Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Mikilvægar Upplýsingar - BESAFE iZi Flex FIX i-Size Gebrauchsanweisung

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 14
152
Þakka þér fyrir að velja BeSafe iZi Flex FIX i-Size.
! Það er mikilvægt að þú lesir þessa notendahandbók ÁÐUR en þú
festir stólinn. Röng uppsetning getur stofnað barni þínu í hættu.
! Mikilvægar upplýsingar
• Lesið handbók farartækisins til að sjá hvernig á að nota líknarbelg
með stólnum.
• Lesið handbók bílsins til að vita hvar stóllinn á að vera í bílnum.
• Besafe mælir með því að sætið sé sett upp í öllum þeim
sætastöðum sem verða notaðar og að uppsetningin sé athuguð
ásamt tiltæku rými í bílnum og stöðu barnsins, til að fá fullvissu um
hvort að sætið henti þínum aðstæðum.
• Hægt er að festa iZi Flex FIX i-Size framvísandi með ISOfix
festingunni í farartækjum sem útbúin eru með ISOfix festipunktum,
með þriggja punkta belti, sem er vottað skv. UN/ECE reglugerð
nr. 16 eða öðrum sambærilegum stöðlum. Ef enga ISOfix festingu
er að finna í farartækinu er hægt að festa iZi Flex FIX i-Size
framvísandi með þriggja punkta belti, sem er vottað skv. UN/ECE
reglugerð nr. 16 eða öðrum sambærilegum stöðlum.
• iZi Flex FIX i-Size er viðurkenndur fyrir börn sem eru 100 - 150 sm,
framvísandi.
• Þegar iZi Flex FIX i-Size er notaður fyrir börn sem eru 135-150 sm
að hæð má vera að hann passi ekki í öll farartæki, þar sem þakið á
farartækinu getur verið of lágt til hliðanna.
• Tryggðu að 3ja punkta beltið sé ekki skemmt eða snúið og sett
þétt í fyrir notkun.
• Ef stóllinn er notaður án þess að ISOfix festingarnar séu notaðar,
skal stóllinn ávallt festur með sætisbelti farartækisins þegar ekið er
með hann án barnsins.
• Ef barnið er hærra en 150 sm eða axlir þess ná upp fyrir hæsta
punkt skábeltisstýringar, verður það að skipta yfir í sæti sem hæfir
hærri börnum, vanalega sætið í farartækinu.
• Eftir bílsslys verður að skipta um stól þó svo að hann virðist
óskemmdur því við annað slys er ekki víst að stóllinn verndi barn
þitt eins og hann á að gera.
• Gætið þess að setja ekki farangur ofan á stólinn, skella hurðum á
hann eða gera nokkuð annað sem getur skemmt hann.
• Reynið ekki að taka hlut í sundur sem ekki er ætlast til að sé
fjarlægður, breytt að bætt við nokkurn hluta stólsins. Ábyrgð fellur
úr gildi ef ekki eru notaðir upprunalegir hlutar eða aukahlutir.
• Aldrei skilja barnið eftir eftirlitslaust í stólnum.
• Gangið úr skugga um að farþegar viti hvernig losa á barnið úr
stólnum í neyðartilfellum.
• Festið töskur og aðra lausamuni vel því laus farangur getur slasað
bæði börn og fullorðna illa.
• Aldrei nota bílstól án áklæðis. Það er til öryggis og má aðeins
endurnýja með upprunalegu BeSafe áklæði.
• Ekki nota sterkar hreinsivörur; þær geta dregið úr styrk stólsins.
• BeSafe mælir með að notaðir barnabílstólar séu hvorki keyptir
né seldir.
• GEYMDU þessa handbók til síðari nota.
• EKKI nota stólinn lengur en 8 ár því efnið í honum breytist með
aldrinum.
• EKKI nota stólinn heimafyrir. Hann er ekki hannaður til heimabrúks
heldur aðeins til nota í bíl.
• Þegar stólinn er settur í bílinn skal gæta vel að öllum stöðum
þar sem hann gæti snert innréttingu bílsins. Við mælum með að
(BeSafe) hlífðarklæði sé notað á þessum stöðum til að koma í veg
fyrir skemmdir af núningi. Þetta á sérstaklega við um leður- og
viðarklædda fleti.
• Ef þú ert í vafa, hafðu þá samband við starfsmenn barnabílstóla
hjá VÍS.
153

Quicklinks ausblenden:

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis