Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Mikilvægar Upplýsingar - Axkid Minikid 3 Premium Bedienungsanleitung

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 22
Kærar þakkir fyrir að velja Axkid Minikid 3
Lestu þessar leiðbeiningar áður en þú setur Axkid Minikid 3 bílstólinn í bílinn.
Nánari upplýsingar og ísetningarmyndbönd er að finna á www.axkid.com.
Axkid Minikid 3 er afturvísandi bílstóll samþykktur fyrir
börn með hæð á milli 61-125 cm, ≤36 kg
Axkid Minikid 3 er hentugur til notkunar frá um það bil sex mánaða aldri, eða frá því að barnið þitt getur setið upp óstutt.
Þetta er heildstætt sértækt kerfi fyrir festingu barna í ökutæki (Specific vehicle Belted Enhanced Child Restraint System.)
Það er samþykkt í samræmi við reglugerð Sameinuðu þjóðanna nr. 129, til notkunar í samhæfanlegum sætum ökutækis
eins og tilgreint er í ökutækjalistanum. Ef þú ert í vafa skaltu hafa samband við framleiðanda barnastólsins (www.axkid.
com) eða söluaðilann.
Mikilvægar upplýsingar
Til að hámarka öryggi barnsins þíns er mikilvægt að þú hafir eftirfarandi í huga:
Fylgið ávallt leiðbeiningunum í þessari handbók. Röng uppsetning getur haft alvarleg áhrif á öryggi barnsins þíns. Hafðu samband við
söluaðilann ef vafaatriði koma upp. Hann getur leiðbeint þér varðandi rétta uppsetningu.
Geymið þessa handbók til síðari nota. Ef handbók týnist geturðu fundið hana á netinu á www.axkid.com
Notaðu ekki Axkid Minikid 3 bílstól í sæti þar sem virkur loftpúði er fyrir framan það. Ef þú vilt samt sem áður setja upp Axkid Minikid
bílstól 3 í slíka sætisstöðu verður að slökkva á loftpúðanum í samræmi við leiðbeiningar framleiðanda ökutækisins.
Ef slys hefur orðið, sama hversu lítið, skal ávallt skipta um bílstólinn. Hann gæti hafa orðið fyrir skemmdum sem eru ekki sjáanlegar og
gætu haft alvarleg áhrif á öryggi barnsins þíns. Af þessum ástæðum mælir Axkid ekki með því að kaupa notaða bílstóla.
Ef Axkid Minikid 3 bílstóll hefur verið í beinu sólarljósi skaltu ganga úr skugga um að bílstóllinn sé ekki of heitur áður en barnið er sett
í hann.
Skildu barnið þitt aldrei eftir í bílnum án eftirlits.
Gakktu úr skugga um að allur farangur eða lausir hlutir séu tryggilega festir í ökutækinu þar sem þeir geta valdið meiðslum á
farþegum ef árekstur verður.
Gakktu úr skugga um að Axkid Minikid 3 bílstóllinn sé settur upp þannig að engir hlutar hans festist í hreyfanlegum sætum, bílhurðum
o.s.frv.
Ef þú notar neðri ólarfestingar skaltu ganga úr skugga um að þær séu settar upp þannig að þær séu ekki fyrir hreyfingu ökutækissæta.
Axkid Minikid 3 bílstól má aðeins setja upp bakvísandi.
Gakktu úr skugga um að beltið sé stillt þannig að það passi rétt við líkama barnsins. Beltið er stillt með því að hreyfa höfuðpúðann.
Gakktu úr skugga um að bak barnsins sé þétt að bílstólnum þegar þú festir barnið þitt með beltinu.
Gakktu úr skugga um að beltið sé þétt að barninu og að sylgjan sé alveg læst. Þú ættir ekki að geta klipið í ólarnar.
Gakktu úr skugga um að beltið sé ekki snúið.
Gakktu ávallt úr skugga um að stuðningsfóturinn sé í réttri stöðu og nemi við gólf ökutækisins. Stuðningsfóturinn er mjög mikilvægur
öryggisbúnaður sem er hannaður til að hámarka öryggi barnsins þíns í slysi.
Reyndu ekki að taka í sundur eða breyta neinum hluta Axkid Minikid 3 bílstólsins. Ábyrgð og öryggisframmistaða Axkid bílstóla gæti
orðið fyrir áhrifum af því.
Notaðu aldrei Axkid Minikid 3 bílstól án áklæðisins. Stólsáklæðið er öryggisbúnaður og má aðeins skipta því út með upprunalegu
Axkid stólsáklæði.
Lestu ökutækjahandbókina og ökutækjalistann á www.axkid.com til að finna hvaða sætisstöður henta þessum bílstól
Axkid mælir með því að nota alltaf sætishlíf til að vernda bílsætin fyrir rispum og óhreinindum.
Ef þú ert í vafa skaltu hafa samband við söluaðilann þar sem bílstóllinn var keyptur eða hafa samband við info@axkid.com
152
152

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis