Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Bosch Intuvia BUI255 Originalbetriebsanleitung Seite 108

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für Intuvia BUI255:
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 5
Íslenska – 8
Viðhald og þjónusta
Viðhald og þrif
Ekki má þrífa neina hluta reiðhjólsins, þ.m.t. drifeininguna,
með því að dýfa þeim í vatn eða sprauta á þá vatni.
Við þrif á hjólatölvunni skal eingöngu nota mjúkan klút sem
hefur verið vættur með vatni. Ekki má nota hreinsiefni.
Láta skal skoða rafhjólið að minnsta kosti einu sinni á ári
(m.a. vélbúnað þess og hvort kerfishugbúnaður er í nýjustu
útgáfu).
Framleiðandi eða söluaðili reiðhjólsins getur einnig miðað
við tiltekna vegalengd og/eða tiltekið tímabil fyrir skoðun. Í
þessu tilviki sýnir hjólatölvan hvenær næsta skoðun á að fara
fram í 4 sekúndur þegar kveikt er á henni.
Láta skal viðurkenndan söluaðila reiðhjóla sjá um að
þjónusta rafhjólið og gera við það.
Láta verður viðurkenndan söluaðila reiðhjóla annast
u
allar viðgerðir.
Notendaþjónusta og ráðleggingar um notkun
Ef óskað er upplýsinga um rafhjólið og hluta þess skal snúa
sér til viðurkennds söluaðila reiðhjóla.
Finna má samskiptaupplýsingar fyrir viðurkennda söluaðila
reiðhjóla á vefsíðunni www.bosch-ebike.com.
Flutningur
Ef aka á með rafhjólið utan á bílnum, t.d. á
u
farangursgrind, skal fjarlægja hjólatölvuna og
rafhlöðu reiðhjólsins til að forðast skemmdir.
Förgun og framleiðsluefni
Nálgast má upplýsingar um framleiðsluefni á eftirfarandi
vefslóð: www.bosch-ebike.com/en/material-compliance.
Ekki má fleygja rafhjólum og íhlutum þeirra með venjulegu
heimilissorpi!
Skila skal drifeiningunni, hjólatölvunni ásamt
stjórnbúnaðinum, rafhlöðu rafhjólsins,
hraðaskynjaranum, aukabúnaði og umbúðum til
endurvinnslu með umhverfisvænum hætti.
Notandi skal sjálfur ganga úr skugga um að
persónuupplýsingum hafi verið eytt úr tækinu.
Ef hægt er að taka rafhlöður úr raftækinu án þess að
eyðileggja þær skal taka þær úr og skila þeim til sérstakrar
söfnunarstöðvar fyrir rafhlöður áður en tækinu er fargað.
Flokka verður úr sér gengin raftæki (samkvæmt
Evróputilskipun 2012/19/EU) og bilaðar eða úr
sér gengnar rafhlöður/hleðslurafhlöður
(samkvæmt Evróputilskipun 2006/66/EC)
sérstaklega og skila þeim til endurvinnslu með
umhverfisvænum hætti.
Með því að flokka raftækin sérstaklega er stuðlað að því að
hægt sé að meðhöndla þau og endurnýta hráefni með
viðeigandi hætti og vernda þannig heilsu manna og
umhverfið.
1 270 020 XBI | (29.05.2023)
Skila skal úr sér gengnum Bosch-búnaði fyrir rafhjól
endurgjaldslaust til viðurkennds söluaðila reiðhjóla eða
endurvinnslustöðvar.
Breytingar áskildar.
Bosch eBike Systems

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis