Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

3M Versaflo V-100E Handbuch Seite 25

Druckluftkühlung / drucklufterwärmung
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 8
i
NOTENDALEIÐBEININGAR
Lesið þessar leiðbeiningar samhliða sérleiðbeiningum með 3M™
Versaflo™ V-100E/V-200E, þar sem finna má upplýsingar um:
• samþykktar samsetningar höfuðstykkja
• varahluti
• aukahluti
UMBÚÐIR FJARLÆGÐAR
3M™ Versaflo™ V-100E/V-200E kæli- og hitunareiningin ætti að innihalda:
a) V-100E einingu (með belti og flautu) eða V-200E einingu (með belti og
flautu)
b) Notendaleiðbeiningar
c) sérleiðbeiningar
^ VIÐVÖRUN
Rétt val, þjálfun, notkun og viðeigandi viðhald eru allt nauðsynlegir
þættir til að varan geti varið notandann fyrir tilteknum aðskotaefnum í
lofti. Ef öllum notkunarleiðbeiningum þessarar öndunarhlífar er ekki
fylgt og/eða ef hún er ekki höfð rétt á í heild sinni allan váhrifatímann
getur það haft alvarleg áhrif á heilsufar notandans og leitt til
alvarlegra eða lífshættulegra sjúkdóma eða varanlegrar fötlunar.
Til að varan henti og sé notuð rétt skal fylgja staðbundnum reglugerðum,
fara eftir öllum upplýsingum sem með henni fylgja eða hafa samband við
öryggissérfræðing/fulltrúa 3M (upplýsingar um tengiliði á staðnum).
KERFISLÝSING
3M™ Versaflo™ V-100E kælieiningin og 3M™ Versaflo™ V-200E
hitunareiningin eru hannaðar til notkunar með einu af samþykktu
höfuðstykkjunum (sjá sérleiðbeiningar).Þessar vörur uppfylla kröfur í
öryggisstaðlinum EN14594 (Öndunarfærahlífar – ferskloftsgrímur með
stöðugu loftflæði). Einingarnar eru ætlaðar til að stilla hitastig loftsins sem
berst til höfuðstykkisins. Þær eru ekki flæðistilltar en þar sem kælingar- og
hitunarstýring eða þrýstingur inntakslofts eru mismunandi er rúmtak lofts til
höfuðstykkis einnig mismunandi. Með° V-100E einingunni getur notandinn
kælt loftið um að hámarki um það bil 28 °C og með V-200E einingunni
getur notandinn hitað loftið um að hámarki um það bil 28°C. Einingarnar
eru búnar viðvörunarflautu.
VIÐURKENNINGAR
Þessar vörur eru gerðarviðurkenndar og skoðaðar árlega af BSI, Kitemark
Court, Davy Avenue, Knowlhill, Milton Keynes, MK5 8PP, Bretlandi
(tilkynntur aðili nr. 86).
Þessar vörur eru CE-merktar í samræmi við kröfur sem settar eru fram í
annaðhvort Evróputilskipun 89/686/EBE eða Evrópureglugerð (ESB)
2016/425. Upplýsingar um gildandi sértæka löggjöf sem þessar vörur
samræmast má finna með því að skoða vottunina og
samræmisyfirlýsinguna sem finna má á eftirfarandi vefsvæði:
www.3m.com/Respiratory/certs and www.3m.com/Welding/certs
TAKMARKANIR Á NOTKUN
Notið þessa öndunarhlíf eingöngu í samræmi við allar leiðbeiningar:
• sem er að finna í þessum bæklingi
• sem fylgja öðrum íhlutum kerfisins. (t.d. sérleiðbeiningar með
V-100E/V-200E, notendaleiðbeiningar með höfuðstykki).
Notið ekki þar sem styrkleiki aðskotaefna er meiri en tilgreint er í
notendaleiðbeiningunum með höfuðstykkinu.
