Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

3M PELTOR ComTacXPI MT20H682FB-series Bedienungsanleitung Seite 52

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 15
IS
3:14 Automatic power off (sjálfvirkt slökkt á tækinu)
Stillingin Sjálfvirkt slökkt á tækinu afvirkjar/virkjar það að tækið slökkvi á sér sjálft.
3:15 Ear-plug mode (eyrnatappastilling)
Stilling fyrir eyrnatappa hækkar hljóðstyrk umhverfishljóða og ytri tengingar um 6
dB. Þessa stillingu á aðeins að nota þegar rétt tengdir eyrnatappar eru notaðir undir
heyrnarhlífunum. Eyrnatappastillingin er ræst með því að þrýsta á [+] hnappinn og halda
honum niðri í 5 sekúndur.
Haltu hnappinum áfram niðri þegar raddskilaboðin „power off" (slökkt á tækinu) heyrast,
eftir fáeinar sekúndur í viðbót heyrast skilaboðin „plug mode" (eyrnatappastilling).
Slökkt er á eyrnatappastillingunni með því að slökkva á heyrnartólunum og kveikja á
þeim á ný.
Viðvörun! Sé þessi virkni notuð á rangan hátt getur það skaðað heyrnina!
3:16 Ytri innstunga
Staðlað tengi er af gerð J11. Einnig eru til önnur tengi. J11-tengið er fáanlegt af ýmsum
gerðum. Kynntu þér vinsamlegast tæknilýsingarblað vörunnar eða leitaðu til sölumanns
til þess að afla þér upplýsinga um tengingar tækisins þíns.
3:17 Innstunga fyrir ytri hljóðnema
Hægt er að nota þetta tengi til þess að stinga ytri hljóðnema í samband, til dæmis
talhljóðnema á stöng. Jörð (-) er að ofan en (+) að neðan. Innstunguna er að finna á
framhlið vinstri skálar á gerðum með samanfellanlegri höfuðspöng en aftan á vinstri skál
á gerðum með hálsspöng.
4. MIKILVÆGAR UPPLÝSINGAR TIL NOTENDA
Mælt er með því að notandi tryggi að:
• Heyrnarhlífarnar séu settar upp, stilltar og haldið við í samræmi við leiðbeiningar
framleiðanda.
• Heyrnarhlífarnar séu alltaf notaðar í hávaðasömu umhverfi.
• Skoðað sé reglubundið hvort heyrnarhlífarnar nýtist eins og til er ætlast.
Viðvörun!
Sé ekki farið eftir ofangreindum tilmælum, skerðir það mjög verndareiginleika
heyrnarhlífanna.
• Ákveðin efnafræðileg efni geta valdið tjóni á vörunni. Nánari upplýsingar fást hjá
framleiðanda.
• Heyrnarhlífar og einkum þó eyrnapúðar geta orðið lélegir með tímanum og þá þarf
að skoða með reglulegu millibili til að fyrirbyggja að þar séu sprungur og aðrir gallar.
Skiptu um eyrnapúða og hlífar að minnsta kosti tvisvar á ári, sjá 5:1.
• Séu hreinlætishlífar settar á eyrnapúðana, getur það rýrt hljóðeinangrunarhæfni
þeirra. Farðu eftir ráðleggingum framleiðanda um viðeigandi hreinlætissett, sjá 7.
• Heyrnarhlífarnar eru búnar styrkstýrðri hljóðdeyfingu. Notandi ætti að kynna sér rétta
notkun áður en hún hefst. Ef hljóð er bjagað eða vart verður við bilun ætti notandi að
leita ráða um viðhald og hvernig skipta á um rafhlöðu í handbók framleiðanda.
• Á eyrnahlífunum er innstunga fyrir hljóðtæki. Notandi ætti að kynna sér rétta notkun
áður en hún hefst. Ef hljóð er bjagað eða vart verður við bilun ætti notandi að leita
lausna í handbók framleiðanda.
• Farðu að ráðum í handbókinni um viðhald og skipti á rafhlöðum.
Viðvörun!
• Afköst tækisins geta minnkað eftir því sem rafhlöðuhleðsla minnkar. Gera má ráð
fyrir að rafhlaða í heyrnarhlífum endist í 200 klukkutíma við samfellda notkun.
• Frálag styrkstýrðrar rásar í þessum heyrnarhlífum gæti farið fram yfir dagleg
hávaðamörk.
• Frálag rafeindarásar í þessum heyrnarhlífum getur farið fram yfir dagleg hávaðamörk.
52

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Diese Anleitung auch für:

Peltor comtacxpi mt20h682bb

Inhaltsverzeichnis