Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Öryggisleiðbeiningar - Bosch Kiox BUI330 Originalbetriebsanleitung

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für Kiox BUI330:
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 5
Öryggisleiðbeiningar
Lesa skal allar öryggisupplýsingar og
leiðbeiningar. Ef ekki er farið að í samræmi
við öryggisupplýsingar og leiðbeiningar
getur það haft í för með sér raflost, eldsvoða
og/eða alvarlegt líkamstjón.
Geyma skal allar öryggisupplýsingar og leiðbeiningar til
síðari nota.
Þegar talað er um rafhlöðu rafhjóls í þessari
notendahandbók er átt við allar upprunalegar Bosch-
rafhlöður fyrir rafhjól.
Lesa og fylgja skal öryggisupplýsingum og
u
leiðbeiningum í öllum notendahandbókum fyrir
rafhjólskerfið sem og í notendahandbók rafhjólsins.
Ekki skal láta skjá hjólatölvunnar beina athyglinni frá
u
umferðinni. Ef þú ert ekki með hugann við umferðina í
kringum þig er hætta á að þú lendir í slysi. Ef þú vilt gera
meira í hjólatölvunni en að breyta stuðningsþrepinu skaltu
stöðva hjólið fyrst.
Stilla skal birtustigið á skjánum þannig að mikilvægar
u
upplýsingar á borð við hraða eða viðvörunartákn sjáist
greinilega. Ef birtustigið á skjánum er ekki rétt stillt getur
það skapað hættu.
Ekki má opna hjólatölvuna. Ef hjólatölvan er opnuð
u
getur það eyðilagt hana og ábyrgðin fellur úr gildi.
Ekki má nota hjólatölvuna sem handfang. Ef rafhjólinu
u
er lyft upp með hjólatölvunni getur það valdið varanlegu
tjóni á hjólatölvunni.
Aðeins má nota teymingarhjálpina þegar rafhjólið er
u
teymt. Ef hjól rafhjólsins snerta ekki jörðu þegar
teymingarhjálpin er notuð skapast slysahætta.
Þegar kveikt er á teymingarhjálpinni snúast fótstigin
u
hugsanlega líka. Þegar kveikt er á teymingarhjálpinni
þarf að gæta þess að fæturnir séu nægilega langt frá
fótstigunum sem snúast. Hætta er á meiðslum.
Þegar teymingarhjálpin er notuð skal gæta þess að
u
hafa alltaf góða stjórn á rafhjólinu og gott tak á því. Við
tiltekin skilyrði getur teymingarhjálpin hætt að virka (t.d.
vegna hindrunar á fótstiginu eða ef fingurinn fer óvart af
hnappinum á stjórntölvunni). Rafhjólið getur skyndilega
farið aftur á bak í átt að notanda eða oltið á hliðina. Af
þessu getur stafað hætta fyrir notandann, sérstaklega ef
farmur er á hjólinu. Þegar teymingarhjálpin er notuð
verður að gæta þess að lenda ekki í þannig aðstæðum
með rafhjólið að notandinn ráði ekki við það!
Ekki setja rafhjólið á hvolf á stýrið og hnakkinn þegar
u
hjólatölvan eða festing hennar standa út fyrir stýrið.
Hjólatölvan eða festingin geta orðið fyrir varanlegu tjóni.
Einnig skal taka hjólatölvuna af áður en rafhjólið er sett í
viðgerðastand til að koma í veg fyrir að hjólatölvan falli af
eða verði fyrir skemmdum.
Varúð! Þegar stjórntölvan er notuð með Bluetooth® geta
u
komið upp truflanir í öðrum tækjum og kerfum, flugvélum
og lækningatækjum (t.d. hjartagangráðum og
heyrnartækjum). Einnig er ekki hægt að útiloka skaðleg
áhrif á fólk og dýr í nánasta umhverfi. Ekki má nota
Bosch eBike Systems
stjórntölvuna með Bluetooth® nálægt lækningatækjum,
bensínstöðvum, efnageymslum, svæðum þar sem er
sprengihætta og á svæðum þar sem er sprengt. Ekki má
nota stjórntölvuna með Bluetooth® í flugvélum. Forðast
skal að nota búnaðinn í lengri tíma í senn nálægt
líkamanum.
Orðmerkið Bluetooth® og myndmerkin (nafnmerkin) eru
u
skráð vörumerki í eigu Bluetooth SIG, Inc. Öll notkun
þessa orðmerkis/þessara myndmerkja af hálfu Robert
Bosch GmbH, Bosch eBike Systems er samkvæmt leyfi.
Hjólatölvan býður upp á þráðlausa tengingu. Virða
u
skal staðbundnar takmarkanir á notkun, t.d. í
flugvélum og á sjúkrahúsum.
Öryggisleiðbeiningar vegna leiðsögukerfis
Ekki skipuleggja akstursleiðir á ferð. Stöðvaðu hjólið
u
áður en þú færir nýjan áfangastað inn í leiðsögukerfið.
Ef þú ert ekki með hugann við umferðina í kringum þig er
hætta á að þú lendir í slysi.
Ef leiðsögukerfið stingur upp á leið sem er áhættusöm
u
eða hættuleg fyrir þig skaltu ekki fylgja henni. Láttu
leiðsögukerfið stinga upp á annarri leið.
Ekki hunsa umferðarskilti jafnvel þótt leiðsögukerfið
u
vísi þér tiltekna leið. Leiðsögukerfið getur ekki tekið tillit
til byggingasvæða eða tímabundinna hjáleiða.
Ekki skal nota leiðsögukerfið við hættulegar eða
u
ruglingslegar aðstæður (t.d. vegalokanir eða
hjáleiðir). Hafðu alltaf önnur kort og samskiptatæki
meðferðis.
Upplýsingar um persónuvernd
Ef hjólatölvan er send til þjónustudeildar Bosch vegna
þjónustumáls getur verið að gögnunum sem vistuð eru í
hjólatölvunni sé miðlað til Bosch.
Íslenska – 1
1 270 020 XBK | (29.05.2023)

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis