Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Bosch CompactTube 400 Originalbetriebsanleitung Seite 99

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 15
CompactTube-rafhlaða (Axial) sett í (sjá mynd H)
❶ Til að setja CompactTube-rafhlöðuna (21) í skal snúa
innstungunni fyrir hleðsluklóna (5) upp og stinga
rafhlöðunni inn í stellið þar til hún smellur í lás í
höldunni (23). Gæta verður þess að rafhlaðan snúi
rétt.
❷ Ýttu rafhlöðunni að rafhlöðulásnum (2) þar til hún
smellur í lás í rafhlöðulásnum (2).
❸ Taktu síðan lykilinn (1) úr rafhlöðulásnum (2).
Þegar búið er að læsa skal alltaf taka lykilinn (1) úr
rafhlöðulásnum (2). Þannig er komið í veg fyrir að lykillinn
geti fallið úr eða að óviðkomandi aðilar geti tekið rafhlöðuna
úr rafhjólinu þegar því er lagt.
PowerPack-rafhlaða sett í og tekin úr (sjá mynd I)
Til þess að hægt sé að setja rafhlöðuna í má lykillinn (1) ekki
vera í rafhlöðulásnum (2).
❶ PowerPack-rafhlaðan (15) er sett í með því að setja
endann með tengjunum í neðri festinguna (16) á
rafhjólinu.
❷ Settu rafhlöðuna í efri festinguna (14) þannig að hún
smelli greinilega í lás.
Þegar búið er að læsa skal alltaf taka lykilinn (1) úr
rafhlöðulásnum (2). Þannig er komið í veg fyrir að lykillinn
geti fallið úr eða að óviðkomandi aðilar geti tekið rafhlöðuna
úr rafhjólinu þegar því er lagt.
❶ PowerPack-rafhlaðan (15) er tekin úr með því að
slökkva á henni og opna síðan rafhlöðulásinn (2) með
lyklinum (1).
❷ Færðu rafhlöðuna úr efri festingunni (14) og dragðu
hana úr neðri festingunni (16).
Bögglabera-rafhlaða sett í og tekin úr (sjá mynd J)
Til þess að hægt sé að setja rafhlöðuna í verður
rafhlöðulásinn (2) að vera læstur. Lykillinn (1) má ekki vera í
rafhlöðulásnum (2).
Rafhlaðan (27) er sett í með því að renna endanum með
tengjunum í festinguna (26) þannig að hún smelli greinilega í
lás.
Rafhlaðan (27) er tekin úr með því að slökkva á henni og
opna síðan rafhlöðulásinn með lyklinum (1) ❶.
Dragðu rafhlöðuna úr festingunni (26) ❷.
Notkun
Búnaðurinn tekinn í notkun
Notaðu eingöngu upprunalegar Bosch-rafhlöður fyrir
u
rafhjól sem tilheyra kynslóðinni the smart system og
framleiðandi leyfir til notkunar með rafhjólinu þínu.
Notkun á öðrum rafhlöðum fyrir rafhjól getur leitt til
meiðsla og eldhættu. Ef notaðar eru rafhlöður af annarri
gerð fellur ábyrgð Bosch úr gildi.
Kveikt/slökkt
Hægt er að kveikja á rafhjólinu með því að kveikja á
rafhlöðunni. Hvað þetta varðar skal lesa notendahandbók
Bosch eBike Systems
drifeiningarinnar og stjórnbúnaðarins og fara eftir því sem
þar kemur fram.
Áður en kveikt er á rafhlöðu rafhjólsins skal athuga hvort
rafhlöðulásinn (2) er læstur.
Kveikt er á rafhlöðu rafhjólsins með því að ýta á hnappinn til
að kveikja/slökkva (7). Ekki má nota beitta eða oddhvassa
hluti til að ýta á hnappinn.
Slökkt er á rafhlöðu rafhjólsins með því að ýta aftur á
hnappinn til að kveikja/slökkva (7). Er þá slökkt á rafhjólinu í
leiðinni.
Ef ekki er óskað eftir afli frá drifinu í 10 mínútur (t.d. vegna
þess að rafhjólið er kyrrstætt) og ekki er ýtt á hnapp á
hjólatölvunni eða stjórnbúnaðinum á rafhjólinu slekkur
rafhjólið sjálfkrafa á sér.
Rafhlöðustjórnkerfið „Battery Management System (BMS)"
ver rafhlöðu rafhjólsins gegn djúpafhleðslu, ofhleðslu,
ofhitnun og skammhlaupi. Þegar hætta er á ferðum slekkur
rafhlaðan sjálfkrafa á sér.
Upplýsingar um rétta meðferð rafhlöðunnar
Hægt er að láta rafhlöðu rafhjólsins endast lengur með því að
sinna umhirðu hennar vel og þá sérstaklega með því að
geyma hana við rétt hitastig.
Jafnvel þótt farið sé vel með rafhlöðuna munu afköst hennar
óhjákvæmilega minnka með tímanum.
Þegar umtalsvert skemmri tími líður á milli þess að rafhlaðan
tæmist er það merki um að hún sé úr sér gengin. Skal þá
skipta um rafhlöðu rafhjólsins.
Rafhlaðan hlaðin áður en hún er sett í geymslu og meðan
á geymslutíma stendur
Ef ekki á að nota rafhlöðuna í lengri tíma (> 3 mánuði) skal
sjá til þess að hleðslan á henni sé á bilinu 30% til 60% (tvær
til þrjár ljósdíóður á hleðsluvísinum (6) loga) á meðan hún er
í geymslu.
Athuga skal hleðsluna að sex mánuðum liðnum. Ef aðeins
logar ein ljósdíóða á hleðsluvísinum (6) skal hlaða
rafhlöðuna aftur þannig að hleðslan sé á bilinu 30% til 60%.
Athugaðu: Ef rafhlaðan tæmist og er geymd þannig í lengri
tíma getur hún orðið fyrir skemmdum þrátt fyrir litla
sjálfsafhleðslu og hleðslugetan getur minnkað til muna.
Ekki er mælt með því að hafa rafhlöðuna stöðugt í
hleðslutækinu.
Geymsluskilyrði
Helst skal geyma rafhlöðu rafhjólsins á þurrum og vel
loftræstum stað. Verja skal hana fyrir raka og vatni. Við
óhagstæð veðurskilyrði er t.d. mælt með því að taka
rafhlöðuna af rafhjólinu og geyma hana í lokuðu rými þar til
hún er notuð næst.
Íslenska – 5
Ef bilun greinist í rafhlöðu
rafhjólsins blikka tvær
ljósdíóður í hleðsluvísinum
(6). Snúa skal sér til
viðurkennds söluaðila
reiðhjóla vegna þessa.
0 275 007 3PX | (19.06.2023)

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis