Tilætluð notkun
Þetta tæki er kaffivél. Það er ætlað til heimanota og verður að nota í samræmi við
leiðbeiningar þessar. Önnur notkun telst óviðeigandi. Notkun á tæki þessu með öðrum
hætti en hér er mælt fyrir um getur valdið slysum á fólki og ógilt ábyrgðina.
Leiðbeiningar um förgun
Tækið er framleitt úr endurvinnanlegum hágæðaefnum. Fargið því með því að fara
með það á viðeigandi móttökustöð.Hafi verið ákveðið að farga tækinu skal taka það úr
sambandi. Skerið svo á rafmagnssnúruna eins nálægt tækinu og kostur er.
Förgun tækisins skal fara að tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2002/96/EB og
gildandi lögum og reglugerðum. Ekki skal fleygja því með öðru óflokkuðu heimilissorpi.
Farið með tækið á viðeigandi móttökustöð fyrir förgun úrgangs eða skilið því til söluaðila.
Þetta dregur úr skaðlegum áhrifum á umhverfið og heilsu fólks og gerir endurvinnslu
á efni tækisins mögulega. Myndin með yfirstrikuðu ruslatunnunni merkir að farga eigi
tækinu með því að fara með það á sérstaka móttökustöð. Viðurlög eru gegn brotum
á reglum þar að lútandi. Umbúðir tækisins eru úr endurvinnanlegum efnum. Hafðu
samband við grenndarstöð þína til að fá nánari upplýsingar um lög og reglur þessu
aðlútandi.
48