Herunterladen Diese Seite drucken

Bosch BRC3600 Originalbetriebsanleitung Seite 83

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für BRC3600:

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 5
Hleðsluvísir fyrir rafhlöðu rafhjóls
Í hleðsluvísinum fyrir rafhlöðu rafhjólsins (3) jafngildir hvert
ljósblátt strik 20% hleðslu og hvert hvítt strik 10% hleðslu.
Efsta strikið gefur til kynna hámarkshleðslu.
Dæmi: Sýnd eru fjögur ljósblá strik og eitt hvítt strik.
Hleðslan er á bilinu 81% til 90%.
Þegar lítil hleðsla er á rafhlöðunni breyta báðir neðri vísarnir
um lit:
Strik
2 × appelsínugul
1 × appelsínugult
1 × rautt
1 × rautt blikkandi
Á meðan verið er að hlaða rafhlöðu rafhjólsins blikkar efsta
strikið í hleðsluvísinum fyrir rafhlöðu rafhjólsins (3).
Einnig er hægt að sjá hleðslustöðuna á ljósdíóðunum á
rafhlöðu rafhjólsins.
Stuðningsþrep valið
Á stjórntölvunni eru hnappurinn til að minnka stuðning – (9)
og hnappurinn til að auka stuðning + (10) notaðir til að stilla
hversu mikinn stuðning drifið á að veita. Hægt er að breyta
stuðningsþrepinu hvenær sem er, líka á ferð, og er stillingin
gefin til kynna með litamerki.
Þrep
Upplýsingar
OFF
Slökkt er á stuðningi drifsins, hægt er að hjóla á
rafhjólinu eins og á venjulegu reiðhjóli með því
að stíga á fótstigin.
ECO
Virkur stuðningur með mestri skilvirkni, fyrir
hámarksdrægi
TOUR
Jafn stuðningur, fyrir ferðir með miklu drægi
TOUR+
Breytilegur stuðningur fyrir venjulegan og
sportlegan akstur
eMTB
Sem bestur stuðningur við allar aðstæður, tekið
sportlega af stað, betri kraftur, hámarksafköst
SPORT
Kraftmikill stuðningur fyrir sportlegan akstur í
hæðóttu landslagi og innanbæjar
TURBO
Hámarksstuðningur upp að miklum
snúningshraða sveifar, fyrir sportlegan akstur
AUTO
Stuðningurinn er lagaður sjálfkrafa að
akstursskilyrðum hverju sinni.
RACE
Hámarksstuðningur á brautum fyrir rafknúin
fjallahjól; mikil snerpa og „Extended Boost" fyrir
sem mest afköst í keppnum
CARGO
Jafn og kraftmikill stuðningur til að geta flutt
þunga byrði með öruggum hætti
SPRINT
Breytilegur stuðningur eftir snúningshraða
sveifar – fyrir sportlega notkun rafhjólsins á möl
og vegum með hröðum köflum og tíðum
brekkum
Bosch eBike Systems
Hleðsla
30% ... 21%
20% ... 11%
10% ... varahleðsla
Varahleðsla ... tóm
Athugaðu: Það hvaða stillingar eru í boði fer eftir
drifeiningunni hverju sinni.
Heiti og útfærslur á stuðningsþrepum geta verið forstillt hjá
framleiðanda og valin af söluaðila reiðhjólsins.
Stuðningsþrepum breytt
Hægt er að breyta stuðningsþrepunum innan vissra marka í
appinu eBike Flow. Þannig er hægt að laga rafhjólið að
þörfum notandans.
Ekki er hægt að búa til sína eigin stillingu frá grunni. Aðeins
er hægt að breyta þeim stillingum sem framleiðandi eða
söluaðili hafa leyft til notkunar í kerfinu. Um minna en fjórar
stillingar getur einnig verið að ræða.
Auk þess getur verið að ekki sé hægt að breyta stillingunum
vegna takmarkana sem gilda í þínu landi.
Hægt er að breyta eftirfarandi atriðum:
– Stuðningi í hlutfalli við grunngildi stillingar (innan
lagalegra marka)
– Snerpu drifsins
– Hraðalækkunarmörkum (innan lagalegra marka)
– Hámarkstogi (innan marka drifsins)
Athugaðu: Breytta stillingin heldur sömu stöðu, sama heiti
og sama lit á öllum hjólatölvum og stjórntækjum.
Samspil drifeiningar og gírskiptingar
Jafnvel þótt um rafhjól sé að ræða er gírskiptingin notuð með
sama hætti og á venjulegu reiðhjóli (sjá notendahandbók
rafhjólsins).
Óháð því um hvernig gírskiptingu er að ræða er mælt með því
að stíga léttar á fótstigin í stutta stund á meðan skipt er um
gír. Þannig verður auðveldara að skipta um gír og dregið er úr
sliti á aflrásinni.
Með því að setja í réttan gír er hægt að auka hraðann og
drægið án þess að leggja meira á sig.
Þess vegna skaltu fylgja ráðleggingunum um gírskiptingu sem
birtast í hjólatölvunni.
Kveikt/slökkt á ljósunum á hjólinu
Áður en hjólað er af stað skal ganga úr skugga um að ljósin á
hjólinu virki rétt.
Kveikt er á ljósunum á hjólinu með því að halda hnappinum
fyrir hjólaljós (10) inni í meira en 1 sek.
Með hnöppunum til að minnka birtustig (11) og auka
birtustig (12) er hægt að stjórna birtustigi ljósdíóðanna á
stjórntölvunni.
Kveikt og slökkt á teymingarhjálp
Teymingarhjálpin getur auðveldað þér að teyma rafhjólið.
Hraðinn fyrir teymingarhjálpina er að hámarki 4 km/h.
Forstillingin frá framleiðanda getur verið lægri og hægt er að
láta söluaðila reiðhjólsins breyta henni ef þess þarf.
Aðeins má nota teymingarhjálpina þegar rafhjólið er
u
teymt. Ef hjól rafhjólsins snerta ekki jörðu þegar
teymingarhjálpin er notuð skapast slysahætta.
Ef valinn er of hár gír getur drifeiningin hvorki hreyft
u
rafhjólið úr stað né virkjað rennivörnina.
Íslenska – 3
0 275 007 3RL | (21.02.2023)

Werbung

loading