Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Ráð Varðandi Brauðgerð - KitchenAid ARTISAN 5KSM7580XECA Bedienungsanleitung

Küchenmaschine mit schüsselheber und 6,9-liter-schüssel
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 16
Ráð fyrir frábæran árangur
Ráð varðandi brauðgerð
Brauðgerð með hrærivél er gjörólík
brauðgerð í höndunum. Þar af leiðandi
þarf talsverða æfingu áður en þú verður
fullkomlega ánægð(ur) með nýja ferlið. Þér
til þægindaauka bjóðum við upp á þessi ráð
til að hjálpa þér að venjast brauðgerð eins
og KitchenAid
vill hafa hana.
TM
• ALLTAF skal nota hnoðkrókinn til að blanda
og hnoða gerdeig.
• Notaðu þrep 2 til að blanda eða hnoða
gerdeig. Ef eitthvert annað þrep er notað
með þungu deigi getur það valdið því að
hrærivélin hættir að snúast til að takmarka
skemmdir. Þetta er eðlilegt. Ef þetta kemur
upp á skal slökkva á hraðastillingunni og
síðan kveikja aftur á minni hraða.
• Notaðu eldhúshitamæli til að ganga úr
skugga um að hitastig vökva sé það sem
tilgreint er í uppskriftinni. Hærra hitastig
vökva getur drepið ger og lægra hitastig
vökva hamlar vexti gersins.
• Hitaðu öll hráefni að stofuhita til að tryggja
rétta hefun deigsins. Ef leysa á upp ger
í skál skal alltaf velgja skálina fyrst með
því að skola hana í volgu vatni til að forðast
kælingu vökva.
180
W10421400A_13_IC.indd 180
• Leyfðu brauði að hefast á heitum stað,
26°C til 29°C, lausum við dragsúg, nema
annað sé tekið fram í uppskriftinni.
• Hefunartími uppskrifta kann að vera
breytilegur vegna hita- og rakastigs
í eldhúsinu. Deig hefur tvöfaldast að
ummáli þegar far kemur í deigið eftir
að fingurgómum er þrýst létt og snöggt
ofan í það.
• Flestar brauðuppskriftir bjóða upp á
sveigjanleika varðandi það magn hveitis
sem notað er. Nægu hveiti hefur verið
bætt við þegar deigið byrjar að hreinsa
hliðar skálarinnar. Ef deig er klístrað eða
rakastig er hátt, skal rólega bæta við meira
hveiti, um 60 g (1/2 bolla) í einu, en ekki
fara umfram ráðlagt magn. Hnoða skal
eftir hverja viðbót þar til hveitið hefur
að fullu gengið inn í deigið. Ef of miklu
hveiti er bætt við verður árangurinn
þurr brauðhleifur.
• Þegar bakstri er lokið ættu gerbrauð og
snúðar að vera með djúpum gulbrúnum lit.
Aðrar prófanir á hvort brauð sé tilbúið eru:
Brauðið losnar frá hliðum formsins og holt
hljóð myndast ef bankað er ofan á hleifinn.
Settu brauðhleifa og snúða á grindur strax
eftir bakstur til að forðast að þeir blotni.
11/15/11 2:50 PM

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Diese Anleitung auch für:

Artisan 5ksm7591Artisan 5ksm7580

Inhaltsverzeichnis