Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

IKEA BEJUBLAD AA-2279363-3 Bedienungsanleitung Seite 68

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 12
ÍSLENSKA
Merkiplata
Tæknilegu upplýsingarnar eru staðsettar á
merkiplötunni á innri hlið búnaðarins.
IKEA ÁBYRGÐ
Hversu lengi gildir ábyrgð IKEA?
Þessi ábyrgð gildir í fimm (5) ár frá upphaflegum
kaupdegi búnaðarins hjá IKEA. Upprunalegrar
sölukvittunar er krafist sem sönnun fyrir kaupum.
Ef ábyrgðarþjónusta er framkvæmd, þá lengir það
ekki ábyrgðartímann fyrir búnaðinn.
Hver veitir þjónustuna?
Þjónustuaðili IKEA mun veita þjónustuna í
gegnum sína eigin þjónustustarfsemi eða
viðurkenndan þjónustuaðila.
Hvað er innifalið í ábyrgðinni?
Ábyrgðin nær til bilana í búnaðinum sem
orsakast af gallaðri framleiðslu eða efnislegum
bilunum frá kaupdegi hjá IKEA. Ábyrgðin nær
eingöngu til heimilisnotkunar. Undantekningarnar
eru skilgreindar undir fyrirsögninni „Hvað
er ekki innifalið í þessari ábyrgð?" Innan
ábyrgðartímabilsins er kostnaður við að bæta úr
biluninni t.d. viðgerðir, varahlutir, vinna og ferðalög
innifalið að því tilskildu að tækið sé aðgengilegt til
viðgerðar án sérstakra útgjalda. Við þess skilmála
eiga viðmiðunarreglur ESB (Nr. 99/44/EG) og
viðkomandi staðbundnar reglur við. IKEA verður
eigandi þeirra varahluta sem skipt er um.
Hvað mun lKEA gera til að leysa vandamálið?
Þjónustuaðili IKEA mun skoða vöruna
og ákveða, að eigin mati, hvort hún falli
undir þessa ábyrgð. Ef tilfellið er talið falla
undir ábyrgð, mun þjónustuaðili IKEA eða
viðurkenndur þjónustuaðili þess í gegnum eigin
þjónustustarfsemi, að eigin geðþótta, annað
hvort gera við gölluðu vöruna eða skipta henni
út fyrir sömu eða sambærilega vöru.
Hvað er ekki innifalið í þessari ábyrgð?
Eðlilegt slit.
Skaði af gáleysi eða ásetningi, skemmdir af
völdum þess að notkunarleiðbeiningum er
ekki fylgt, vegna rangrar uppsetningar eða
tengingu við ranga spennu, skemmdir af
völdum efnahvarfa eða rafefnafræðilegra
viðbragða, ryð, tæring eða vatnstjón
þar með talið en ekki takmarkað við
skemmdir af völdum of mikils kalks frá
vatnsveitu, skemmdir af völdum óeðlilegra
umhverfisaðstæðna.
Rekstrarhlutir þ.m.t. rafhlöður og perur.
Óhagnýtir og skreytingarhlutir sem hafa ekki
áhrif á eðlilega notkun tækisins, þar með
taldar rispur og mögulegur litamunur.
Slysatjón af völdum aðskotahluta eða efna
og hreinsunar eða stífluhreinsunar á síum,
frárennsliskerfum eða sápuskúffum.
Skemmdir á eftirtöldum hlutum: keramikgler,
fylgihlutir, borðbúnaður og hnífaparakörfur,
fæði- og frárennslislagnir, þéttingar, lampar
og lampahlífar, skjáir, hnappar, hlífar og
hlutar hlífa. Nema hægt sé að sanna að slíkar
skemmdir hafi orsakast af framleiðslugalla.
Tilvik þar sem engin bilun fannst í heimsókn
tæknimanns.
Viðgerðir sem ekki eru framkvæmdar af
tilnefndum þjónustuaðilum okkar og/eða
viðurkenndum þjónustuaðila eða þar sem hlutir
sem ekki eru upprunalegir hafa verið notaðir.
68

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis