ÍSLENSKA
Hreinsun og viðhald
ATHUGIÐ: Takið tækið alltaf úr sambandi þegar það er þrifið og
þegar framkvæmd er viðhaldsvinna. Notið ekki eldfima vökva til
að þrífa vélina.
Uppþvottavélin þrifin
Hægt er að fjarlægja alla bletti innan úr tækinu
með því að nota klút sem hefur verið vættur
með vatni og smávegis ediki.
Hægt er að þrífa ytra yfirborð vélarinnar og
stjórnborðið með því að nota mjúkan klút sem
hefur verið vættur með vatni. Notið ekki ætandi
eða slípandi hreinsiefni.
Komið í veg fyrir vonda lykt
Hafið hurð tækisins alltaf smávegis opna til að hindra að raki
myndist og festist inni í vélinni.
Hreinsið reglulega þéttingarnar í kringum hurðina og
þvottaefnisskammtarana með því að nota rakan svamp. Þetta
kemur í veg fyrir að matur sitji fastur í þéttingunum, sem er
megin ástæðan fyrir því að vond lykt myndast.
Vatnsinntaksslangan athuguð
Athugið reglulega hvort vart sé við brot eða sprungur á
inntaksslöngunni. Ef hún er skemmd skal skipta henni út með
nýrri slöngu sem fáanleg er hjá viðhaldsþjónustu okkar eða
sérhæfðum söluaðila. Eftir tegund slöngunnar:
Ef inntaksslangan er gerð úr gegnsæju efni skal athuga
reglulega hvort litur breytist og verði sterkari á ákveðnum
stöðum. Ef svo er þá gæti slangan verið að fara að leka og ætti
að skipta henni út.
Fyrir vatnsstöðvunarslöngur: Athugið litla skoðunarglugga
öryggisventilsins (sjá ör). Ef hann er rauður þá hefur
vatnsstöðvunaraðgerðin verið virkjuð og það verður að skipta
slöngunni út með nýrri.
Til að skrúfa þessa slöngu af skal ýta á sleppihnappinn meðan
verið er að skrúfa hana af.
Vatnsinntaksslangan hreinsuð
Ef vatnsslöngurnar eru nýjar eða hafa ekki verið notaðar í lengri
tíma skal láta vatnið renna til að tryggja að þær séu hreinar
og lausar við óhreinindi áður en nauðsynlegar tengingar eru
framkvæmdar. Ef þessar varúðarráðstafanir eru ekki gerðar þá
gæti vatnsinntakið stíflast og skemmt uppþvottavélina.
Síusamstæðan hreinsuð
Hreinsið síusamstæðuna reglulega þannig að síurnar stíflist ekki
og frárennslisvatnið renni burt á réttan hátt.
Ef uppþvottavélin er notuð með stíflaðar síur eða aðskotahluti
innan í síunarkerfi eða úðunarörmum, þá getur það leitt til gang-
truflana og verri árangurs, hávaða við vinnslu eða meiri auðlinda-
notkunar.
Síusamstæðan samanstendur af þremur síum sem fjarlægja
matarleifar úr þvottavatninu og endurnýta síðan vatnið.
Ekki má nota uppþvottavélina án síanna eða ef sían er laus.
A.m.k. einu sinni í mánuði eða eftir 30 lotur skal athuga síusam-
stæðuna og ef nauðsynlegt er þrífa hana vandlega undir rennandi
vatni, með því að nota bursta sem er ekki úr málmi og fylgja
leiðbeiningunum að neðan:
1. Snúið síusívalningnum A rangsælis og togið hann út (mynd
1).
2. Fjarlægið skálarsíuna B með því að beita smávegis þrýstingi á
hliðarspeldin (mynd 2).
3. Rennið út skífusíunni úr ryðfríu stáli C (mynd 3).
4. Í þeim tilfellum sem vart er við aðskotahluti (eins og brotið
gler, postulín, bein, ávaxtafræ o.s.frv.) skal fjarlægja þá
varlega.
5. Skoðið gildruna og fjarlægið allar matarleifar. FJARLÆGIÐ
ALDREI hlíf þvottadælunnar (svartur hlutur) (mynd 4).
1
A
C
3
Þegar síurnar hafa verið hreinsaðar skal setja síusamstæðuna
aftur í og festa hana í stað á réttan hátt; þetta er nauðsynlegt til
að uppþvottavélin haldi áfram að virka á hagkvæman hátt.
Hreinsið úðunararmana
Stundum geta
matarleifar
myndað skorpu á
úðunarörmunum
og hindrað götin
sem vatninu er úðað
út um. Því er mælt
með að armarnir séu
athugaðir af og til og
hreinsaðir með litlum
bursta sem er ekki úr
málmi.
Til að fjarlægja efri
úðunararminn skal snúa láshringnum úr plasti réttsælis. Efri
úðunararmurinn á að vera settur þannig að hliðin sem hefur
fleiri göt snúi upp á við.
Fjarlægja má neðri úðunarar-
minn með því að toga hann
upp á við og snúa rangsælis..
190
2
B
A
4