Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Öryggisleiðbeiningar - C3 Perkolator Basic Bedienungsanleitung

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen

Verfügbare Sprachen

Öryggisleiðbeiningar
Mikilvægt er að fara að þessum öryggisleiðbeiningum til að koma í veg fyrir slys á fólki og
að tækið skemmist. Lesið einnig handbókina áður en tækið er notað. Geymið handbókina
til seinni nota.
Notið ekki tækið ef það er skemmt. Slökkvið á tækinu og takið það úr sambandi við fyrstu
vísbendingu um skemmd, óeðlilegt hljóð eða lykt. Í slíkum tilvikum skal hafa samband við
viðurkenndan þjónustuaðila.
Notið ekki tækið ef rafmagnsnúran er skemmd. Skemmda rafmagnssnúru verður alltaf að
skipta um: Hafðu samband við viðurkenndan þjónustuaðila. Annars er hætta á raflosti.
Látið rafmagnssnúruna ekki liggja nærri heitum hlutum eða yfirborði, skörpum brúnum
eða öðrum skörpum hlutum. Látið hana ekki snerta heitt yfirborð kaffivélarinnar. Látið
snúruna ekki hanga niður af borðbrún. Gangið frá snúrunni þannig að ekki sé hætta á að
detta um hana.
Þegar tækið er tekið úr sambandi skal toga í klóna, ekki snúruna. Annars getur klóin eða
snúran skemmst, sem eykur hættu á raflosti.
Tengið tækið aðeins við rafmagnsinnstungur sem samræmast lögum og reglum. Gangið
úr skugga um að spenna rafmagnsinnstungunnar sé í samræmi við spennuna sem gefin er
upp á upplýsingaplötunni á botni tækisins.
Hafið tækið á sléttu og hitaþolnu yfirborði til að draga úr eldhættu. Setjið það ekki nálægt
borðbrún eða á heitt yfirborð, eldavélarhellur eða þvíumlíkt.
Notið og geymið tækið aðeins innandyra.
Snertið ekki heitt yfirborð kaffivélarinnar á meðan eða eftir að hún lagar kaffi.
Leyfið ekki börnum eða einstaklingum með skerta andlega, líkamlega eða skynjunarlega
hæfni eða ónæga reynslu og/eða hæfni að nota tækið nema undir nánu eftirliti og
leiðsögn þess einstaklings sem ber ábyrgð á öryggi þeirra.
Börn verða að vera undir eftirliti til að koma í veg fyrir að þau leiki sér með tækið.
Fjarlægið aldrei íhluti tækisins. Stingið ekki neinu í opin. Það gæti valdið raflosti! Aðeins
viðurkenndur þjónustuaðili má framkvæma hvers kyns aðgerð á tækinu sem er ekki lýst og
mælt með í þessum notkunarleiðbeiningum.
Hreinsið tækið vel og reglulega. Sé það ekki gert kunna að safnast upp óhreinindi sem
geta verið skaðleg heilsu fólks. Takið tækið úr sambandi og leyfið því að kólna áður en
það er hreinsað.
Afkalkið vélina reglulega eða eins og þörf er á í samræmi við leiðbeiningarnar sem fylgja.
Sé það ekki gert kann tækið að skemmast og verða skaðlegt heilsu þinni.
Gangið úr skugga um að rafhlutir, kló og snúran séu þurr.
Setjið aldrei tækið í vatn. Verjið það fyrir öllum úða og lekandi vatni. Komist rafmagn í
snertingu við vatn getur það valdið raflosti.
Takið tækið alltaf úr sambandi eftir notkun.
VIÐVÖRUN: Kalmyndun getur valdið skemmdum eða bilun tækisins. Afkalkið tækið
reglulega (á aðallega við utan Íslands). Sé tækið ekki afkalkað getur það fellt ábyrgðina
úr gildi.
47

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis