Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Mikilvægar Upplýsingar - BESAFE iZi Twist B i-Size Bedienungsanleitung

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für iZi Twist B i-Size:
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 15
176
Þakka þér fyrir að velja BeSafe iZi Twist i-Size
!
Það er mikilvægt að þú lesir þessa notendahandbók ÁÐUR
en þú festir stólinn. Röng uppsetning getur stofnað barni
þínu í hættu.
! Mikilvægar upplýsingar
• Það er EKKI LEYFILEGT að setja stólinn
framsæti MEÐ VIRKUM ÖRYGGISPÚÐA.
• Þetta sæti er aðeins hægt að setja upp í bíl sem er með
ISOfix festingar.
• Lesið handbók bílsins til að vita hvar stóllinn á að vera í bílnum.
• Lesið bílalistann til að sjá hvort þín bílategund sé vottuð fyrir þetta sæti.
Hægt er að fá nýjustu útgáfu af bílalistanum á BeSafe vefsíðunni www.
besafe.com. Ef bíllinn þinn er ekki á bílalistanum skaltu hafa samband við
BeSafe til að fá nánari upplýsingar.
• iZi Twist i-Size skal nota bakvísandi fyrir börn frá 40 til 105 cm hæð að
hámarksþyngd 18 kg.
• Barnainnleggið er viðurkennt fyrir börn í bakvísandi stöðu sem eru 40 til 87
cm á hæð.
• ATHUGIÐ: Notið ekki framvísandi fyrr en barnið hefur náð 15 mánaða aldri.
• Þegar ekið er með barn sitjandi í stólnum verður stólinn ávallt að vera
(bakvísandi) frá akstursstefnu bílsins. Aldrei má aka með stólnum snúið til
hliðar þegar barn situr í stólnum.
Þegar ekið án barns sitjandi í stólnum verður stólinn ávallt að vera
(bakvísandi) frá akstursstefnu bílsins. Mælt er með því að aka ekki með
stólnum snúið til hliðar þegar hann er tómur.
• Þegar stólinn er notaður með barnainnlegginu og ekkert barn situr í
stólnum, er mælt með því að spenna beislisbeltin.
• BeSafe mælir með notkun bakvísandi barnabílstóla eins lengi og
mögulegt er.
• Öryggisbeltin verða alltaf að vera læst þegar barnið er í stólnum.
• Strekkja verður á öryggisbeltunum til að taka af slaka og gæta þess að þau
séu ekki snúin.
• Axlarpúðarnir eru með seglum sem geta haft áhrif á rafeindabúnað eins
og gangráð.
• Verjið barnið fyrir sól.
• Ávallt verður að nota gólfstuðninginn. Gakktu úr skugga um að
gólfstuðningurinn sé niðri að fullu þar til hann snertir bílgólfið fyrir framan
stólinn og að bílstóllinn sé láréttur í bílnum með hallamálið í miðjunni.
Vísarnir fyrir gólfstuðninginn ættu alltaf að vera grænir.
• Við mælum með því að nota barnainnleggið eingöngu í mest hallandi
stöðu þar til barnið hefur náð 87 cm hæð.
• Fjarlægið barnapúðann, einnig hvíta fleyginn, þegar barnið er stærra en
60 cm eða eldra en 4 mánaða.
• Taktu barnainnleggið úr þegar barnið er orðið hærra en 87 cm.
• Eftir bílsslys verður að skipta um stól þó svo að hann virðist óskemmdur
því við annað slys er ekki víst að stóllinn verndi barn þitt eins og hann á
að gera.
í
• Gætið þess að setja ekki farangur ofan á stólinn, skella hurðum á hann
eða gera nokkuð annað sem getur skemmt hann.
• Gættu þess að strekkja mjög vel á beislinu, þannig að ekki sé lengur
hægt að mynda brot í beltunum. Þegar strekkt er á beislinu skal ganga úr
skugga um að barnið liggi vel upp að bakinu.
• EKKI reyna að taka stólinn í sundur, breyta eða bæta hlutum við hann.
Ábyrgðin gildir ekki ef annað en upprunalegir hlutir eru notaðir eða
einhver aukabúnaður.
• Aldrei skilja barnið eftir eftirlitslaust í stólnum.
• Gangið úr skugga um að farþegar viti hvernig losa á barnið úr stólnum í
neyðartilfellum.
• Festið töskur og aðra lausamuni vel því laus farangur getur slasað bæði
börn og fullorðna illa.
• Aldrei nota bílstól án áklæðis. Það er til öryggis og má aðeins endurnýja
með upprunalegu BeSafe áklæði.
• Ekki nota sterkar hreinsivörur; þær geta dregið úr styrk stólsins.
• BeSafe mælir með að notaðir barnabílstólar séu hvorki keyptir né seldir.
• GEYMDU þessa handbók til síðari nota.
• Taktu rafhlöðueinangrunina úr rafhlöðuhólfinu áður en iZi Twist i-Size
stóllinn er settur upp í fyrsta skipti (ekki í öllum gerðum).
• Þó svo að uppsetningarskjárinn virki ekki, er öruggt að nota sætið þegar
uppsetning er gerð samkvæmt notandaleiðbeiningunum
og allir vísar eru grænir (ekki í öllum gerðum).
• Geymdu allar rafhlöður þar sem börn ná ekki til (ekki í
öllum gerðum).
• Ekki nota gamlar rafhlöður eða rafhlöður sem sýna merki
um leka eða sprungur (ekki í öllum gerðum).
• EKKI nota stólinn lengur en 7 ár því efnið í honum breytist
með aldrinum.
• EKKI nota stólinn heimafyrir. Hann er ekki hannaður til heimabrúks heldur
aðeins til nota í bíl.
• Þegar stólinn er settur í bílinn skal gæta vel að öllum stöðum þar
sem hann gæti snert innréttingu bílsins. Við mælum með að (BeSafe)
hlífðarklæði sé notað á þessum stöðum til að koma í veg fyrir skemmdir
177

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis