Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

EINHELL HERKULES HSG 150 Bedienungsanleitung Seite 125

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 1
Anleitung_HSG_150_SPK7:_
5.3 Rafmagnstenging
Varúð! Áður en tækið er tekið til notkunar verður
að ganga úr skugga um að spenna rafrásarinnar
sem nota á sé sú sama og gefin er upp í
upplýsingarskilti tækisins.
Þetta tæki má einungis tengja við rafrás með
jarðtengingu og með nægilega vel einangruðum
tengingum.
5.4 Áfesting suðuvírsrúllu (mynd 1, 5, 6, 28-36)
Suðuvírsrúlla fylgir ekki með tækinu!
5.4.1 Suðuvírsgerðir
Suðvír verður að velja eftir mismunandi notkun tækis.
Í þetta suðutæki er hægt að nota suðuvír með
þykktunum 0,6 og 0,8 mm. Vírsþræðingar og stýringar
fylgja með tækinu. Vírsþræðingar og stýringar verða
ávallt að passa þeirri vírsþykkt sem notuð er.
5.4.2 Magn suðuvírs
Í þetta tæki er hægt að ísetja að hámarki 5kg af
suðuvír.
5.4.3 Suðuvírsrúlla ísett
Opnið hús suðutækisins (mynd 1/4)
Gangið úr skugga um að upprúllun suðuvírs sé í
lagi til þess að tryggja að suðuvírinn renni jafnt af
rúllunni.
Lýsing suðuvírsþræðingar (mynd 28-30)
A
Festing rúllu
B
Rúlluhaldari
C Stýripinni
D
Þrýstirúlluhaldari
E
Þrýstirúlla
F
Stilliskrúfa fyrir mótþrýsting
G Spenna
H Stýrirör
I
Stýring
J
Suðuvírsrúlla
K
Op suðuvírsrúllu
L
Drifhjól
M Tenging suðubarka
N Stilliskrúfa rúllubremsu
Suðurúlla ísett (myndir 28,29)
Leggið suðuvírsrúlluna (J) á rúlluhaldarann (B).
Passið að endi suðuvírsins sé á hlið
suðuvírsstýringarinnar, sjá ör.
Athugið að rúllufestingin (A) þrýstist inn og að
stýripinninn (C) sitji í opi (K) suðurúllunnar.
Rúllufestingin (A) verður að smella aftur yfir
suðurúlluna (J). (mynd 29)
11.06.2008
15:20 Uhr
Seite 125
Suðuvír þræddur og suðuvírsdrif stillt (myndir
30-36)
Losið spennuna (G), smellið upp
þrýstirúlluhaldara (D). (mynd 30)
Dragkið stýrirörið (H) til baka ef þörf er á. Sjá
merkingu (mynd 31)
Losið stýringuna (I) með því að snúa henni
rangsælis úr festingunni og dragið hana upp.
(mynd 32)
Yfirfarið drifhjólið (L). Á efri hluta drifhjóls (L)
verður að vera stillt á rétta þykkt suðuvírs.
Drifhjólið (L) er með 2 skinnum. Vírsdrifsrúllan (L)
er með 2 stýriskífum. Skiptið um vírsdrifsrúlluna
(L) eða snúið henni við ef þörf er á. (Mynd 33)
Setjið haldara vírsdrifs (I) aftur á sinn stað og
skrúfið hann fastann.
Rennið stýrirörinu (H) það langt, að það sé 5mm
frá þrýstirúllu og drifhjóli (E/L).
Fjarlægið suðuhausinn (mynd 5/12) af
suðuhaldfanginu (mynd 5/13) og skrúfið
snertirörið (mynd 6/26) af (mynd 5-6). Leggið
barkann (mynd 1/11) á gólfið, eins beint og hægt
er í áttina frá suðutækinu.
Klippið fyrstu 10 sentímetrana af þannig að endi
vírsins haf beinan skurð og sé laus við tjásur og
óhreinindi. Slípið enda suðuvírsins ef að hann er
ekki alveg hreint klipptur.
Smeygið suðuvírnum í gegnum stýrirörið (H), á
milli þrýsti- og vírsdrifsrúllu (E/L) og inn í
barkatenginguna (M). (mynd 34) Rennið nú
suðuvírnum varlega með hendinni inn í
suðubarkann þar til að vírinn standi um það bil
1cm út úr suðuhaldfanginu (mynd 5/13).
Losið um stilliskrúfu fyrir mótþrýsting (F) nokkra
snúninga. (mynd 36)
Smellið þrýstirúlluhaldara (D) aftur niður og festið
hann með fjöðrinni (G). Sé fjöðrin mjög stíf (G)
eða festingin, verður að losa um stilliskrúfuna (F).
(mynd 35)
Stillið nú stilliskrúfu fyrir mótþrýsting (F) þannig að
suðuvírinn sé fastur á milli þrýstirúllu (E) og
vírsdrifsrúllu (L) án þess að kremjast (mynd 36)
Notið rétt snertirör (mynd 6/26) fyrir þá þykkt
suðuvírs sem notaður er á suðuhaldfangið (mynd
5/13) og festið suðuhaus (mynd 5/12) með því að
skrúfa hann á hausinn réttsælis.
Stillið stilliskrúfu rúllubremsu (N) þannig að
suðuvírinn sé nægilega laus en þannig að
suðuvírsrúllan stöðvist sjálfkrafa eftir að
suðuvírsdrif er gert óvirkt.
IS
125

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Diese Anleitung auch für:

15.749.71

Inhaltsverzeichnis