Almennt
Þú hefur valið tæki frá R82 – alþjóðlegum söluaðila hjálpartækja og búnaðar fyrir börn og unglinga
með sérþarfir. Til að nýta sem best þá valkosti sem þetta tæki hefur upp á að bjóða skaltu lesa
notendahandbókina fyrir notkun og geyma hana til síðari nota.
Tilgangur
Stóll ætlaður börnum og fullorðnum
með fötlun.
Ábendingar
Börn og fullorðnir sem geta ekki setið án
stuðnings geta notað tækið. Markhópur
tækisins byggist á hreyfigetu en ekki sérstöku
heilbrigðisástandi eða aldri.
Notandi er sá sem situr í tækinu. Umönnun-
araðili er sá sem stýrir tækinu. Notandi má
aldrei vera eftirlitslaus í tækinu. Tryggja skal
að umönnunaraðili sinni stöðugu eftirliti.
Þegar notandinn liggur, stendur eða situr
í öðru hjálpartæki eða hefðbundnu tæki
er þetta tæki ekki í notkun á meðan.
Frábendingar
Engar frábendingar eru þekktar.
Varúðarráðstafanir
Sérstaklega skal gæta að eftirfarandi
atriðum við uppsetningu tækisins og notkun
aukahluta þegar um er að ræða notendur
með takmarkanir á:
• skynjun og sársaukaskyni - fylgjast
skal sérstaklega með þrýstingi sem
notandi verður fyrir af völdum tækisins
og aukahluta þess.
• hreyfigetu (t.d. þegar um ósjálfráðar
hreyfingar er að ræða) - íhuga skal að
nota tæki með stillanlegri bakstoð.
• getu til að halda sitjandi stöðu - íhuga
skal að nota vöruna með aukahlutum (t.d.
hliðarstuðningi, öryggisvesti, öryggisbelti,
stuðningi fyrir handleggi, borði).
• getu til að halda höfði - íhuga skal að nota
aukahluti sem veita sérstakan stuðning
við höfuð.
Notkunarsvið
Til notkunar innandyra.
Verkfæri sem fylgja með:
Wombat Living 1 & 2
• 3, 4 og 5 mm sexkantslykill
Wombat Living 3
• 3, 4, 5 og 6 mm sexkantslykill
• 10 mm skrúflykill
Samræmisyfirlýsing
Þetta tæki samræmist kröfum tilskipunar
um lækningatæki (2017/745). Auk þess sam-
ræmist tækið kröfum eftirfarandi staðla:
etac.com
XX
IS
ÍSLENSKA
• EN 12182
Fjarlægja verður CE-merkinguna ef:
• Tækið er sett saman aftur
• Tækið er ekki notað í samræmi við
fyrirhugaðan tilgang þess og samræmisy-
firlýsingu
• Notaðir eru varahlutir eða útbúnaður
sem ekki er frá R82
Þegar tækið er notað samhliða öðrum tækjum
má slík samsetning ekki vera í því skyni
að breyta fyrirhuguðum tilgangi viðkomandi
tækja og ekki má breyta tækjunum á þann veg
að það geti haft áhrif á samræmi við gildandi
kröfur. Aðilinn/fyrirtækið sem ber ábyrgð
á samhliða notkun tækjanna skal tryggja
að gildandi kröfur séu uppfylltar.
Dæmi um gildandi kröfur:
• Samþykki fyrir flutningi beggja vara
í ökutækjum með tilliti til samanlagðrar
þyngdar/massa sætis og stoðgrindar
(ISO16840-4 fyrir sæti og ISO7176-19
fyrir stoðgrind)
• Öryggi efna (lífsamrýmanleiki, eldfimi),
vélrænt öryggi (stöðugleiki, hætta á að
kremjast, samtengingar), rafmagnsöryggi
Förgun
Þegar endingartími tækisins er liðinn skal það
tekið í sundur eftir efnistegundum svo hægt sé
að endurvinna eða farga hlutum þess á réttan
hátt. Ef þörf krefur skal hafa samband við
næsta söluaðila til að fá nákvæma lýsingu
á hverju efni. Hafið samband við staðaryfirvöld
til að fá upplýsingar um hvaða valkostir eru
í boði fyrir umhverfisvæna endurvinnslu.
Aukahlutir og varahlutir
Tæki frá R82 má fá með ýmsum aukahlutum,
þar með talið öryggisvestum og öryggisbeltum,
í samræmi við þarfir hvers notanda. Hægt er
að panta varahluti. Aukahluti má finna á vefs-
væði okkar en einnig má fá nánari upplýsingar
hjá næsta söluaðila.
Ábyrgð R82
www.etac.com/support
Upplýsingar og leiðbeiningar
fyrir kaup
Finna má upplýsingar og leiðbeiningar fyrir
kaup á www.etac.com, undir vöruheitinu
í skjalahlutanum.
191