Notið ekki sem öndunarhlíf gagnvart óþekktum aðskotaefnum í lofti eða
þegar styrkur aðskotaefna er óþekktur eða umsvifalaust hættulegur lífi eða
heilsu (IDLH).
Notið ekki í andrúmslofti þar sem súrefnisinnihald er minna en 19,5%.
(Skilgreining frá 3M. Í hverju landi fyrir sig kunna að vera í gildi aðrar
takmarkanir hvað varðar súrefnisskort. Leitið ráða ef vafi leikur á málum).
Notið aðeins með höfuðstykkjum og varahlutum/fylgihlutum sem talin eru
upp í sérleiðbeiningum og innan þeirra notkunarskilyrða sem fram koma í
tækniforskriftinni.
Notist aðeins af þjálfuðu og hæfu starfsfólki.
Yfirgefið mengaða svæðið umsvifalaust ef:
a) einhver hluti kerfisins skemmist,
b) loftflæði inn í höfuðstykkið minnkar eða stöðvast.
c) erfitt verður að anda,
d) vart verður við svima eða önnur óþægindi,
e) vart verður við lykt eða bragð af aðskotaefnum eða ertingu.
Ekki má breyta þessari vöru. Notið aðeins upprunalega varahluti frá 3M við
viðgerðir.
Notið ekki súrefni eða súrefnisauðgað loft.
Hafið samband við tækniþjónustu 3M ef fyrirhuguð er notkun á
sprengihættustað.
Við notkun við hitastig undir +4°C þarf að stjórna rakahlutfalli í
öndunarloftinu til að koma í veg fyrir að það frjósi í öndunarbúnaðinum.
Gætið þess alltaf að:
• uppruni lofts sé þekktur;
• hreinleiki lofts sé þekktur;
• loftið standist gæðakröfur fyrir innöndun, í samræmi við°EN12021.
Gætið þess að rúmtak loftkerfisins sé nægilega mikið fyrir hvern notanda
sem er tengdur við það.
Við mikið álag getur orðið undirþrýstingur í höfuðstykkinu við
hámarksinnöndunarflæði.
Þessa vöru ætti aðeins að nota við vinnuaðstæður þar sem hætta á
skemmdum á þrýstiloftsleiðslunni er lítil og þar sem hreyfingar notanda eru
takmarkaðar. Þrýstiloftsleiðslan á að vera búin rétt kvörðuðum og stilltum
öryggisloka.
Þessar einingar ætti ekki að nota með færanlegum búnaði sem notar
þrýstiloft.
Efni sem geta komist í snertingu við húð notenda munu ekki valda
ofnæmisviðbrögðum nema hjá minnihluta notenda.
Varan inniheldur ekki íhluti sem gerðir eru úr náttúrulegu gúmmílatexi.
MERKINGAR Á BÚNAÐI
Upplýsingar um merkingar á höfuðstykkinu eru í notendaleiðbeiningum
með höfuðstykki.
V-100E/V-200E einingarnar eru merktar EN14594.
V-100E/V-200E einingarnar eru merktar með framleiðsludagsetningu.
Þrýstiloftsleiðslurnar eru merktar EN14594, EN270 og/eða EN1835, eftir
því sem við á. Þær eru einnig merktar sem hér segir: - 308-00-35P og
308-00-40P eru merktar A - henta til notkunar með tækjabúnaði í flokki A
(EN14594). - 308-00-72P er merkt „Hitaþolin" og „Afrafmagnandi".
UNDIRBÚNINGUR FYRIR NOTKUN
Gangið úr skugga um að búnaðurinn sé heill, óskaddaður og rétt settur
saman. Ef einhverjir hlutar hans reynast skemmdir eða gallaðir verður að
endurnýja þá með upprunalegum 3M-varahlutum fyrir notkun.
Framkvæmið skoðun á höfuðstykkissamstæðunni fyrir hverja notkun, eins
og lýst er í viðeigandi notendaleiðbeiningum.
Tengingar við inntak verður að setja upp á V-100E/V-200E einingunum fyrir
