Herunterladen Diese Seite drucken

Bosch Performance Line SX BDU3143 Originalbetriebsanleitung Seite 49

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für Performance Line SX BDU3143:

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 3
Byrjað að kynnast rafhjólinu
Mælt er með því að byrjað sé á því að kynnast rafhjólinu utan
fjölfarinna gatna.
Prófaðu mismunandi akstursstillingar. Byrjaðu á
akstursstillingu með minni stuðningi. Um leið og þér finnst þú
hafa náð góðum tökum á rafhjólinu getur þú byrjað að hjóla á
því í umferðinni.
Prófaðu drægi rafhjólsins við mismunandi skilyrði áður en þú
ferð að skipuleggja lengri og meira krefjandi ferðir.
Áhrif á drægi
Ekki er hægt að reikna drægið út nákvæmlega áður lagt er af
stað eða meðan á ferðinni stendur, þar sem ýmsir þættir
hafa áhrif á drægið.
Færa skal þessa þætti inn í drægishjálpina til að fá skýrari
mynd af því hvaða áhrif þeir hafa á drægið.
Skannaðu kóðann til þess að opna
drægishjálpina.
Góð umhirða rafhjólsins
Gæta skal að réttu notkunar- og geymsluhitastigi fyrir íhluti
rafhjólsins. Verja skal drifeininguna, hjólatölvuna og rafhlöðu
rafhjólsins fyrir mjög lágu eða mjög háu hitastigi (t.d. vegna
mikils sólskins án loftræstingar). Íhlutirnir (sérstaklega
rafhlaða rafhjólsins) geta orðið fyrir skemmdum vegna mjög
lágs eða mjög hás hitastigs.
Viðhald og þjónusta
Viðhald og þrif
Þegar skipt er um perur skal gæta þess að perurnar séu
samhæfar við Bosch-rafhjólskerfi af kynslóðinni the smart
system (fá má upplýsingar um þetta hjá söluaðila) og að
uppgefin spenna sé rétt. Nýju perurnar verða að vera með
sömu spennu og þær gömlu.
Aðeins má skipta íhlutum á drifeiningunni og öðrum íhlutum í
drifinu (t.d. framtannhjóli, festingu framtannhjóls, fótstigum,
sveifum) út fyrir varahluti sem eru af sömu gerð eða sem
framleiðandi rafhjólsins leyfir sérstaklega til notkunar á því.
Þannig er komið í veg fyrir að drifeiningin verði fyrir of miklu
álagi og skemmist.
Til að forðast skemmdir á ytra byrði drifeiningarinnar verður
að ganga úr skugga um að stigsveifarnar passi fyrir
drifeininguna áður en þær eru settar á.
Skal því til dæmis nota sveif af nákvæmlega sömu gerð þegar
skipt er um sveif eða snúa sér til söluaðila eða framleiðanda
rafhjólsins ef spurningar koma upp varðandi samhæfi.
Halda skal drifeiningunni hreinni og gæta þess að hún komist
ekki í snertingu við tærandi efni og eldsneyti, t.d. dísilolíu.
Sýna skal aðgát þegar drifeiningin er þrifin.
Ekki má þrífa neina hluta reiðhjólsins, þ.m.t. drifeininguna,
með því að dýfa þeim í vatn eða sprauta á þá vatni.
Láta skal skoða rafhjólið að minnsta kosti einu sinni á ári
(m.a. vélbúnað þess og hvort kerfishugbúnaður er í nýjustu
útgáfu).
Bosch eBike Systems
Láta skal viðurkenndan söluaðila reiðhjóla sjá um að
þjónusta rafhjólið og gera við það.
Notendaþjónusta og ráðleggingar um notkun
Ef óskað er upplýsinga um rafhjólið og hluta þess skal snúa
sér til viðurkennds söluaðila reiðhjóla.
Finna má samskiptaupplýsingar fyrir viðurkennda söluaðila
reiðhjóla á vefsíðunni www.bosch-ebike.com.
Nánari upplýsingar um hluta rafhjólsins og
virkni þeirra er að finna í Bosch eBike Help
Center.
Förgun og framleiðsluefni
Nálgast má upplýsingar um framleiðsluefni á eftirfarandi
vefslóð: www.bosch-ebike.com/en/material-compliance.
Ekki má fleygja rafhjólum og íhlutum þeirra með venjulegu
heimilissorpi!
Hægt er að skila tækinu til söluaðila ef hann býður upp á slíkt
eða ber lagaleg skylda til þess. Fara skal eftir gildandi lögum
og reglum hvað þetta varðar.
Skila skal drifeiningunni, hjólatölvunni ásamt
stjórnbúnaðinum, rafhlöðu rafhjólsins,
hraðaskynjaranum, aukabúnaði og umbúðum
til endurvinnslu með umhverfisvænum hætti.
Notandi skal sjálfur ganga úr skugga um að
persónuupplýsingum hafi verið eytt úr tækinu.
Ef hægt er að taka rafhlöður úr raftækinu án þess að
eyðileggja þær skal taka þær úr og skila þeim til sérstakrar
söfnunarstöðvar fyrir rafhlöður áður en tækinu er fargað.
Flokka verður úr sér gengin raftæki (samkvæmt
Evróputilskipun 2012/19/EU) og bilaðar eða úr
sér gengnar rafhlöður/hleðslurafhlöður
(samkvæmt Evróputilskipun 2006/66/EC)
sérstaklega og skila þeim til endurvinnslu með
umhverfisvænum hætti.
Með því að flokka raftækin sérstaklega er stuðlað að því að
hægt sé að meðhöndla þau og endurnýta hráefni með
viðeigandi hætti og vernda þannig heilsu manna og
umhverfið.
Breytingar áskildar.
Íslenska – 3
0 275 007 3D3 | (25.01.2024)

Werbung

loading