Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 14
152
Þakka þér fyrir að velja BeSafe iZi Modular (RF)
! Það er mikilvægt að þú lesir þessa notendahandbók ÁÐUR
en þú festir stólinn. Röng uppsetning getur stofnað barni
þínu í hættu.
! Mikilvægar upplýsingar
• Það er EKKI LEYFILEGT að setja stólinn í framsæti MEÐ
VIRKUM ÖRYGGISPÚÐA.
• Aðeins er hægt að festa iZi Modular í iZi Modular
i-Size stólastöð.
• iZi Modular má nota bakvísandi fyrir börn frá 61 til 105 cm hæð að
hámarksþyngd 18 kg og framvísandi fyrir börn frá 88 til 105 cm
hæð einnig að hámarksþyngd 18 kg.
• iZi Modular RF skal nota bakvísandi fyrir börn frá 61 til 105 cm hæð
að hámarksþyngd 18 kg.
• ATHUGIÐ: Notið ekki framvísandi fyrr en barnið hefur náð 15
mánaða aldri.
• BeSafe mælir með notkun bakvísandi barnabílstóla eins lengi og
mögulegt er.
• Öryggisbeltin verða alltaf að vera læst þegar barnið er í stólnum.
• Strekkja verður á öryggisbeltunum til að taka af slaka og gæta
þess að þau séu ekki snúin.
• Axlarpúðarnir eru með seglum sem geta haft áhrif á rafeindabúnað
eins og gangráð.
• Verjið barnið fyrir sól.
• Við mælum með að þessi stóll sé einungis notaður fyrir börn sem
geta setið, ekki yngri en 6 mánaða.
• Fjarlægið auka sessu þegar barnið hefur náð 2ja ára aldri.
• Fjarlægið auka hliðarstuðning þegar barnið hefur náð 2ja ára aldri
eða fyrr ef barnið virðist orðið of stórt fyrir hann.
• Þegar barnið er orðið 18 kg eða axlir þess ber yfir hæstu stöðu
axlabeltanna þarf að skipta og nota stól sem hæfir börnum þyngri
en 18 kg.
• Eftir bílsslys verður að skipta um stól þó svo að hann virðist
óskemmdur því við annað slys er ekki víst að stóllinn verndi barn
þitt eins og hann á að gera.
• Gætið þess að setja ekki farangur ofan á stólinn, skella hurðum á
hann eða gera nokkuð annað sem getur skemmt hann.
• Gangið úr skugga um ekki sé unnt að setja fleiri en einn fingur milli
beltisins og barnsins (1cm).
• EKKI reyna að taka stólinn í sundur, breyta eða bæta hlutum við
hann. Ábyrgðin gildir ekki ef annað en upprunalegir hlutir eru
notaðir eða einhver aukabúnaður.
• Aldrei skilja barnið eftir eftirlitslaust í stólnum.
• Gangið úr skugga um að farþegar viti hvernig losa á barnið úr
stólnum í neyðartilfellum.
• Festið töskur og aðra lausamuni vel því laus farangur getur slasað
bæði börn og fullorðna illa.
• Aldrei nota bílstól án áklæðis. Það er til öryggis og má aðeins
endurnýja með upprunalegu BeSafe áklæði.
• Ekki nota sterkar hreinsivörur; þær geta dregið úr styrk stólsins.
• BeSafe mælir með að notaðir barnabílstólar séu hvorki keyptir
né seldir.
• GEYMDU þessa handbók til síðari nota.
• EKKI nota stólinn lengur en 7 ár því efnið í honum breytist
með aldrinum.
• EKKI nota stólinn heimafyrir. Hann er ekki hannaður til heimabrúks
heldur aðeins til nota í bíl.
• Þegar stólinn er settur í bílinn skal gæta vel að öllum stöðum
þar sem hann gæti snert innréttingu bílsins. Við mælum með að
(BeSafe) hlífðarklæði sé notað á þessum stöðum til að koma í veg
fyrir skemmdir af núningi. Þetta á sérstaklega við um leður- og
viðarklædda fleti.
• Ef þú ert í vafa, hafðu þá samband við starfsmenn barnabílstóla
hjá VÍS.
153

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis