Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Notkunarleiðbeiningar - Strauss 74.76.535 Bedienungsanleitung Und Informationen

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 7
IS
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
Allar heyrnarhlífar á þessu leiðbeiningablaði eru búnar
höfuðbandi úr mjúkplasti og örmum eða hálsbandi úr
ryðfríu stáli ásamt púðum sem fylltir eru með frauðplasti.
Heyrnarhlífunum er ætlað að verja notandann gegn skaðlegu
hávaðastigi þegar þær eru notaðar í samræmi við þessar
notkunarleiðbeiningar. Öll önnur notkun er ekki í samræmi við
fyrirhugaða notkun og því óheimil.
Hér með lýsir Engelbert strauss GmbH & Co. KG, því yfir að
Engelbert Strauss-heyrnarhlífarnar samræmast reglugerð
Evrópusambandsins 2016/425 um hlífðarbúnað, tilskipun
2014/53/ESB um þráðlausan fjarskiptabúnað og viðeigandi
hlutum Evrópskra staðla:
• EN 352-1 (höfuðband/hálsband)
• EN 352-6 (búnaður til móttöku ytri hljóðmerkja)
• EN 352-8 (útvarp)
ESB-samræmisyfirlýsinguna má finna í heild sinni á
eftirfarandi vefslóð: www.engelbert-strauss.com/declaration-
of-conformity
Rekjanlegar upplýsingar má finna á miðanum innan á loki
rafhlöðuhólfs.
Prófað samkvæmt tilskipun 2014/53/ESB um þráðlausan
fjarskiptabúnað (Evrópa) af Nemko, tilkynntum aðila: 0470.
Þessi vara fellur undir tilskipun um raf- og
rafeindabúnaðarúrgang (2012/19/ESB). Ekki má fleygja
vörunni með óflokkuðu heimilissorpi. Förgun á rafhlöðum skal
fara fram í samræmi við gildandi staðbundnar reglugerðir.
Fargið rafeindabúnaði hjá viðeigandi endurvinnslustöðum.
Viðvörun!
Mikilvægt er að fylgja notkunarleiðbeiningunum. Ef það er
ekki gert kann það að leiða til þess að hávaðadeyfing hlífanna
skerðist mikið sem aftur kann að leiða til alvarlegs skaða.
Lesið þessar notkunarleiðbeiningar vandlega!
• Alltaf skal nota heyrnarhlífarnar í hávaðasömu umhverfi til
að tryggja fulla vernd! Aðeins 100% nýting veitir fulla vernd.
• Á sumum vinnustöðum getur hljóð viðvörunarmerkja
dempast þegar heyrnarhlífar með of mikilli hávaðadeyfingu
miðað við hljóðumhverfið eru notaðar.
• Ákveðin íðefni geta valdið skemmdum á vörunni. Frekari
upplýsingar fást hjá framleiðanda.
• Tryggið að heyrnarhlífarnar séu skoðaðar reglulega og
virkni þeirra athuguð.
• Ekki má nota vöruna í umhverfi þar sem er sprengihætta.
• Hávaðadeyfandi eiginleikar heyrnarhlífanna geta
minnkað verulega þegar þær eru notaðar með þykkum
gleraugnaumgjörðum, skíðagleraugum, lambhúshettum
o.s.frv.
• Notkun svita-/óhreinindavarnarbúnaðar yfir þéttihringina
getur dregið úr hávaðadeyfingu heyrnarhlífanna.
• Eyrnaskjólin, einkum púðarnir, geta skemmst við notkun og
skal skoða þau oft og reglulega til að leita eftir sprungum
og leka.
• Fargið vörunni án tafar ef á henni sjást sprungur eða
skemmdir.
• Skipta skal um hreinlætisbúnað a.m.k. tvisvar á ári. Gætið
þess að velja réttan hreinlætisbúnað fyrir heyrnarhlífarnar.
