Herunterladen Diese Seite drucken

IKEA HALLNAS Bedienungsanleitung Seite 341

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 16
ÍSLENSKA
Ábendingar og ráð
Ábendingar um kælingu á ferskum matvælum
Breiddu yfir eða pakkaðu inn matnum, sérstaklega
ef hann er bragðsterkur.
Staðsettu matinn þannig að loft geti leikið
óhindrað um hann.
Til að ná sem bestum árangri skaltu skilja nóg
pláss eftir í kælihólfinu til að loft geti streymt um
umbúðirnar. Einnig skal skilja eftir nægilegt rými
framan við svo að hægt sé loka dyrunum vel.
Ekki skal geyma heitan mat eða vökva sem
uppgufun er af í kæliskápnum.
Kjöt (allar tegundir): setjið í hæfilegar pakkningar
og látið á glerhilluna ofan við grænmetisskúffuna.
Kjöt skal ekki geyma lengur en 1-2 daga.
Eldaður matur og kaldir réttir: hyljið og setjið á
einhverja hillu.
Ávextir og grænmeti: hreinsið vel og látið í
grænmetisskúffuna. Banana, kartöflur, lauk og
hvítlauk má ekki geyma í kæliskápnum án umbúða.
Smjör og ostur: látið í sérstök loftþétt ílát eða
pakkið í álpappír eða plastpoka til að útiloka sem
mest loft.
Flöskur: lokið með loki og látið í hurðahillur.
Frystihólf
Þetta heimilistæki er kælir með
stjörnufrystihólfi. Pökkuð fryst matvæli má geyma í
þann tíma sem gefinn er upp á umbúðunum. Þegar
búið er að affrysta matvæli skal nota þau innan
sólarhrings.
Frysta ferskan mat
Það kemur fram á merkiplötunni hve mikið af
ferskum matvælum má frysta á sólarhring.
Ekki skal láta fersk, ófrosin matvæli snerta mat sem
þegar er frosinn til að komast hjá að hitinn hækki í
þeim síðarnefnda.
Látið fersk matvæli á frystisvæði í frystihólfi, en
skiljið eftir nægt rými á milli til að loft geti leikið um
þau.
Pakkið inn matvælunum til að verja þau fyrir vatni,
raka eða þéttingu. Það kemur í veg fyrir að lykt
berist um frystinn jafnframt því að tryggja betur
gæði frystra matvæla.
Magurt fæði geymist betur og lengur en feitt fæði.
Salt dregur úr geymsluþoli fæðu.
Látið aldrei heit matvæli í frystinn. Með því að kæla
heit matvæli áður en þau eru fryst sparast orka og
heimilistækið endist lengur.
Ekki frysta aftur hálfþiðin matvæli.
Orkusparnaðarráð
Setjið upp heimilistækið í þurru, vel loftræstu
herbergi langt frá hvers kyns hitagjöfum
(t.d. ofnum, pottum o.s.frv.) og á stað sem sólin
skín ekki beint á. Notið einangrunarplötu eftir
þörfum.
Fylgið uppsetningarfyrirmælum til að tryggja næga
loftræstingu.
Ónóg loftræsting bak við tækið eykur orkunotkun
og dregur úr kælinýtni.
Umhverfishiti, opnunartíðni sem og staðsetning
heimilistækisins geta haft áhrif á hitastig inni í
heimilistækinu. Hitastillingin ætti að miðast við
þessa þætti.
Látið heit matvæli og drykki kólna áður en þau eru
sett í heimilistækið.
Eftir að matvælin eru komin inn á sinn stað skal
kanna hvort hólfin lokast almennilega, einkum
frystihólfið.
Lágmarkið opnun á hólfum.
Við þíðingu matvæla skal láta þau í kæliskápinn.
Lága hitastigið á frosnum matvælum kælir niður
matvælin í ísskápnum.
Fyrirkomulag á hillum í kæliskáp hefur engin áhrif
á orkunýtni. Matvæli skal setja þannig á hillur
að það tryggi næga loftun (matvæli eiga ekki að
snertast og halda skal fjarlægð á milli matvæla og
bakhliðar).
Skipta skal sem fyrst um skemmdar þéttingar.
341

Werbung

loading