Herunterladen Diese Seite drucken

AEG BBB8002QB Benutzerinformation Seite 236

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für BBB8002QB:

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 191
ÖRYGGISUPPLÝSINGAR
Ekki kveikja á örbylgjuaðgerðinni þegar heimilistækið er
tómt. Málmhlutar inn í hólfinu kunna að mynda neista.
Málmílát fyrir mat og drykki eru ekki leyfð meðan á
örbylgjumatreiðslu stendur. Þessi krafa á ekki við ef
framleiðandinn tilgreinir stærð og lögun málmíláta sem
henta fyrir örbylgjumatreiðslu.
VIÐVÖRUN: Ef hurðin eða hurðaþétting er skemmd, má
ekki nota tækið fyrr en hæfur aðili hefur lokið viðgerðum á
skemmdri einingu.
VIÐVÖRUN: Einungis til þess hæfur aðili má þjónusta eða
sinna viðgerðum sem fela í sér að fjarlægja hlífina sem veitir
vörn gegn örbylgjum.
VIÐVÖRUN: Ekki má hita vökva eða matvæli í innsigluðum
ílátum. Þau geta sprungið.
Notaðu aðeins áhöld sem henta til notkunar í örbylgjuofnum.
Þegar matur er hitaður í plast- eða pappírsílátum skal hafa
auga með heimilistækinu vegna hugsanlegrar hættu á
íkveikju.
Heimilisækið er ætlað til þess að hita matvæli og drykki.
Þurrkun á matvælum eða fatnaði og upphitun á
hlífðarpúðum, inniskóm, svömpum, rökum klútum og öðru
slíku getur leitt til hættu á meiðslum, íkveikju eða eldsvoða.
Ef tækið gefur frá sér reyk, skal slökkva á tækinu eða taka
það úr sambandi og hafa hurðina lokaða til að kæfa loga.
Hitun drykkja með örbylgjum getur leitt til seinkaðrar
gossuðu. Gæta verður varúðar við meðhöndlun íláta.
Hræra skal í eða hrista innihald pela og krukka með
barnamat og kanna hitastigið áður en þess er neytt til að
koma í veg fyrir brunasár.
Ekki má hita egg í skurninni eða heil harðsoðin egg í tækinu
þar sem þau geta sprungið, jafnvel eftir að örbylgjuhitun er
lokið.
Til þess að taka hillustuðninginn úr skal fyrst toga í framhluta
hillustuðningsins og síðan afturhluta hans frá
hliðarveggjunum. Komdu hilluberunum fyrir í öfugri röð.
236/344

Werbung

loading