Herunterladen Diese Seite drucken

Bosch BRC3600 Originalbetriebsanleitung Seite 84

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für BRC3600:

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 5
Íslenska – 4
Teymingarhjálpin er sett í gang með því að ýta á hnappinn
fyrir teymingarhjálpina (9) og halda honum inni í meira en
1 sek. Það slokknar á hleðsluvísinum fyrir rafhlöðu
rafhjólsins (3) og hvítt ljós sem hreyfist í akstursátt gefur til
kynna að hjólið sé tilbúið til notkunar.
Til að virkja teymingarhjálpina verður að gera eitthvað af
eftirfarandi innan næstu 10 sek.:
– Ýttu rafhjólinu áfram.
– Ýttu rafhjólinu aftur á bak.
– Hallaðu rafhjólinu til hliðar.
Þegar búið er að virkja teymingarhjálpina byrjar drifið að ýta
hjólinu og hvítu strikin verða ljósblá á litinn.
Þegar hnappinum fyrir teymingarhjálp (9) er sleppt er gert
hlé á teymingarhjálpinni. Hægt er að gera teymingarhjálpina
virka aftur með því að ýta á hnappinn fyrir teymingarhjálp (9)
innan 10 sek.
Ef teymingarhjálpin er ekki gerð virk aftur innan 10 sek.
slekkur hún sjálfkrafa á sér.
Alltaf er slökkt á teymingarhjálpinni þegar
– afturhjólið læsist,
– ekki er hægt að hjóla yfir fyrirstöður,
– líkamshluti hindrar hreyfingu sveifarinnar á hjólinu,
– hindrun snýr sveifinni áfram,
– notandi stígur á fótstigin,
– ýtt er á hnappinn til að auka stuðning +/hjólaljós (10) eða
hnappinn til að kveikja/slökkva (2).
Teymingarhjálpin er með rennivörn, sem þýðir að jafnvel þótt
teymingarhjálpin sé notuð hemlar drifið í nokkrar sekúndur
til að koma í veg fyrir að hjólið renni aftur á bak og ýmist er
ekki hægt að ýta rafhjólinu aftur á bak eða þá einungis með
erfiðismunum.
Slökkt er á rennivörninni um leið og ýtt er á hnappinn til að
auka stuðning +/hjólaljós (10).
Virkni teymingarhjálparinnar fer eftir reglum í hverju landi
fyrir sig og getur hún því ýmist verið með öðrum hætti en lýst
er hér að ofan eða óvirk.
ABS – hemlalæsivörn (aukabúnaður)
Ef rafhjólið er búið ABS-kerfi frá Bosch sem tilheyrir
kynslóðinni the smart system kviknar á ABS-ljósinu (4)
þegar rafhjólið er sett í gang.
Þegar hjólað er af stað framkvæmir ABS-kerfið innri
virkniprófun og ABS-ljósið slokknar.
Þegar um villu er að ræða logar ABS-ljósið (4) og ljósið fyrir
stuðningsþrep (5) blikkar í appelsínugulum lit. Hægt er að
staðfesta villuna með valhnappinum (7) og slokknar þá á
blikkandi ljósinu fyrir stuðningsþrep (5). Á meðan ABS-ljósið
(4) logar er ABS-kerfið ekki virkt.
Nánari upplýsingar um ABS-kerfið og virkni þess er að finna í
notendahandbókinni fyrir ABS-kerfið.
Tengst við farsíma
Til þess að hægt sé að nota eftirfarandi eiginleika rafhjólsins
þarf farsíma með appinu eBike Flow.
Tengst er við appið með Bluetooth®.
Kveiktu á rafhjólinu án þess að hjóla af stað.
0 275 007 3RL | (21.02.2023)
Settu Bluetooth®-pörunina í gang með því að halda
hnappinum til að kveikja/slökkva (2) inni (> 3 sek.). Slepptu
hnappinum til að kveikja/slökkva (2) um leið og efsta strikið í
hleðsluvísinum fyrir rafhlöðu rafhjólsins (3) gefur pörun til
kynna með því að blikka í bláum lit.
Staðfestu fyrirspurnina um tengingu í appinu.
Virkniskráning
Til þess að skrá upplýsingar um virkni þarf að nýskrá sig eða
skrá sig inn í appinu eBike Flow.
Til þess að hægt sé að skrá upplýsingar um virkni þarftu að
samþykkja að staðsetningarupplýsingar séu vistaðar í
appinu. Þetta er nauðsynlegt til þess að hægt sé að skrá
virkni þína í appinu. Til þess að hægt sé að skrá
staðsetningarupplýsingar þarftu að vera skráð(ur) inn sem
notandi.
eBike Lock
Hægt er að virkja <eBike Lock> fyrir alla notendur með
appinu eBike Flow. Er þá vistaður lykill í farsímanum sem er
notaður til að taka rafhjólið úr lás.
Í eftirfarandi tilvikum er <eBike Lock> settur sjálfkrafa á:
– þegar slökkt er á rafhjólinu með stjórntölvunni
– þegar slökkt er sjálfkrafa á rafhjólinu
Rafhjólið er tekið úr lás þegar kveikt er á því og farsíminn er
tengdur við rafhjólið í gegnum Bluetooth®.
<eBike Lock> er bundinn við notandareikninginn þinn.
Ef þú týnir farsímanum þínum getur þú skráð þig inn með
appinu eBike Flow og notandareikningnum þínum í öðrum
farsíma til þess að taka rafhjólið úr lás.
Aðgát! Þegar valin er stilling í appinu sem hefur neikvæðar
afleiðingar fyrir <eBike Lock> (t.d. þegar rafhjólinu eða
notandareikningnum er eytt) eru birtar viðvaranir áður en
breytingin er staðfest. Lesa skal viðvaranirnar vandlega og
fara eftir þeim (t.d. áður en rafhjólinu eða
notandareikningnum er eytt).
<eBike Lock> settur upp
Til þess að hægt sé að setja <eBike Lock> upp þurfa
eftirfarandi skilyrði að vera uppfyllt:
– Appið eBike Flow hefur verið sett upp.
– Búið er að stofna notandareikning.
– Ekki er verið að setja upp uppfærslu á rafhjólinu.
– Rafhjólið er tengt við farsímann í gegnum Bluetooth®.
– Rafhjólið er kyrrstætt.
– Farsíminn er tengdur við internetið.
– Nægileg hleðsla er á rafhlöðu rafhjólsins og hleðslusnúran
er ekki tengd.
Hægt er að setja <eBike Lock> upp í appinu eBike Flow, í
valmyndaratriðinu Stillingar.
Héðan í frá er hægt að slökkva á stuðningi drifeiningarinnar
með því að kveikja á <eBike Lock> í appinu eBike Flow.
Ekki er hægt að gera stuðninginn virkan aftur nema að
farsíminn sé nálægt þegar kveikt er á rafhjólinu. Til þess þarf
að vera kveikt á Bluetooth® í farsímanum og appið eBike
Flow þarf að vera virkt í bakgrunni. Ekki þarf að opna appið
eBike Flow. Þegar <eBike Lock> er virkur er áfram hægt að
nota rafhjólið án stuðnings frá drifeiningunni.
Bosch eBike Systems

Werbung

loading