Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

REV HFGT400ABWM Montage- Und Bedienungsanleitung Seite 32

Halogenfluter 150/500w ip44 mit bewegungsmelder
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 1
IS
TÆKNILEGAR UPPLýSINGAR
• Geta:
• Spenna:
• Tegund varnar:
• Skynjunarhorn:
• Hægt er að stilla lóðrétt 60° og lárétt 90°
• Langdrægi:
• Rofatími:
• Ljósdeyfirofi:
• Ljósabúnaður til skiptingar:
R7S
TIL AÐ KOMA LJÓSABÚNAÐINUM FYRIR
• Losa skal skrúfuna á efri hlið flóðljóssins og smella hlífðarglerinu fram.
• Taktu ljósabúnaðinn úr umbúðunum.
• Gættu þess að snerta ekki ljósabúnaðinn með berum höndum því þá verða eftir
fitublettir sem geta leitt til ofhitnunar. Nota skal hreinan og þurran klút sem skilur ekki
eftir ló.
• Setja skal annan enda ljósabúnaðarins í perustæðið. Ýttu á hann og settu síðan hinn
endann í perustæðið. Gættu þess að perustæðið bogni ekki.
• Lokaðu síðan glerhlífinni og festu skrúfuna aftur.
UPPSETNING
Einungis þjálfaðir fagaðilar mega sjá um uppsetninguna samkvæmt gildandi reglum um
hana. Hafðu því samband við viðurkennd rafmagnsfyrirtæki.
VIÐVÖRUN!! Áður en búnaðurinn er settur upp verður að rjúfa rafstrauminn að snúrunni og
útiloka að straumur sé settur aftur á.
• Losa skal skrúfurnar á hliðum hlífarinnar og fjarlægja arminn sem hún er fest við.
• Koma skal festingararminum fyrir á heppilegu yfirborði. Uppfylla skal kröfur um
uppsetningarflöt sem gefnar eru upp í kaflanum „Almennar öryggisupplýsingar" (sjá
1-4).
• Settu flóðljóshlífina aftur á festingararminn en festu skrúfurnar aðeins lauslega.
• Losa skal skrúfurnar á bakhlið tengiboxins og fjarlægja hlífina.
• Fjarlægðu snittaða stút snúruopsins og ýttu honum á rafmagnssnúruna – skrúfgangur
snittaða stútsins verður að vísa að snúruendanum.
• Losa skal skrúfur snúrufestingarinnar og fjarlægja hana.
• Ýttu núna einnig þéttingunni fyrir snittaða stútinn á snúruna og stingdu henni í opið
á tengiboxinu. Gættu þess að þéttingin sitji rétt í opinu. Ef rafmagnssnúran er of mjó
verður að þétta um opið með aukaráðstöfunum.
• Gakktu frá leiðslum samkvæmt mynd 5/mynd 6.
• Skrúfaðu snittaða stútinn aftur fastan í opinu, settu snúrufestinguna á og festu
skrúfurnar.
• Settu hlíf tengiboxins aftur á og festu skrúfurnar alveg.
62
HFGT120ABWM
max. 150W, 110°
HFGT400ABWM
max. 500W, 180°
230V~, 50Hz
IP44
110°/180°
hám. 12m
u.þ.b. 8 sekúndur - u.þ.b. 12 mínútur
hægt að stilla frá björtu yfir í dimmt
Vörunr. 0599940555/120W
Vörunr. 0599950555/400W
TIL AÐ STILLA LýSINGARÁTT
• Losaðu skrúfurnar á hliðum festingararmsins, stilltu síðan lýsingarátt flóðljóssins eftir
óskum og festu svo skrúfurnar aftur.
TIL AÐ STILLA HREYFISKYNJARANN
• Snúa skal báðum stjórnskífum til vinstri eins langt og hægt er (T). Kastljósið lýsir í u.þ.b.
1 mínútu og svo slokknar á því.
• Gakktu um flöt skynjunarsviðsins. Þegar farið er af svæðinu slokknar eftir svolítinn tíma á
halógenflóðljósinu og þegar farið er á skynjunarsvæðið kviknar aftur á því.
• Hægt er að stilla ljósnæmið og gangtíma hreyfiskynjarans hvort um sig með því að
breyta stillingum stjórnskífunnar.
• Hægt er að stilla langdrægið og skynjunarhornið með því að breyta stillingum
hreyfiskynjarans.
• Til þess að gera það skal losa þumalskrúfuna á hliðinni og festa hana svo aftur eftir að
stillingunni hefur verið breytt.
TIL AÐ SKIPTA UM LJÓSABÚNAÐ
Tæknilegar upplýsingar um ljósabúnaðinn má finna í kaflanum „Tæknilegar upplýsingar"
eða á merkispjaldi sem er á flóðljósahlífinni.
• Fyrst skal rjúfa strauminn að flóðljósinu og útiloka að straumur sé settur aftur á. Láta skal
flóðljósið kólna nægilega!!
• Losa skal skrúfu hlífðarglersins á efri hlið flóðljóssins og snúa hlífðarglerinu fram.
• Taktu ljósabúnaðinn úr umbúðunum.
• Gættu þess að snerta ekki ljósabúnaðinn með berum höndum því þá verða eftir
fitublettir sem geta leitt til ofhitnunar. Nota skal hreinan og þurran klút sem skilur ekki
eftir ló.
• Setja skal annan enda ljósabúnaðarins í perustæðið. Ýttu því næst á það og settu síðan
hinn endann í perustæðið. Gættu þess að perustæðið bogni ekki.
• Lokaðu síðan glerhlífinni og festu skrúfuna aftur.
HREINSUN
• Rjúfa skal strauminn að flóðljósinu og útiloka að straumur sé settur aftur á. Láta skal
flóðljósið kólna nægilega!
• Þegar búnaðurinn er hreinsaður má einungis nota þurran eða örlítið rakan klút, sem
skilur ekki eftir ló, og hugsanlega milt hreinsiefni. Ekki má nota hreinsiefni sem inniheldur
fægilög eða leysiefni.
• Ef þörf er á má hreinsa ljósabúnaðinn með klút sem skilur ekki eftir ló og hefur verið
vættur örlítið með spíra. VIÐVÖRUN! Eftir að ljósabúnaðurinn hefur verið hreinsaður
með spíra skal láta lofta um hann í að minnsta kosti 20 mínútur.
VIÐHALD
• Skipta skal tafarlaust um skemmt hlífðargler.
• Fjarlægja skal tafarlaust öll óhreinindi á hlífinni eða hlífðarglerinu þar sem þau geta leitt
til ofhitnunar.
IS
63

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Verwandte Produkte für REV HFGT400ABWM

Diese Anleitung auch für:

Hfgt120abwm

Inhaltsverzeichnis