Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Notkunarleiðbeiningar - Strauss 74.76.530 Bedienungsanleitung Und Informationen

Inhaltsverzeichnis

Werbung

IS
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
Allar heyrnarhlífar á þessu leiðbeiningablaði eru
búnar höfuðbandi úr mjúkplasti og örmum eða
hálsbandi úr ryðfríu stáli ásamt púðum sem fylltir
eru með frauðplasti. Heyrnarhlífunum er ætlað
að verja notandann gegn skaðlegu hávaðastigi
þegar þær eru notaðar í samræmi við þessar
notkunarleiðbeiningar. Öll önnur notkun er ekki í
samræmi við fyrirhugaða notkun og því óheimil.
Hér með lýsir Engelbert strauss GmbH & Co. KG,
því yfir að Engelbert Strauss-heyrnarhlífarnar
samræmist reglugerð Evrópusambandsins
2016/425 um hlífðarbúnað og öðrum viðeigandi
tilskipunum til að uppfylla kröfur fyrir CE-merki.
ESB-samræmisyfirlýsinguna má finna í heild
sinni á eftirfarandi vefslóð: www.engelbert-
strauss.com/declaration-of-conformity
Sjá dagsetningu og tímasetningu innan á
eyrnaskjólinu.
Viðvörun!
Mikilvægt er að fylgja notkunarleiðbeiningunum.
Ef það er ekki gert kann það að leiða til þess að
hávaðadeyfing hlífanna skerðist mikið sem aftur
kann að leiða til alvarlegs skaða.
Lesið þessar notkunarleiðbeiningar vandlega!
• Alltaf skal nota heyrnarhlífarnar í hávaðasömu
umhverfi til að tryggja fulla vernd! Aðeins 100%
nýting veitir fulla vernd.
• Á sumum vinnustöðum getur hljóð
viðvörunarmerkja dempast þegar heyrnarhlífar
með of mikilli hávaðadeyfingu miðað við
hljóðumhverfið eru notaðar.
• Ákveðin íðefni geta valdið skemmdum
á vörunni. Frekari upplýsingar fást hjá
framleiðanda.
• Tryggið að heyrnarhlífarnar séu skoðaðar
reglulega og virkni þeirra athuguð.
• Hávaðadeyfandi eiginleikar heyrnarhlífanna
geta minnkað verulega þegar þær eru
notaðar með þykkum gleraugnaumgjörðum,
skíðagleraugum, lambhúshettum o.s.frv.
• Notkun svita-/óhreinindavarnarbúnaðar yfir
þéttihringina getur dregið úr hávaðadeyfingu
heyrnarhlífanna.
• Eyrnaskjólin, einkum púðarnir, geta skemmst
við notkun og skal skoða þau oft og reglulega
til að leita eftir sprungum og leka.
• Fargið vörunni án tafar ef á henni sjást
sprungur eða skemmdir.
• Skipta skal um hreinlætisbúnað a.m.k. tvisvar á
ári. Gætið þess að velja réttan hreinlætisbúnað
fyrir heyrnarhlífarnar.
• Þrífið vöruna með mildri sápu. Gangið úr
skugga um að hreinsiefnið erti ekki húð. Dýfið
vörunni ekki í vatn.
• Geyma skal heyrnarhlífarnar á þurrum
og hreinum stað, fjarri sólarljósi, t.d. í
upprunalegum umbúðum.
Heyrnarhlífarnar settar upp og stilltar (A)
Strjúkið allt hár frá eyrunum og setjið
heyrnarhlífarnar yfir eyrun þannig að þær sitji þétt
og þægilega. Gangið úr skugga um að
eyrun séu alveg undir eyrnaskjólunum og að jafn
þrýstingur finnist í kringum eyrun.
Höfuðband (A1)
Stillið lengd höfuðbandsins þannig að það liggi
létt á hvirflinum.
Festing á hjálm/hettu (A3)
Ýtið hjálmfestingu heyrnarhlífanna í raufina
á hjálminum þar til hún læsist. Setjið
heyrnarhlífarnar yfir eyrun og ýtið inn á við þar
til smellur heyrist. Stillið heyrnarhlífarnar og
hjálminn þannig að þau sitji vel á höfðinu.
62
IS
Skipt um hreinlætisbúnað (B)
1. Fjarlægið gamla hljóðdeyfifrauðið og setjið
nýtt á.
2. Togið gamla eyrnapúðann af.
3. Setjið nýjan eyrnapúða yfir gatið, fyrir miðju.
4. Ýtið með fingri meðfram eyrnapúðanum
þangað til að hann festist við brúnina, allan
hringinn.
5. Togið gamla höfuðpúðann af og setjið nýjan á.
Samþykki og tæknilegar upplýsingar (C)
C1) Höfuðband
C3) Festing á hjálm/hettu
C4) Prófað og vottað af (staðlar)
C5) Þyngd
C6) Meðalhljóðdeyfing
C7) Staðalfrávik
C8) Áætlað verndargildi
C9) Prófað og vottað af (tilkynntur aðili)
C10) Stærð: S (lítil) M (meðalstór) L (stór)
Samþykktar samsetningar hjálma (D)
Eingöngu má festa þessi eyrnaskjól við og nota
með öryggishjálmum fyrir vinnustaði sem taldir
eru upp í töflu D.
D1) Framleiðandi
D2) Gerð
D3) Millistykki
D4) Viðvörun! Þessar heyrnarhlífar til að festa á
hjálma henta einstaklingum með höfuðmál sem
telst á bilinu meðalstórt til stórt (56–64 cm) og
lengd frá kolli til miðju hlustar sem er meðallöng
til löng. Styttri lengd gæti valdið því að varan
passi ekki rétt og dregið úr hávaðadeyfingu
heyrnarhlífanna.
Eyrnaskjól sem samræmast staðli EN 352-3 eru
í eftirfarandi stærðum: lítil (S), meðalstór (M) eða
stór (L). Meðalstór eyrnaskjól passa fyrir flesta
notendur. Lítil og stór eyrnaskjól eru hönnuð
fyrir notendur sem geta ekki notað meðalstór
eyrnaskjól.
Aukabúnaður og varahlutir
Hreinlætisbúnaður fyrir 1 og 2: #74.76.540
Hreinlætisbúnaður fyrir 3: #74.76.542
63

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Diese Anleitung auch für:

74.76.53174.76.53274.76.536

Inhaltsverzeichnis