að aðgerðin sé virkjuð.
2. Talaðu inn skipun vegna upphringingar.
Flestir símar sem styðja raddstjórnaða upphringingu munu senda staðfestingarmerki þegar þú talar inn skipun vegna upphringingar.
Stilling á hljóðstyrk í símtali
1. Aukið hljóðstyrkinn með því að ýta á hnappinn til að HÆKKA (A13)
2. Minnkið hljóðstyrkinn með því að ýta á hnappinn til að LÆKKA (A12)
Rofin Bluetooth®-tenging
Ef Bluetooth®-tengingin rofnar vegna þess að farið er út fyrir mörk drægis (lengra en 10 metrar) heyrast 3 tónar í höfuðbúnaðinum
og tengingin kemst aftur á þegar notandinn fer aftur innan fjarlægðarmarkanna. Ef engin tenging næst innan 4 klukkustunda
slokknar sjálfkrafa á höfuðbúnaðinum. Haldið hnappinum kveikja/slökkva inni í 3 sekúndur til að endurræsa höfuðbúnaðinn.
Hljóðstigsstýrð „Virk hlustun"
Ýttu á og haltu LD-hnappnum (A15) til að kveikja á virkri hlustun. Hljóðmerki staðfestir að aðgerðin sé virkjuð.
Hljóðstyrkurinn er stillanlegur í 5 þrepum. Stilltu hljóðstyrkinn með því að ýta á LD-hnappinn (A15) þar til æskilegum hljóðstyrk
er náð. Þegar þú nærð þrepi 5 gefur hljóðmerki til kynna að þú hafir náð hámarksstyrk. Ýttu aftur á LD-hnappinn til að fara aftur
í hljóðstyrk 1.
Ýttu á og haltu LD-hnappnum niðri (A15) til að slökkva á virkri hlustun.
Heyrnartólin muna eftir síðustu stillingu hljóðstyrks næst þegar þú kveikir á virkri hlustun. Til notkunar í vindasömu umhverfi er
mælt með því að setja á vindhlífarnar tvær sem fylgja með (B:6). Fjarlægið filmuna og setjið vindhlífina nákvæmlega yfir miðju
hljóðstigsstýrðu hljóðnemanna (A7).
• Þessar heyrnarhlífar eru útbúnar með hljóðstyrksstýrðri deyfingu. Notandi skal athuga hvort þær virki sem skyldi fyrir notkun.
Ef vart verður við truflun eða bilun skal notandi fara eftir ráðleggingum framleiðanda um viðhald og skipti á rafhlöðu.
• Viðvörun! Frálag hljóðstyrksstýrðrar rásar þessa heyrnarhlífa kann að vera meira en ytri hljóðstyrkur.
Breiðbandshljóð
Xstream Multi-Point módelin styðja einnig „Breiðbandshljóð" (HD rödd) þegar símaþjónustan býður upp á það.
Viðvörun um litla hleðslu á rafhlöðu
Þegar hleðsla rafhlöðunnar fer dvínandi og um það bil ein klukkustund er eftir af notkunartíma hennar heyrist hljóðmerki með
3 tónum í höfuðbúnaðinum. Þá ætti að hlaða rafhlöðuna eins fljótt og hægt er. Höfuðbúnaðurinn slekkur á sér þegar rafhlaðan
tæmist.
Hleðsla rafhlöðunnar
Hlaðið höfuðbúnaðinn fyrir fyrstu notkun!
Af öryggisástæðum er sjálfkrafa slökkt á öllum aðgerðum höfuðbúnaðarins við hleðslu.
Höfuðbúnaðurinn byrjar að hlaðast þegar hann er tengdur við USB-aflgjafa.
Notið USB-hleðslusnúruna sem fylgir höfuðbúnaðinum (B:4). Gangið úr skugga um að hleðslusnúran sé rétt tengd við
hleðslutengi höfuðbúnaðarins (A8) og USB-aflgjafann (þ.e. USB-tengi á tölvu eða í bíl, eða millistykki fyrir USB-hleðslu
farsímans).
Gangið úr skugga um að aflgjafinn sé af LPS-gerð og samþykktur í samræmi við staðbundnar tilskipanir um rafeindabúnað.
Tæknilýsing fyrir aflgjafa: DC 5V úttak 1000 mA (Limited Power Source - LPS).
Ljósdíóðan (A11) blikkar með grænu ljósi meðan að á hleðslu stendur.
Þegar rafhlaðan er fullhlaðin er logar græna díóðuljósið stöðugt.
Aftengið hleðslusnúruna þegar höfuðbúnaðurinn er fullhlaðinn.
Full hleðsla tekur um það bil 4 klukkustundir.
Notkunartími rafhlöðunnar er u.þ.b. 80 klukkustundir með virkri Bluetooth®-tengingu (A2DP og/eða HFP, HSP).
Biðtími er 150 klukkustundir.
Mikilvægt!
• Skiljið höfuðbúnaðinn aldrei eftir án eftirlits meðan verið er að hlaða hann.
• Ekki nota höfuðbúnaðinn meðan verið er að hlaða rafhlöðuna.
• Notið eingöngu aflgjafa sem framleiðandi tilgreinir.
• Aðeins skal hlaða höfuðbúnaðinn við stofuhita (10-25°C, (50-77°F)).
• Þessi vara inniheldur innbyggða litíum-rafhlöðu og eingöngu viðurkenndir þjónustuaðilar mega skipta um hana.
• Reynið ekki að opna rafhlöðuhólfið með neinum hætti og takið ekki rafhlöðuna í sundur, brjótið eða hafið hana nálægt miklum
hita eða eldi.
• Notkunarhitasvið fyrir rafeindabúnaðinn: -20°C (-4°F) til +55°C (+120°F).
• Ef þessum leiðbeiningum er fylgt er ólíklegt að varan valdi neinni hættu í skilningi EN 60950-1.
98