Ábyrgðarskilmálar
Kæri viðskiptavinur,
Til hamingju með kaup þessarar vöru.
Í þessum hluta er að finna gagnlegar upplýsingar varðandi ábyrgð vörunnar.
Vinsamlegast lestu þessar upplýsingar vel. Tækið er hannað og framleitt með bestu tækni
sem völ er á. Komi hins vegar í ljós gallar eða vélin bilar, láttu þá vinsamlegast söluaðilann
vita. Hann veitir þér nauðsynlegar upplýsingar svo þú getir haft samband við næstu
þjónustumiðstöð.
Gildistími og gildi ábyrgðar
Í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 1999/44/EB frá 25. maí 1999 um
tiltekna þætti í sölu neysluvara og ábyrgð þar að lútandi er gildistími ábyrgðar tækisins
24 mánuðir frá söludegi í öllum Evrópulöndum. Til að nýta ábyrgðina þarft þú að greina
söluaðilanum frá gallanum skriflega innan tveggja mánaða frá því að gallinn uppgötvast.
Utan Evrópu gildir ábyrgðin í samræmi við gildandi lög og reglur í viðkomandi landi.
Ábyrgðin gildir aðeins gegn framvísun kvittunar/sölureiknings sem sýnir söludag, nafn
söluaðila, gerð tækisins og raðnúmer hans.
Áður en þú hefur samband við söluaðilann skalt þú hafa lesið vel
notkunarleiðbeiningarnar sem fylgja tækinu.
Viðgerðir innan ábyrgðar eru kaupanda að kostnaðarlausu, þ.m.t. kostnaður af vinnu
og varahlutum á gildistíma hennar frá og með söludegi samkvæmt kvittun/sölureikningi
sem söluaðilinn framvísar. Kaupandi ber kostnað og ábyrgð á áhættu vegna flutnings.
Vinsamlegast athugið hvort varan hentar til notkunar í landinu þar sem ætlunin er að nota
hana. Framleiðandinn ber ekki ábyrgð á hvers kyns beinum og/eða óbeinum skaða á fólki,
dýrum og/eða hlutum sökum þess að ekki er farið að þeim öryggisreglum sem lýst er í
notkunarleiðbeiningunum.
Takmarkað gildissvið ábyrgðar
Ábyrgðin gildir ekki þegar um er að ræða ranga notkun vörunnar eða notkun sem
samrýmist ekki notkunarleiðbeiningunum.
Enn fremur gildir ábyrgðin ekki ef: 1) kvittunin/sölureikningurinn er falsaður eða hefur
verið gerður ólæs að hluta eða í heild; 2) annar en viðurkenndur aðili hefur gert við, átt
við og/eða breytt vörunni; 3) varan hefur verið notuð á vinnustað; 4) varan hefur skemmst
í flutningum; 5) AÐRIR en upprunalegir varahlutir hafa verið notaðir; 6) ekki er um að ræða
framleiðslugalla eða villu í framleiðslu.
Ábyrgðin gildir aldrei um: 1) slit íhluta vörunnar vegna eðlilegrar notkunar (fjarlægjanlegir
hlutir, gljábrenndir hlutir eða önnur einnota efni sem fylgja vörunni); 2) viðhald sem getið
er um í notkunarleiðbeiningum; 3) hvers kyns skemmdir vegna ytri þátta (eldinga, flóða,
elds eða annarra atburða sem framleiðandi er ekki gjaldkræfur vegna). Gildi ábyrgðin
ekki af einhverri af ofangreindum ástæðum skal viðskiptavinurinn bera kostnað af skoðun,
viðgerð og flutningi vörunnar.
46