Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Bosch CompactTube 400 Originalbetriebsanleitung Seite 100

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 15
Íslenska – 6
Ekki skal geyma rafhlöðu rafhjólsins á eftirfarandi stöðum:
– í herbergjum þar sem ekki er reykskynjari
– nálægt brennanlegum eða eldfimum hlutum
– nálægt hitagjöfum
– í lokuðum bíl (sérstaklega að sumarlagi)
– þar sem sól skín beint á hana
Til þess að tryggja sem bestan endingartíma rafhlöðunnar
skal geyma hana við herbergishita.
Forðast skal hitastig undir −10 °C eða yfir 60 °C.
Gætið þess að geymsluhitastig fari ekki yfir leyfileg mörk.
Mælt er með því að geyma rafhlöðuna ekki á rafhjólinu.
Viðbrögð við bilunum
Ekki má opna rafhlöðuna, ekki heldur til að gera við hana.
Hætta er á því að eldur komi upp í rafhlöðunni, t.d. vegna
skammhlaups. Þessi hætta er áfram fyrir hendi ef haldið er
áfram að nota rafhlöðu sem búið er að opna.
Ef rafhlaða rafhjólsins bilar skal því ekki láta gera við hana,
heldur skal láta söluaðila skipta henni út fyrir upprunalega
Bosch-rafhlöðu fyrir rafhjól sem tilheyrir kynslóðinni the
smart system.
Viðhald og þjónusta
Viðhald og þrif
Ekki má þrífa rafhlöðu rafhjólsins með því að dýfa
u
henni í vatn eða sprauta á hana vatni.
Halda skal rafhlöðu rafhjólsins hreinni og gæta þess að hún
komist ekki í snertingu við húðkrem, sólaráburð eða
skordýrafælur. Hreinsa skal hana varlega með rökum,
mjúkum klút.
Hreinsa skal tengin öðru hvoru og bera á þau dálítið af feiti.
Til þess skal nota vaselín sem ætlað er til notkunar í
lækningaskyni eða á vélar.
Ef rafhlaða rafhjólsins virkar ekki lengur skal snúa sér til
viðurkennds söluaðila reiðhjóla.
Notendaþjónusta og ráðleggingar um notkun
Ef spurningar koma upp varðandi rafhlöður skal snúa sér til
viðurkennds söluaðila reiðhjóla.
Skrá skal hjá sér framleiðanda og númer lykilsins (1).
u
Ef lyklar týnast skal snúa sér til viðurkennds söluaðila
reiðhjóla. Skal þá gefa upp framleiðanda og númer
lyklanna.
Finna má samskiptaupplýsingar fyrir viðurkennda söluaðila
reiðhjóla á vefsíðunni www.bosch-ebike.com.
Flutningur
Ef aka á með rafhjólið utan á bílnum, t.d. á
u
farangursgrind, skal fjarlægja hjólatölvuna og
rafhlöðu reiðhjólsins (nema um sé að ræða fasta
innbyggða rafhlöðu) til að forðast skemmdir.
Rafhlöður fyrir rafhjól falla undir lagakröfur um hættulegan
farm. Einstaklingar mega flytja óskemmdar rafhlöður rafhjóla
á vegum án þess að gerðar séu sérstakar kröfur.
0 275 007 3PX | (19.06.2023)
Þegar um er að ræða flutning af hálfu rekstraraðila eða þriðju
aðila (t.d. flugfraktar eða hraðflutningaþjónustu) þarf að
uppfylla sérstakar kröfur varðandi umbúðir og merkingar
(t.d. samkvæmt reglum ADR-samingsins um
millilandaflutninga á hættulegum farmi á vegum). Ef þörf
krefur er hægt að leita til sérfræðings á sviði hættulegs farms
við frágang pakkans.
Ekki skal senda rafhlöður rafhjóla nema að ytra byrði þeirra
sé óskemmt og að þær séu nothæfar. Við flutninginn skal
nota upprunalegu Bosch-umbúðirnar fyrir viðkomandi
rafhlöðu. Setja skal límband yfir óvarin tengi og pakka
rafhlöðunni þannig inn að hún geti ekki hreyfst til í
umbúðunum. Láta skal flutningafyrirtækið vita af því að um
hættulegan farm sé að ræða. Athugaðu einnig að frekari
reglur kunna að eiga við í hverju landi fyrir sig.
Ef spurningar koma upp varðandi flutning á rafhlöðunni skal
snúa sér til viðurkennds söluaðila reiðhjóla. Hjá söluaðilanum
er einnig hægt að panta viðeigandi umbúðir fyrir flutning.
Förgun og framleiðsluefni
Nálgast má upplýsingar um framleiðsluefni á eftirfarandi
vefslóð: www.bosch-ebike.com/en/material-compliance.
Skila skal rafhlöðu rafhjólsins, aukabúnaði og
umbúðum til endurvinnslu með
umhverfisvænum hætti.
Ekki má fleygja rafhlöðum rafhjóla með venjulegu
heimilissorpi!
Áður en rafhlöðum rafhjóla er fleygt skal setja límband yfir
tengi þeirra.
Skila má gömlum eða biluðum rafhlöðum rafhjóla til
viðkomandi söluaðila án endurgjalds og mun söluaðilinn þá
sjá um að skila þeim til endurvinnslu. Geyma skal bilaðar
rafhlöður rafhjóla á öruggum stað utandyra og gera söluaðila
viðvart. Ef rafhlöður rafhjóla eru mikið skemmdar má ekki
taka um þær með berum höndum, þar sem rafvökvi getur
lekið úr þeim og valdið ertingu í húð.
Flokka verður úr sér gengin raftæki (samkvæmt
Evróputilskipun 2012/19/EU) og bilaðar eða úr
sér gengnar rafhlöður/hleðslurafhlöður
(samkvæmt Evróputilskipun 2006/66/EC)
sérstaklega og skila þeim til endurvinnslu með
umhverfisvænum hætti.
Litíumjónarafhlöður:
Sjá upplýsingar í kaflanum "Flutningur" (sjá
„Flutningur", Bls. Íslenska – 6).
Skila skal úr sér gengnum rafhlöðum fyrir rafhjól til
viðurkennds söluaðila reiðhjóla.
Breytingar áskildar.
Bosch eBike Systems

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis