Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Forritun Opnara Og Fjarstýringar / Þráðlauss Þrýstihnapps/ / Þráðlauss Lyklaborðs (Aukabúnaður); Led-Ljós Myq-Fjarstýringar Forritað - LiftMaster LM3800W Installationsanleitung

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für LM3800W:
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 22
Forritun opnara og fjarstýringar / þráðlauss þrýstihnapps/ / þráðlauss lyklaborðs
25
(aukabúnaður)
Eingöngu skal ræsa opnarann þegar öll hurðin er í sjónlínu, engar hindranir eru til staðar og þegar hún er rétt stillt. Enginn skal fara inn í
né út úr bílskúrnum á meðan hurðin er á hreyfingu. Leyfið ekki börnum að ýta á hnappana né handfjatla fjarstýringuna. Leyfið ekki börnum
að leika sér við hurðina. Móttakari bílskúrshurðaopnarans og einn af hnöppunum á fjarstýringunni eru þegar forritaðir. Ef keyptar eru fleiri fjarstýrin-
gar verður að forrita bílskúrshurðaopnarann til að hann samþykki kóða nýju fjarstýringanna.
FORRITIÐ MÓTTAKARANN TIL AÐ HANN TAKI VIÐ NÝJUM FJARSTÝRINGUM:
NOTIÐ GULA, HRINGLAGA HNAPPINN
1. Ýtið á og sleppið gula, hringlaga hnappinum (L) á opnaranum. Gaumljós forritunar logar stöðugt í 30 sekúndur.
2. Áður en 30 sekúndurnar líða hjá skal halda inni hnappinum á þráðlausu fjarstýringunni sem á að nota til að opna bílskúrshurðina.
3. Sleppið hnappinum þegar ljósið á opnaranum blikkar einu sinni. Nú er búið að forrita kóðann inn í opnarann. Nú fer opnarinn í gang þegar ýtt er
á hnappinn á fjarstýringunni. Ef þrýstihnappinum á fjarstýringunni er sleppt áður en ljósið á opnaranum blikkar hefur kóðinn ekki verið forritaður
í opnarann.
LYKLALAUS AÐGANGUR
1. Ýtið á og sleppið gula, hringlaga hnappinum (L) á opnaranum. Gaumljós forritunar logar stöðugt í 30 sekúndur.
2. Sláið inn fjögurra stafa auðkennisnúmer (PIN) að eigin vali á þráðlausa lyklaborðið.
3. Ýtið síðan á ENTER-hnappinn.
4. Ljósin á bílskúrshurðaopnaranum blikka (eða tveir smellir heyrast) þegar kóðinn hefur verið forritaður. Endurtakið þrepin hér á undan til að forrita
fleiri fjarstýringar eða tæki fyrir lyklalausan aðgang. Forritið fjarstýringuna með forritunarhnappinum ef forritunin tekst ekki.
ÖLLUM KÓÐUM FJARSTÝRINGAR EYTT
Þegar gera á fjarstýringu óvirka skal fyrst eyða öllum kóðum: Ýtið á gula, hringlaga hnappinn á opnaranum og haldið inni þar til slokknar á gaumljósi
forritunar (eftir u.þ.b. 10 sekúndur). Nú hefur öllum fyrri kóðum verið eytt. Forritið upp á nýtt allar fjarstýringar eða lyklalausan aðgang sem óskað er
eftir.
26
LED-ljós MyQ-fjarstýringar forritað
Fjarstýrða ljósið á bílskúrshurðaopnaranum er forritað í verksmiðju til notkunar með hurðaopnaranum. Forrita verður fjarstýrð ljós á ný ef
ljósum er bætt við eða þegar skipt er um ljós.
BÍLSKÚRSHURÐAOPNARI FORRITAÐUR FYRIR LED-LJÓS MYQ-FJARSTÝRINGAR:
1. Ýtið á FORRITUNARHNAPPINN (L) á ljósinu þar til græna LED-ljósið KVIKNAR.
2. Ýtið á FORRITUNARHNAPPINN (L) á hurðaropnaranum.
3. Kóðinn hefur verið forritaður þegar fjarstýringarljósið blikkar einu sinni.
FJARSTÝRING FORRITUÐ FYRIR LED-LJÓS MYQ-FJARSTÝRINGAR
1. Ýtið á FORRITUNARHNAPPINN (L) á ljósinu þar til græna LED-ljósið KVIKNAR.
2. Ýtið á hnappinn á þráðlausu fjarstýringunni sem á að nota til að kveikja ljósið.
3. Kóðinn hefur verið forritaður þegar fjarstýringarljósið blikkar einu sinni.
Frekari upplýsingar um hvernig ljósið er forritað með öðrum aukabúnaði er að finna í handbókinni fyrir viðkomandi aukabúnað.
LED-LJÓS MYQ-FJARSTÝRINGAR BÆTT VIÐ MYQ-REIKNINGINN
1. Ýtið á FORRITUNARHNAPPINN (L) á ljósinu þar til græna LED-ljósið KVIKNAR.
2. Skráið ykkur inn á MyQ-forritið og bætið LED-ljósi MyQ-fjarstýringarinnar við.
ÖLLUM FORRITUÐUM STILLINGUM FYRIR LED-LJÓS MYQ-FJARSTÝRINGAR EYTT
1. Ýtið á FORRITUNARHNAPPINN (L) og haldið honum inni þar til slokknar á LED-ljósinu (eftir 6-10 sekúndur). Nú er öllum forrituðum stillingum
eytt
13 / is

Quicklinks ausblenden:

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis