Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

BESAFE iZi Twist i-Size Bedienungsanleitung Seite 77

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 14
158
Undirbúningur
• Stillanlegur höfuðpúði
• Axlaólar (2x)
• Sætispúðar
• Beltissylgja
• Hliðarstuðningur
• Miðjustilling
• Stillingarhandfang
• Handfang til að losa höfuðpúða
• Hallamál
• Gólfstuðningur
• Stöðuvísir hæðarstuðningsins
• Hæðarstilling gólfstuðnings
• Sleppihandfang
• Hnappur fyrir ISOfix tengi (2x)
• ISOfix tengi (2x)
• Hnappur til að losa ISOfix
• ISOfix vísir (2x)
• ISOfix bílfesting (2x)
Uppsetning
1. Þegar stóllinn er settur upp í aftursæti bílsins skal ýta framsætinu
eins langt fram og hægt er og stilla sætisbakið í upprétta stöðu (ef
hægt er að stilla það).
2. Hafið sætisbakið í uppréttri stöðu þegar stóllinn er festur í framsæti.
3. Leggðu bílnum á láréttan flöt þegar stóllinn er settur í hann.
4. Gólfstuðningur stólastöðvarinnar fellur niður þegar stólastöðinni er
lyft. Gerið þetta fyrir utan ökutækið.
5. Ýttu niður hnappnum fyrir ISO-fix festingarnar á báðum hliðum til að
losa ISO-fix festingarnar. (2)
6. Komdu stólastöðinni fyrir í sæti bílsins. ISO-fix festingar stólsins eiga
að smella utan um ISO-fix festingu bílsins. Gakktu úr skugga um að
báðar ISO-fix merkingarnar á stólastöðinni séu grænar. (3)
7. Ýttu stólnum upp að baki bílsætisins þar til hann snertir það. (4)
8. ISO-fix festingarnar veita mótstöðu þegar þeim er rennt inn, í ystu
stöðunum, áður en þær tengjast við ISO-fix tengingarnar í bílnum.
9. Ráð: þegar ISO-fix festingarnar eru festar er hægt að snúa stólnum í
átt að bíldyrunum til að sjá uppsetningarskjáinn betur
10. Fjarlægðu gulu hettuna af gólfstuðningnum. Stilltu gólfstuðninginn
þannig að hann nemi við gólf bílsins. (5)
(1a)
(1b)
(1c)
(1d)
(1e)
(1f)
(1g)
(1h)
(1i)
(1j)
(1k)
(1l)
(1m)
(1n)
(1o)
(1p)
(1q)
(1r)
11. Hæðarvísir gólfstuðningsins bendir á grænt þegar uppsetningin er
rétt. (5)
12. Lyftu stólastöðinni að framan (nálægt hallamálinu) og lengdu
gólfstuðninginn þar til dropi hallamálsins er í miðjunni og sýnir að
stöðin sé í láréttri stöðu. (5)
13. Ráð: settu annan fótinn á neðri enda gólfstuðningsins á meðan þú
lyftir stólastöðinni til að auðvelda að stilla lengdina fyrir þetta skref.
14. Viðvörunarhljóðið hættir þegar gólfstuðningsvísarnir benda á grænt
og gólfstuðningurinn nemur við gólfið. Gakktu úr skugga um að
hallamálið sýni að stóllinn sé í láréttri stöðu. (5)
15. Þegar bilstóllinn er settur upp bakvísandi í aftursætinu er mælt
með því að stilla framsæti bílsins þannig að það sé nálægt því að
snerta barnabílstólinn. Gakktu úr skugga um að enn sé hægt að
snúa bílstólnum hindrunarlaust. Þegar bilstóllinn er settur upp
bakvísandi í framsætinu er mælt með því að stilla framsætið þannig
að mælaborðið sé nálægt því að snerta barnabílstólinn. Gakktu úr
skugga um að enn sé hægt að snúa bílstólnum hindrunarlaust.
16. Stóllinn er afhentur með auka hliðarhöggsvernd (SIP+) sem má
fjarlægja. Hana á að nota hurðarmegin á stólnum. Hægt er að tengja
hana með raufunum á milli sætisskeljarinnar og efnisins. Stóllinn er
með mikla innbyggða höggvernd en þessi eykur hana enn frekar. (Er
ekki á öllum tegundum) (6)
17. Ráð: Svo að hliðarhöggverndin (SIP+) sé í sem ákjósanlegastri
hæð skaltu hafa hana á milli upphleyptu punktanna tveggja á hlið
sætisskeljarinnar.
18. Ekki nota auka hliðarhöggvernd (SIP+) á stólinn ef bilið á milli stóls
og bílhurðar er of lítið. Ástæðan fyrir of litlu bili getur verið að stóllinn
sé rangt festur í bílinn. Skoðið festingar því vel. (6)
159

Quicklinks ausblenden:

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis