Þjónustu- og viðhaldsupplýsingar
Þjónusta og viðhald lækningatækis er að öllu leyti á ábyrgð eiganda hvers tækis.
Ef ekki er hægt að sinna þjónustu og viðhaldi við tæki í samræmi við leiðbeiningarnar kann ábyrgð
tækisins að falla úr gildi. Ennfremur getur það komið niður á klínísku ástandi eða öryggi notenda
og/eða umönnunaraðila ef tæki er ekki þjónustað og viðhaldið. Ekki sinna þjónustu og viðhaldi
á meðan varan er í notkun. Ef þörf krefum skal hafa samband við söluaðila á staðnum til að fá
aðstoð við uppsetningu, notkun eða hvernig á að sinna þjónustu og viðhaldi við tækið.
Endingartími
Endingartími vörunnar við venjulega notkun
er 8 ár ef öllu viðhaldi og þjónustu er sinnt
samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda og
skráð svo hægt sé að sýna fram á það.
Endurnotkun
Þessi vara og aukahlutir/íhlutir hennar henta
til endurnotkunar.
Endurbætur fyrir endurnotkun
Áður en varan er notuð aftur eða skipt um
notanda skal fylgja viðhaldsgátlistanum og
hreinsunarleiðbeiningum, ásamt því að skoða
hana reglulega.
Tíðni þjónustu
Tíðni skoðana getur breyst eftir notkun og sliti.
Mælt er með því að varan sé skoðuð árlega,
í hvert sinn sem varan er endurútgefin til
notkunar og eftir langtímageymslu (meira
en 4 mánuði). Aðili sem hefur skilning
á notkun vörunnar skal sjá um skoðunina.
Gátlisti þjónustuskoðunar:
Yfirfarið og stillið eftirfarandi í samræmi
við fyrirhugaða notkun:
• Hægt er að hækka og lækka stoðgrindina.
• Rafknúnar útgáfur geta haldið rafmagni
eftir hleðslu rafhlöðunnar.
• Á útiútgáfum er hægt að fella
þrýstifestinguna yfir grindina.
• Ef það er búið loftfylltum dekkjum skaltu
athuga loftþrýstinginn.
• Stilling sætis: Sætið er stillanlegt og helst
í þeirri stöðu sem það er stillt í.
• Tryggið að hjól hreyfist án nokkurrar
fyrirstöðu og að auðvelt sé að nota alla
hjólalása/bremsur. Stillið eftir þörfum
• Herðið rær og bolta á vörunni.
• Berið olíu á framlengingarhluti
• Leitið eftir merkjum um sprungur
eða slitna íhluti.
• Allar merkingar á vörunni eru heilar.
Gerið við eða skiptið um skemmda eða
slitna hluti.
Viðhald
Fyrir hverja notkun er mælt með að:
Þurrka leifar og óhreinindi af vörunni með
klút með volgu vatni og mildu hreinsiefni/
sápu án klórs og láta stólinn síðan þorna fyrir
notkun. Gerið sjónræna skoðun á því hvort
einhverjir hlutir séu skemmdir eða slitnir.
XX
IS
Þvottur
Aðalvara
Vöruna má þvo á 60° hita með mildu þvottaefni
í 10 mínútur í þvottavél sem er hönnuð fyrir
lækningatæki. Notið þurrkunaraðgerð
vélarinnar til að þurrka vöruna. Fjarlægið
allan aukabúnað og þvoið hann sérstaklega.
Fyrir þvott
Forðist að fjarlægja smurefni af
stimpilstöngum og dragið hreyfiliði til baka
í lágmarksslaglengd áður hann er þveginn.
• Fjarlægið allan aukabúnað, takið alla
kapla úr sambandi og gætið þess að
fjarlægja rafhlöðuna, stjórnstöðina
og fjarstýringuna. Skiljið hreyfiliðana
eftir með snúrurnar festar við vöruna.
• EKKI þrífa afleininguna með háþrýstidælu
eða gufuhreinsi.
Eftir þvott
• Gangið úr skugga um að kaplarnir
séu rétt tengdir við stjórnstöðina þegar
afleiningarkerfið er sett saman aftur.
• Gangið úr skugga um að fjarstýringin
virki sem skyldi
Handþvottur
Einnig er hægt að þvo þessa vöru og
fylgihluti hennar í höndunum. Notið volgt
vatn og milt hreinsiefni/ sápu án klórs og
leyfið öllum hlutum að þorna fyrir notkun.
Sótthreinsun
Vöruna má sótthreinsa með 70% sótthreinsi-
spritti. Mælt er með því að nota klút með volgu
vatni og mildu hreinsiefni/sápu án klórs til að
þurrka leifar og óhreinindi af vörunni og leyfa
henni síðan að þorna fyrir sótthreinsun.
Efni
• Gúmmí
• Plast
• Stál
Yfirborðsmeðhöndlun
Eftirfarandi aðferðir við meðhöndlun yfirborðs
hafa verið notaðar til að verjast tæringu:
• Lakkað yfirborð = pólýesterdufthúðun
eða ED-húðun
• Ólakkaðir hlutar úr áli = rafhúðun
• Ólakkað yfirborð úr stáli = sinkhúðun
217
etac.com