Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

3M PELTOR Optime PUSH TO LISTEN MT155H530A 380 Gebrauchsanleitung Seite 40

Gehörschutz
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 13
IS
3M™ PELTOR™ OPTIME™ PUSH TO LISTEN
MT155H530A 380
ÆTLUÐ NOTKUN
Þessum 3M™ PELTOR™ eyrnahlífum er ætlað að veita
starfsmönnum vernd gegn hættulega háværum hávaða
en geta heyrt umhverfishljóð með innbyggðum Push to
listen (ýta og hlusta) búnaði. Gert er ráð fyrir því að allir
notendur lesi og skilji meðfylgjandi leiðbeiningar notenda
ásamt því að kunna að nota tækið.
MIKILVÆGT
Lestu vinsamlegast, gerðu þér grein fyrir öllum
öryggisupplýsingum í leiðbeiningum þessum og farðu eftir
þeim áður en þú tekur heyrnartólin í notkun. Geymdu
leiðbeiningarnar til þess að geta leitað í þær síðar. Hafðu
samband við tæknideild 3M (samskiptaupplýsingar er að
finna á öftustu síðu).
!
VIÐVÖRUN
Heyrnarhlífarnar draga úr hættu á heilsutjóni vegna
hávaða og annarra háværra hljóða. Séu heyrnarhlífar
notaðar rangt eða notkun þeirra sleppt þann tíma sem
dvalist er í hættulegum hávaða, getur það leitt til
heyrnarskerðingar eða -taps. Ræddu við verkstjóra,
kynntu þér leiðbeiningar notenda eða hafðu samband við
tæknideild 3M til þess að kynna þér rétta notkun. Ef þér
finnst eins og þú sért með bómull í eyrunum eða heyrir
són eða suð í eða eftir hávaða (byssuskot meðtalin), eða
ef þú hefur einhverja aðra ástæðu til að ætla að þú glímir
við heyrnarvanda, skaltu yfirgefa hávaðasama umhverfið
umsvifalaust og hafa samband við lækni og/eða
verkstjóra þinn.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það
leitt til alvarlegs líkamstjóns eða dauða:
• Notaðu ekki búnaðinn í mögulega sprengifimu
umhverfi til að draga úr hættu á því að sprenging verði.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það
dregið úr verndargetu heyrnarhlífanna og jafnvel leitt
til heyrnartjóns:
a. Rannsóknir benda til þess að hjá mörgum notendum
sé hljóðeinangrun minni en hljóðdeyfingartöflur á
umbúðum gefa til kynna vegna frávika við að fella
hlífarnar að hverjum notanda fyrir sig og færni hans og
hvatningu til þess. Kynntu þér viðeigandi reglur um
leiðbeiningar um aðlögun gilda á merkimiða og mat á
hljóðdeyfingu. 3M mælir auk þess eindregið með því að
kanna hvort heyrnarhlífar passa.
b. Gættu þess að réttar heyrnarhlífar séu valdar, þeim
komið fyrir, þær aðfelldar og haldið við. Sé búnaðinum
komið fyrir á ófullnægjandi hátt, dregur það úr getu hans
til þess að deyfa hávaða. Kynntu þér meðfylgjandi
upplýsingar um rétta notkun.
c. Skoðaðu heyrnarhlífarnar fyrir hverja notkun. Séu þær
skemmdar, veldu þér óskaddaðar heyrnarhlífar eða
forðastu hávaðasamt umhverfi.
d. Sé nauðsynlegt að bæta við frekari persónuhlífum
(t.d. öryggisgleraugum, öndunargrímum o.s.frv.), ber að
velja sveigjanlegar og þunnar teygjur eða bönd til þess
að þau hafi sem minnst áhrif á heyrnarhlífapúðana.
Fjarlægðu allt annað (t.d. hár, húfur, skartgripi, heyrnartól,
hreinlætishlífar o.s.frv.) sem gæti dregið úr
einangrunargildi eyrnahlífapúðanna og verndargildi
hlífanna.
e. Ekki beygja eða breyta lögun höfuðspöng eða
hálsspöng og gættu þess að hún sé nógu öflug til þess
að halda heyrnarhlífunum tryggilega á sínum stað.
f. Eyrnahlífar og einkum þó eyrnapúðar geta orðið
lélegir með tímanum og þá þarf að skoða með reglulegu
millibili í leit að t.d. sprungum og hljóðleka. Séu
heyrnarhlífapúðarnir notaðir reglulega, ber að skipta um
þá og frauðhringina að minnsta kosti tvisvar á ári til þess
að viðhalda fullnægjandi vernd, hreinlæti og þægindum.
g. Sé ekki farið eftir ofangreindum kröfum, skerðir það
verndareiginleika eyrnahlífanna verulega.
EN 352 Öryggisyfirlýsingar:
• Ákveðin efnafræðileg efni geta valdið tjóni á vöru
þessari. Nánari upplýsingar má fá hjá framleiðanda.
• Þessar heyrnarhlífar eru í stærðinni stórar.
Eyrnahlífar sem uppfylla kröfur EN 352-1 eru í „millistærð"
eða „lítilli stærð" eða „stórri stærð". Eyrnahlífar í
„millistærð" henta meirihluta notenda. Eyrnahlífar í „lítilli
stærð" eða „stórri stærð" eru hannaðar fyrir notendur sem
ekki geta notað millistærð af eyrnahlífum.
• Þessar eyrnahlífar fyrir hjálma eru í „lítilli stærð" eða
„stórri stærð" (eftir því sem við á). Eyrnahlífar fyrir hjálma
sem uppfylla kröfur EN 352-3 eru í „millistærð" eða „lítilli
stærð" eða „stórri stærð". Eyrnahlífar í „millistærð" fyrir
hjálma henta meirihluta notenda. Eyrnahlífar í „lítilli
stærð" eða „stórri stærð" fyrir hjálma eru hannaðar fyrir
notendur sem ekki geta notað eyrnahlífar af millistærð.
ATHUGASEMD
• Þegar heyrnarhlífarnar eru notaðar í samræmi við
leiðbeiningar notenda, draga þær bæði úr stöðugum
hávaða, svo sem í iðnaði eða frá ökutækjum og
flugvélum, og skyndilegum hávaða, til dæmis
byssuskotum. Erfitt er að segja fyrir um þá heyrnarvernd
sem þörf er á eða í raun er veitt hvað varðar váhrif af
skyndilegum hávaða. Það hefur áhrif á vernd gegn
hávaða frá byssuskotum um hvaða tegund vopns er
að ræða, hve mörgum skotum er hleypt af, hvaða
heyrnarhlífar eru valdar, hvernig þær passa og eru
notaðar, hvernig um þær er annast og fleira. Kynntu þér
betur heyrnarvernd gegn skyndilegum hávaða á
vefsíðunni www.3M.com/hearing.
37

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis