Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Ottobock 50R59 Dorso Direxa Posture Gebrauchsanweisung Seite 50

Orthese
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 4
► Fylgið öryggisleiðbeiningum eftir til að forðast meiðsli og koma í veg
fyrir að skemma vöruna.
► Gefið notandanum leiðbeiningar um rétta og örugga notkun vörunnar.
► Geymið þetta skjal á öruggum stað.
Þessar notkunarleiðbeiningar innihalda mikilvægar upplýsingar um mátun og
notkun 50R59 Dorso Direxa Posture bakbeltisins.
2 Ætluð notkun
2.1 Ætluð notkun
Beltið má aðeins nota sem stoð fyrir bak og aðeins í snertingu við
óskaddaða húð.
Hálsspelkurnar verður að nota í samræmi við ábendingar um notkun.
2.2 Ábendingar um notkun
Röng líkamsstaða (hokið bak án samfallinna hryggjarliða, Scheuermann
sjúkdómur)
Beinþynning í brjóst- og lendaliðum
Eftirmeðferð eftir brot í brjóst- og/eða lendaliðum
Bakverkur (mjóbak og neðri hluti brjósthryggs), þjótak, ójafnvægi í
vöðvum brjóst- og lendaliða, tognun á liðböndum í brjóst- og lendaliðum
Lítilvægar breytingar á brjóst- og lendaliðum vegna hrörnunar (t.d.
beinklökkvi, smáliðasjúkdómar)
Læknir verður að segja fyrir um ábendingar.
2.3 Frábendingar
2.3.1 Ófrávíkjanlegar frábendingar
Ekki þekktar.
2.3.2 Varúðarráðstafanir
Hafa þarf samband við lækni ef einhver eftirfarandi einkenna koma fram:
húðsjúkdómar eða -sár, bólga, þrútin útbrot með bólgu, roða og hita á
svæðinu þar sem stoðtækinu er komið fyrir, æxli, uppsöfnun í eitlum – þar á
meðal óljós bólga mjúkvefs undir stoðtækinu og tilfinningartruflun í hrygg.
2.4 Verkun
Beltið hjálpar til við að koma vöðvajafnvægi á brjósthrygg og réttir hann við.
Beltið auðveldar skynhreyfiaðgerðir, hjálpar til við að lina verki og léttir á
brjósthrygg með því að rétta hann við og koma vöðvajafnvægi á bakhrygg þar
sem það eykur þrýsting í magavöðvum og veitir stuðning við bakið.
50

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis