Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Hallde RG-250 Bedienungsanleitung Seite 26

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für RG-250:
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 9
IS KLAR DEC-2014 / AAL
VIÐVÖRUN:
• Hellið hvorki né úðið vatni á hliðar vélarinnar.
• Notið ekki sjóðandi eða heitt vatn.
• Notið ekki natríumhýpóklórít (klór) eða önnur
efni sem innihalda það.
• Notið aldrei beitt verkfæri við þrif eða önnur
verkfæri sem ekki eru ætluð fyrir þrif.
• Notið ekki fægiefni.
FORÐIST: Notið ekki þvottasvampa með
ræstipúðum (t.d. Scotch-Brite™) nema það sé
algjörlega nauðsynlegt. Það ýfir yfirborðsfleti
svo þeir hrinda síður vatni frá sér.
RÁÐ FYRIR UMHIRÐU:
• Þrífið vélina strax eftir notkun.
• Þurrkið vélina strax eftir þrif til að forðast
oxun og upplitun á yfirborðsflötum.
UPPLÝSINGAR: Ef vélin er látin vera rök í
lengri tíma koma blettir á hana. Blettirnir eru
skaðlausir en hafa slæm áhrif á útlit vélarinnar.
Grænmeti og ávextir innihalda sýru. Það hefur
áhrif á málminn, eftir því hvaða vörur eru unnar,
eftir mismunandi langan tíma. Því er mikilvægt
að þrífa vélina strax eftir vinnslu á söltum og
súrum vörum.
BILANALEIT
Til að koma í veg fyrir tjón á vélinni er RG-250
útbúin hitastýrðri mótorvörn sem slekkur
sjálfkrafa á vélinni ef hitastig hennar verður of
hátt. Hitastýrða mótorvörnin er með sjálfvirkri
endurstillingu, sem þýðir að hægt er að gang-
setja vélina aftur þegar hún hefur kólnað, sem
tekur yfirleitt 10-30 mínútur.
BILUN: Vélin fer ekki í gang eða stöðvast
meðan hún er í gangi og ekki er hægt að
endurræsa hana.
LAUSN: Gangið úr skugga um að klóin sé
rétt í innstungunni eða kveikt á aðalrofanum.
Gangið úr skugga um að matarahólkurinn og
þrýstiplötuöxullinn séu læstir í réttri stöðu.
Færið þrýstiplötuna niður í matarahólkinn.
Gangið úr skugga um að öryggi í töfluskápnum
séu í lagi og að þau séu af réttri gerð. Bíðið í
nokkrar mínútur og reynið svo að gangsetja
vélina aftur. Fari vélin enn ekki í gang skal fá
löggiltan fagmann til að skoða hana.
BILUN: Lítil vinnslugeta eða ófullnægjandi
árangur.
LAUSN: Gangið úr skugga um að rétt skurðar-
verkfæri eða rétt samsetning af skurðar-
verkfærum sé notuð. Komið kjarnahrein-
sibúnaðinum fyrir. Gangið úr skugga um að
hnífarnir og skurðarskífurnar séu heilar og bíti
vel. Þrýstið matnum niður af minna afli.
BILUN: Ekki tekst að fjarlægja skurðarverkfæri.
LAUSN: Notið ávallt frárásarskífuna. Notið
þykkan leðurhanska eða öðruvísi hanska sem
hnífar skurðarverkfærisins skera ekki í gegnum
og losið skurðarverkfærið með því að snúa
því réttsælis.
BILUN: Ekki tekst að fjarlægja kjarnahrein-
sibúnað.
26
LAUSN: Notið skrúflykil til að losa kjarnahrein-
sibúnaðinn með því að snúa honum réttsælis.
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
UM HALLDE RG - 250
VÉL: Mótor: 0,55 kW. 100 V, einfasa, 50-60
Hz. 110-120 V, einfasa, 60 Hz. 220 V, einfasa,
50 Hz. 230-240 V, einfasa, 50 Hz. 230 V,
þriggja fasa, 50 Hz. 400 V, þriggja fasa, 50
Hz. 440 V, þriggja fasa, 60 Hz. Með hitastýrðri
mótorvörn. Aflyfirfærsla: gírar. Öryggiskerfi:
Tveir öryggisrofar: Varnarflokkur, vél: IP44.
Varnarflokkur, hnappar: IP65. Rafmagnsinn-
stunga: Jarðtengd, einfasa, 10 A, eða þriggja
fasa, 16 A. Öryggi í töfluskáp á staðnum. 10 A,
treg. Hljóðvist LpA (EN31201): 72 dBA.
VERKFÆRI: Þvermál: 185 mm. Hraði: 350 sn./
mín. (50 Hz), 420 sn./mín. (60 Hz).
NETTÓÞYNGD: Vél: 21 kíló. Skurðarverkfæri:
U.þ.b. 0,5 kíló að meðaltali.
STAÐLAR: NSF-STAÐALL 8, sjá samræmi-
syfirlýsingu.
HALLDE • User Instructions

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Diese Anleitung auch für:

Rg-100Rg-200

Inhaltsverzeichnis