Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

IKEA GREJSIMOJS Anweisungen Und Hinweise Seite 15

Inhaltsverzeichnis
Verfügbare Sprachen

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 6
MIKILVÆGT!
• Ekki skilja hátalarann eftir þar sem hann kemst í
snertingu við beint sólarljós eða nálægt hitagjöfum,
þar sem hann gæti ofhitnað.
• Hátalarinn ætti ekki að komast í snertingu við blautt,
rakt eða óhóflega rykugt umhverfi, þar sem það gæti
valdið skemmdum.
• Drægnin á milli hátalarans og móttökutækisins er
mæld á opnu svæði.
• Mismunandi byggingarefni og staðsetning tækja geta
haft áhrif á drægni þráðlausrar tengingar.
• Of hár hljóðstyrkur getur skemmt heyrn.
• Snertu ekki bassakeiluna.
• Ekki nota vöruna sem hillu eða stand.
• Undir vörunni finnur þú mikilvægar merkingar.
UMHIRÐA
Fyrir þrif þarf að taka hátalarann úr sambandi. Þurrkaðu
yfirborðið með rökum klút. Gættu þess að bleyta
hátalarann ekki mikið. Þerraðu hátalarann vel með
mjúkum klút áður en þú setur hann aftur í samband.
ATH!
Aldrei nota slípefni eða leysiefni þar sem slíkt getur
skemmt vöruna.
Viðgerð á vöru
Ekki reyna að gera við vörurnar upp á eigin spýtur þar
sem hætta er á raflosti og annarri hættu þegar lokin eru
opnuð eða fjarlægð.
Framleiðandi: IKEA of Sweden AB
Heimilisfang: Box 702, SE-343 81 Älmhult, SWEDEN
Bluetooth® orðmerki og myndmerki eru skrásett
vörumerki í eigu Bluetooth SIG, Inc. og öll notkun
IKEA á slíkum merkjum eru samkvæmt leyfum. Önnur
vörumerki og vöruheiti eru í eigu viðkomandi eigenda.
Tæknilegar upplýsingar
Módel: GREJSIMOJS
Tegund: E2498
Inntak: DC 5.0V, 1.0 A, 5.0 W, USB Type-C
Li-ion rafhlöðugeta: DC 3.6V, 2500 mAh, 9.0 Wh
Hitastig við opnun: 0° C to 40° C
Rakastig við notkun: 0 til 95% RH
Bluetooth-útgáfa: V 5.3
Drægni þráðlausrar tengingar (ótrufluð): 10 m
IP flokkur: IP44
Táknið með mynd af ruslatunnu með krossi yfir þýðir
að ekki má farga vörunni með venjulegu heimilissorpi.
Vörunni þarf að skila í endurvinnslu eins og lög gera ráð
fyrir á hverjum stað fyrir sig. Með því að henda slíkum
vörum ekki með venjulegu heimilissorpi hjálpar þú til við
að draga úr því magni af úrgangi sem þarf að brenna
eða nota sem landfyllingu og lágmarkar möguleg
neikvæð áhrif á heilsu fólks og umhverfið. Þú færð
nánari upplýsingar í IKEA versluninni.
15
Inhaltsverzeichnis
loading

Diese Anleitung auch für:

E2498

Inhaltsverzeichnis