Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

IKEA TINAD RÅKALL Bedienungsanleitung Seite 72

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 25
ÍSLENSKA
nærri hitagjafa og að fæturnir fjórir séu
stöðugir og hvíli á gólfinu. Stillið þá eftir
þörfum og tryggið að tækið sé fullkomlega
afrétt með hallamæli. Bíðið í a.m.k. tvær
klukkustundir áður en kveikt er á tækinu til
að tryggja að kælirásin virki sem skyldi.
VIÐVÖRUN!: Gangið úr skugga um
að rafmagnssnúran klemmist ekki eða
skemmist þegar verið er að staðsetja
tækið.
VIÐVÖRUN!: Til að forðast hættu
vegna óstöðugleika skal koma tækinu fyrir
eða festa það samkvæmt leiðbeiningum
framleiðandans. Bannað er að koma
ísskápnum fyrir þannig að málmpípa
gashelluborðs, málmleiðslur gass eða
vatns eða rafsnúrur komist í snertingu við
bakhluta ísskápsins (vafning eimsvala).
Öll mál og fjarlægðir sem eiga við um
uppsetningu tækisins eru í leiðbeiningum
um uppsetningu.
Áður en tækið er tengt við rafmagn skal við
uppsetningu fjarlægja rafmagnssnúruna
frá krók eimsvala.
VIÐVARANIR VEGNA RAFMAGNS
Nauðsynlegt er að hægt sé að aftengja
tækið frá rafmagni með því að taka það
úr sambandi ef innstungan er aðgengileg
eða með fjölskautarofa sem settur er upp
fyrir framan innstunguna í samræmi við
tengingarreglur. Jarðtengja skal tækið
í samræmi við landsbundna staðla um
raföryggi.
Notið ekki framlengingartengi, fjöltengi
eða millistykki. Rafrænir íhlutir mega
ekki vera aðgengilegri fyrir notanda
eftir uppsetningu. Notaðu helluborðið
ekki blaut(ur) eða berfætt(ur). Notið
helluborðið ekki ef rafmagnssnúra þess
eða kló er skemmd, ef helluborðið virkar
ekki sem skyldi, hefur skemmst eða verið
misst í gólfið.
Ef rafmagnssnúran er skemmd verður
að skipta henni út með eins snúru frá
framleiðandanum, umboðsaðila hans eða
álíka hæfum aðilum til að forðast áhættu -
hætta á raflosti.
VIÐVÖRUN!: Staðsetjið ekki margar
framlengingarsnúrur eða færanlega
aflgjafa fyrir aftan tækið.
HREINSUN OG VIÐHALD
VIÐVÖRUN!: Gangið úr skugga um
að slökkt sé á tækinu og það sé aftengt
frá rafmagni áður viðhaldsaðgerðir eru
framkvæmdar. Notið hlífðarhanska til
að forðast meiðsli (hætta á skurðsárum)
og öryggisskó (hætta á því að merjast);
meðhöndlun skal framkvæmd af tveimur
einstaklingum (minnkað álag); notið
aldrei gufuhreinsibúnað (hætta á raflosti).
Viðgerðir ófaglærðra aðila sem eru ekki
viðurkenndir af framleiðandanum geta
stefnt heilsu og öryggi í hættu, sem
framleiðandinn er ekki ábyrgur fyrir. Allir
gallar eða skemmdir af völdum viðgerða
eða viðhalds ófaglærðra aðila falla ekki
undir ábyrgð. Ábyrgðarskilmálarnir eru
útlistaðir í skjalinu sem fylgir einingunni.
Notið ekki slípandi eða sterk hreinsiefni
s.s. gluggaúða, ræstiefni, eldfima vökva,
hreinsivax, sterk þvottaefni, bleikingarefni
eða hreinsiefni sem innihalda jarðolíu á
plasthluta, innviði eða þéttilista dyra. Notið
ekki pappírsþurrkur, ræstipúða eða önnur
gróf hreinsunartól.
72

Quicklinks ausblenden:

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Diese Anleitung auch für:

Aa-2261142-2

Inhaltsverzeichnis