• Þrífið vöruna með mildri sápu. Gangið úr skugga um að
hreinsiefnið erti ekki húð. Dýfið vörunni ekki í vatn. Ef
skeljarnar eru rakar skal snúa þeim við og fjarlægja púðana
til að þurrka það. Fjarlægið rafhlöðurnar.
• Geyma skal heyrnarhlífarnar á þurrum og hreinum stað,
fjarri sólarljósi, t.d. í upprunalegum umbúðum.
• Viðvörun! Afköst gætu minnkað í samræmi við
rafhlöðunotkun. Dæmigerð tímalengd samfelldrar notkunar
sem búast má við af heyrnarhlífunum er 130 klst.
Heyrnarhlífarnar settar upp og stilltar (A)
Strjúkið allt hár frá eyrunum og setjið heyrnarhlífarnar yfir
eyrun þannig að þær sitji þétt og þægilega. Gangið úr
skugga um að
eyrun séu alveg undir eyrnaskjólunum og að jafn þrýstingur
finnist í kringum eyrun.
Höfuðband
Stillið lengd höfuðbandsins þannig að það liggi létt á
hvirflinum.
Skipt um hreinlætisbúnað (B)
1. Fjarlægið gamla hljóðdeyfifrauðið og setjið nýtt á.
2. Togið gamla eyrnapúðann af.
3. Setjið nýjan eyrnapúða yfir gatið, fyrir miðju.
4. Ýtið með fingri meðfram eyrnapúðanum þangað til að hann
festist við brúnina, allan hringinn.
5. Togið gamla höfuðpúðann af og setjið nýjan á.
Samþykki og tæknilegar upplýsingar (C)
C1) Höfuðband
C2) Festing á hjálm/hettu
C3) Prófað og vottað af (staðlar)
C4) Þyngd
C5) Meðalhljóðdeyfing
C6) Staðalfrávik
C8) Prófað og vottað af (tilkynntur aðili)
C9) Stærð: S (lítil) M (meðalstór) L (stór)
Aukabúnaður og varahlutir
Hreinlætisbúnaður #76.76.541 2HR
60
IS
Útvarp (sjá Mynd E1)
Hljóðmerkið frá hátölurum hlífanna fer að hámarki upp í 82
dB(A) við eyrað.
Ef hlustað er á útvarp kunna viðvörunarmerki á vinnustaðnum
að heyrast verr.
Á/Af styrkur
• Snúið "1"-takkanum til að kveikja á útvarpinu. Snúið
áfram réttsælis til að hækka styrkinn.
• Ef móttökuskilyrði eru slæm fer útvarpið sjálfkrafa úr
stereó í mónó til að viðhalda hámarks hljómgæðum.
Tíðni-/rásaveljari (sjá Mynd E2)
• Snúið "2"-takkanum til að velja rás.
• Tíðnisvið útvarpsins er FM 88-108 MHz, AM 540-
1700 KHz ("3")
Inntak fyrir ytri hljóðmerki (sjá Mynd F)
Heyrnarhlífarnar eru búnar rafrænu inntaki fyrir hljóðmerki.
Gangið úr skugga um að það virki áður en hlífarnar
eru notaðar. Ef truflun eða bilun kemur upp kannið þá
leiðbeiningar framleiðanda.
• Viðvörun! Tenging við ytri hljóðgjafa getur haft í för
með sér hljóðstyrk yfir leyfilegum mörkum.
• Hámarks leyfilegur hljóðstyrkur er: 263 mV
• Hægt er að tengja við talstöðvar og aðra ytri
hljóðgjafa í 3,5 mm inntakið.
• Þegar inntakið fyrir ytri hljóðmerki er notað verður að
vera skrúfað frá hljóðstyrknum.
Rafhlöður (sjá Mynd G)
• Hlífarnar eru með tveimur 1,5V AA rafhlöðum.
• Aðeins má nota 1,5V AA rafhlöður.
• Gangið úr skugga um að pólarnir snúi rétt.
• Ekki má skipta um rafhlöður meðan kveikt er á
tækinu.
61

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis