Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

3M PELTOR Bull's Eye I Bedienungsanleitung Seite 40

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für PELTOR Bull's Eye I:
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 13
i
3M™ PELTOR™ BULL'S EYE
H515FB, H520F, H540A
ÆTLUÐ NOTKUN
Þessum 3M™ PELTOR™ eyrnahlífum er ætlað að veita
starfsmönnum vernd gegn hættulegu hávaðastigi. Gert
er ráð fyrir því að allir notendur lesi og skilji meðfylgjandi
leiðbeiningar notenda ásamt því að kunna að nota tækið.
MIKILVÆGT
Lestu vinsamlegast, gerðu þér grein fyrir öllum
öryggisupplýsingum í leiðbeiningum þessum og farðu eftir
þeim áður en þú tekur heyrnartólin í notkun. Geymdu
leiðbeiningarnar til þess að geta leitað í þær síðar. Hafðu
samband við tæknideild 3M (samskiptaupplýsingar er að
finna á öftustu síðu).
!
VIÐVÖRUN
Heyrnarhlífarnar draga úr hættu á heilsutjóni vegna hávaða
og annarra háværra hljóða. Séu heyrnarhlífar notaðar rangt
eða notkun þeirra sleppt þann tíma sem dvalist er í
hættulegum hávaða, getur það leitt til heyrnarskerðingar
eða -taps. Ræddu við verkstjóra, kynntu þér leiðbeiningar
notenda eða hafðu samband við tæknideild 3M til þess að
kynna þér rétta notkun. Ef þér finnst eins og þú sért með
bómull í eyrunum eða heyrir són eða suð í eða eftir hávaða
(byssuskot meðtalin), eða ef þú hefur einhverja aðra
ástæðu til að ætla að þú glímir við heyrnarvanda, skaltu
yfirgefa hávaðasama umhverfið umsvifalaust og hafa
samband við lækni og/eða verkstjóra þinn.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það leitt
til alvarlegs líkamstjóns eða dauða:
• Notaðu ekki búnaðinn í mögulega sprengifimu umhverfi
til að draga úr hættu á því að sprenging verði.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það
dregið úr verndargetu heyrnarhlífanna og jafnvel leitt til
heyrnartjóns:
a. Rannsóknir benda til þess að hjá mörgum notendum sé
hljóðeinangrun minni en hljóðdeyfingartöflur á umbúðum
gefa til kynna vegna frávika við að fella hlífarnar að hverjum
notanda fyrir sig og færni hans og hvatningu til þess.
Kynntu þér viðeigandi reglur um leiðbeiningar um aðlögun
gilda á merkimiða og mat á hljóðdeyfingu. 3M mælir auk
þess eindregið með því að kanna hvort heyrnarhlífar passa.
b. Gættu þess að réttar heyrnarhlífar séu valdar, þeim
komið fyrir, þær aðfelldar og haldið við. Sé búnaðinum
komið fyrir á ófullnægjandi hátt, dregur það úr getu hans til
þess að deyfa hávaða. Kynntu þér meðfylgjandi
upplýsingar um rétta notkun.
c. Skoðaðu heyrnarhlífarnar fyrir hverja notkun. Séu þær
skemmdar, veldu þér óskaddaðar heyrnarhlífar eða
forðastu hávaðasamt umhverfi.
d. Sé nauðsynlegt að bæta við frekari persónuhlífum
(t.d. öryggisgleraugum, öndunargrímum o.s.frv.), ber að
velja sveigjanlegar og þunnar teygjur eða bönd til þess að
þau hafi sem minnst áhrif á heyrnarhlífapúðana.
Fjarlægðu allt annað (t.d. hár, húfur, skartgripi, heyrnartól,
hreinlætishlífar o.s.frv.) sem gæti dregið úr
einangrunargildi eyrnahlífapúðanna og verndargildi
hlífanna.
e. Ekki beygja eða breyta lögun höfuðspöng eða
hálsspöng og gættu þess að hún sé nógu öflug til þess að
halda heyrnarhlífunum tryggilega á sínum stað.
f. Eyrnahlífar og einkum þó eyrnapúðar geta orðið lélegir
með tímanum og þá þarf að skoða með reglulegu millibili
í leit að t.d. sprungum og hljóðleka. Séu heyrnarhlífa-
púðarnir notaðir reglulega, ber að skipta um þá og
frauðhringina að minnsta kosti tvisvar á ári til þess að
viðhalda fullnægjandi vernd, hreinlæti og þægindum.
g. Sé ekki farið eftir ofangreindum kröfum, skerðir það
verndareiginleika eyrnahlífanna verulega.
EN 352 Öryggisyfirlýsingar:
• Ákveðin efnafræðileg efni geta valdið tjóni á vöru
þessari. Nánari upplýsingar má fá hjá framleiðanda.
ATHUGASEMD
• Þegar heyrnarhlífarnar eru notaðar í samræmi við
leiðbeiningar notenda, draga þær bæði úr stöðugum
hávaða, svo sem í iðnaði eða frá ökutækjum og
flugvélum, og skyndilegum hávaða, til dæmis
byssuskotum. Erfitt er að segja fyrir um þá heyrnarvernd
sem þörf er á eða í raun er veitt hvað varðar váhrif af
skyndilegum hávaða. Það hefur áhrif á vernd gegn
hávaða frá byssuskotum um hvaða tegund vopns er að
ræða, hve mörgum skotum er hleypt af, hvaða
heyrnarhlífar eru valdar, hvernig þær passa og eru
notaðar, hvernig um þær er annast og fleira. Kynntu þér
betur heyrnarvernd gegn skyndilegum hávaða á
vefsíðunni www.3M.com/hearing.
• Hitastig við notkun: -20°C (-4°F) til 55°C (131°F)
• Hitastig við geymslu: -20°C (-4°F) til 55°C (131°F)
• Þyngd heyrnarhlífanna: H515FB = 190 g, H520F =
199 g, H540A = 276 g.
VOTTANIR
3M Svenska AB lýsir því hér með yfir að PPE-gerðar
eyrnahlífarnar eru í samræmi við kröfur samkvæmt
reglugerð (ESB) 2016/425 eða tilskipun sambandsins
89/686/EES og aðrar viðeigandi tilskipanir til að
uppfylla kröfur vegna CE-merkingar. Hægt er að fá
upplýsingar um viðeigandi löggjöf með því að sækja
samræmisyfirlýsingu (DoC) á www.3M.com/peltor/doc.
Samræmisyfirlýsingin sýnir einnig ef aðrar gerðarvottanir
gilda um þau. Þegar samræmisyfirlýsing er sótt, finndu
vinsamlegast hlutanúmer þitt. Þú finnur hlutanúmer
eyrnahlífanna prentað á skálinni. Hægt er að fá send
37

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis