IS
• Geberit ONE speglaskápurinn sýnir upplýsta spegilmynd þína með ósviknum og
náttúrulegum hætti.
• Til að skapa náttúrulegt ljós lýsir Geberit ONE speglaskápurinn einnig handlaugarsvæðið og
herbergið óbeint upp í gegnum loftið.
• Aðrir ljósgjafar lýsa upp andlitið, blöndunartækin og salernisskálina.
• Ljósið blindar ekki.
Mynd 1:
Geberit ONE speglaskápur með Geberit ComfortLight og hillu
1
Óbeint herbergisljós
2
Spegilljós
3
Hilluljós
4
Handlaugarljós
5
Stjórnreitur
Athugið að speglaskápurinn getur verið með einni eða tveimur hurðum. Hann er fáanlegur í
fimm mismunandi stærðum í rafhúðuðu áli og í hvítu og annaðhvort með heilum spegli eða
upplýstri hillu. Það eru tveir möguleikar á uppsetningu: með innfellingu – þ.e. innbyggingu í
vegg – eða á yfirborð. Notkunarleiðbeiningarnar innihalda upplýsingar um allar útfærslur, en
enginn munur er á notkun þeirra hins vegar getur verið að skýringarmyndirnar í þessum
notkunarleiðbeiningum víki frá speglaskápnum sem þú hefur fest kaup á.
Geberit ComfortLight
Það kviknar alltaf á þeim littón Geberit ONE speglaskápsins sem stilltur er í
verksmiðjustillingum. Þú getur breytt litahitanum á auðveldan og þægilegan hátt á
stjórnborðinu á speglaskápnum, með birtudeyfanlega ljósarofanum eða með Geberit Home-
appinu.
Hægt er að deyfa birtu ljósastýringarinnar þrepalaust og hún er auðveld í notkun. Bjartara ljós
verður sjálfkrafa kaldara og daufara ljós verður sjálfkrafa hlýrra. Það er einmitt þessi tenging
littónsins við birtustigið sem einkennir Geberit ComfortLight.
98
81064801003717003 © 04-2022
970.243.00.0(02)