fyrstu notkun og gæta þess að tengingar séu loftþéttar (sjá lista yfir
samþykkt tengi fyrir 3M í sérleiðbeiningum fyrir V-100E/V-200E). Tengi skal
setja upp, með skinnunni sem fylgir með, og herða með herslulykli á 15
Nm ± 1 Nm.
Hámarkshitun eða -kælingu er aðeins hægt að ná fram með þjöppum sem
geta skilað meira en 570 l/mín. ( 20CFM) við 6 bör. Þegar afkastageta fyrir
frjálst loftflæði er skert leiðir það til skerðingar á hitunar- eða kælivirkni.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
BÚNAÐUR SETTUR Á NOTANDA
1. Veljið samþykkta gerð öndunarslöngu (sjá lista yfir samþykktar
öndunarslöngur fyrir 3M í sérleiðbeiningum) og tengið efsta hlutann við
höfuðstykkissamstæðuna. Skoðið þéttið á oddmjóa endanum á
öndunarslöngunni vel (þ.e. þann enda sem er tengdur við loftdæluna) og
kannið hvort það eru sýnileg merki um slit eða skemmdir á því. Ef þéttið er
slitið eða skemmt þarf að skipta um öndunarslönguna.
2. Stillið beltið með V-100E/V-200E einingunni, spennið það á þannig að
það falli þægilega utan um mittið og tengið neðri enda öndunarslöngunnar
við úttak einingarinnar.
3. Stillið höfuðstykkið eins og lýst er í viðeigandi notendaleiðbeiningum.
4. Tengið þrýstiloftleiðsluna á milli valkvæðu 3M loftgæða- og
loftsíueiningarinnar og V-100E/V-200E einingarinnar og gætið þess að
þrýstingurinn í loftsíueiningunni sé stilltur eins og lýst er í kaflanum
Tæknilýsing.
5. Gætið þess að lágmarksloftflæði, hið minnsta, til höfuðstykkis hafi verið
tryggt og stillið loftflæðið í V-100E/V-200E kerfinu þannig að það verði sem
þægilegast – sjá myndir 1a og 1b. (Viðvörunarhljóð heyrist ef loftflæði er
undir lágmarki – nánari upplýsingar eru í hlutanum um bilanagreiningu).
Í NOTKUN
Þegar lokað er fyrir loftflæði er ekki hægt að nota búnaðinn með
venjulegum hætti, hann veitir litla sem enga vernd og uppsöfnun á
koltvísýringi og súrefnisskortur getur átt sér stað inni í
höfuðstykkinu. Við þær aðstæður verður að yfirgefa mengaða
svæðið tafarlaust.
1. Gætið þess vel að öndunarslangan vefjist ekki utan um framstæða hluti
í umhverfinu. Ef þetta gerist skal yfirgefa mengaða svæðið og ganga úr
skugga um að búnaðurinn sé óskaddaður.
2. Fjarlægið ekki höfuðstykkið eða slökkvið á loftflæðinu fyrr en komið er út
fyrir mengaða svæðið.
3. Alltaf þarf að stilla þrýsting inntakslofts og hitastýringu með þeim
hætti að viðvörunarflautan fari ekki í gang. Ef viðvörunarmerkið
heyrist skal yfirgefa mengaða svæðið tafarlaust og kanna ástæðuna.
4. Endingartími vörunnar við notkun er mislangur eftir tíðni notkunar og
notkunarskilyrðum. Ef varan er notuð daglega er mælt með því að henni
sé fargað eftir 5 ára notkun, að því gefnu að varan sé geymd og henni
viðhaldið með þeim hætti sem lýst er hér á eftir. Mjög erfið
umhverfisskilyrði kunna þó að stytta notkunartímann.
24

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Diese Anleitung auch für:

Versaflo v-200e

Inhaltsverzeichnis