Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Mikilvægar Upplýsingar - BESAFE iZi Turn B Bedienungsanleitung

I-size
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 14
170
Þakka þér fyrir að velja BeSafe iZi Turn B i-Size
!
Það er mikilvægt að þú lesir þessa notendahandbók ÁÐUR en þú festir
stólinn. Röng uppsetning getur stofnað barni þínu í hættu.
! Mikilvægar upplýsingar
Það er EKKI LEYFILEGT að setja stólinn í framsæti MEÐ
VIRKUM ÖRYGGISPÚÐA.
Þetta sæti er aðeins hægt að setja upp í bíl sem er með
ISOfix festingar.
Lesið handbók bílsins til að vita hvar stóllinn á að vera í bílnum.
Lesið bílalistann til að sjá hvort þín bílategund sé vottuð fyrir þetta sæti.
Hægt er að fá nýjustu útgáfu af bílalistanum á BeSafe vefsíðunni www.
besafe.com. Ef bíllinn þinn er ekki á bílalistanum skaltu hafa samband
við BeSafe til að fá nánari upplýsingar.
iZi Turn B i-Size má nota bakvísandi fyrir börn frá 40 til 105 cm hæð að
hámarksþyngd 18 kg og framvísandi fyrir börn frá 88 til 105 cm hæð
einnig að hámarksþyngd 18 kg.
ATHUGIÐ: Notið ekki framvísandi fyrr en barnið hefur náð 15 mánaða
aldri.
Þegar ekið er með barn sitjandi í stólnum verður stólinn ávallt að vera
(bakvísandi) frá akstursstefnu bílsins. Aldrei má aka með stólnum snúið
til hliðar þegar barn situr í stólnum. Mælt er með því að aka ekki með
stólnum snúið til hliðar þegar hann er tómur.
Þegar stólinn er notaður með barnainnlegginu og ekkert barn situr í
stólnum, er mælt með því að spenna beislisbeltin.
BeSafe mælir með notkun bakvísandi barnabílstóla eins lengi og
mögulegt er.
Öryggisbeltin verða alltaf að vera læst þegar barnið er í stólnum.
Strekkja verður á öryggisbeltunum til að taka af slaka og gæta þess að
þau séu ekki snúin.
Axlarpúðarnir eru með seglum sem geta haft áhrif á rafeindabúnað eins
og gangráð.
Verjið barnið fyrir sól.
Ávallt verður að nota gólfstuðninginn. Gakktu úr skugga um að
gólfstuðningurinn sé niðri að fullu þar til hann snertir bílgólfið fyrir
framan stólinn og að bílstóllinn sé láréttur í bílnum með hallamálið í
miðjunni. Vísarnir fyrir gólfstuðninginn ættu alltaf að vera grænir.
Við mælum með því að nota barnainnleggið eingöngu í mest hallandi
stöðu þar til barnið hefur náð 87 cm hæð.
Fjarlægið barnapúðann, einnig hvíta fleyginn, þegar barnið er stærra en
60 cm eða eldra en 4 mánaða.
Taktu barnainnleggið úr þegar barnið er orðið hærra en 87 cm.
Eftir bílsslys verður að skipta um stól þó svo að hann virðist óskemmdur
því við annað slys er ekki víst að stóllinn verndi barn þitt eins og hann á
að gera.
Gætið þess að setja ekki farangur ofan á stólinn, skella hurðum á hann
eða gera nokkuð annað sem getur skemmt hann.
Gættu þess að strekkja mjög vel á beislinu, þannig að ekki sé lengur
hægt að mynda brot í beltunum. Þegar strekkt er á beislinu skal ganga úr
skugga um að barnið liggi vel upp að bakinu.
EKKI reyna að taka stólinn í sundur, breyta eða bæta hlutum við hann.
Ábyrgðin gildir ekki ef annað en upprunalegir hlutir eru notaðir eða
einhver aukabúnaður.
Aldrei skilja barnið eftir eftirlitslaust í stólnum.
Gangið úr skugga um að farþegar viti hvernig losa á barnið úr stólnum í
neyðartilfellum.
Festið töskur og aðra lausamuni vel því laus farangur getur slasað bæði
börn og fullorðna illa.
Aldrei nota bílstól án áklæðis. Það er til öryggis og má aðeins endurnýja
með upprunalegu BeSafe áklæði.
Ekki nota sterkar hreinsivörur; þær geta dregið úr styrk stólsins.
BeSafe mælir með að notaðir barnabílstólar séu hvorki keyptir né seldir.
GEYMDU þessa handbók til síðari nota.
Taktu rafhlöðueinangrunina úr rafhlöðuhólfinu áður en iZi Turn B i-Size
stóllinn er settur upp í fyrsta skipti (ekki í öllum gerðum).
Þó svo að uppsetningarskjárinn virki ekki, er öruggt að nota sætið þegar
uppsetning er gerð samkvæmt notandaleiðbeiningunum
og allir vísar eru grænir (ekki í öllum gerðum).
2 x AA/LR6 (1,5 V) rafhlöðurnar er hægt að skipta um frá
neðri hlið rafhlöðuhólfsins. Ekki má nota rafhlöður sem
hægt er að hlaða (ekki í öllum gerðum).
Geymdu allar rafhlöður þar sem börn ná ekki til (ekki í
öllum gerðum).
Ekki nota gamlar rafhlöður eða rafhlöður sem sýna merki um leka eða
sprungur (ekki í öllum gerðum).
EKKI nota stólinn lengur en 7 ár því efnið í honum breytist með aldrinum.
EKKI nota stólinn heimafyrir. Hann er ekki hannaður til heimabrúks
heldur aðeins til nota í bíl.
Þegar stólinn er settur í bílinn skal gæta vel að öllum stöðum þar
sem hann gæti snert innréttingu bílsins. Við mælum með að (BeSafe)
hlífðarklæði sé notað á þessum stöðum til að koma í veg fyrir skemmdir
af núningi. Þetta á sérstaklega við um leður- og viðarklædda fleti.
Ef þú ert í vafa, hafðu þá samband við starfsmenn barnabílstóla hjá VÍS.
171

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis