Anleitung_A_AS_10_8_Li_SPK7:_
IS
Til að tryggja langan líftíma hleðslurafhlöðunnar ætti
að hlaða hana reglulega. Hlaða verður
hleðslurafhlöðuna ef að kraftur hleðsluborvélarinnar
er farinn að minnka.
6.2 Stilling snúningsátaks (mynd 5/staða 1)
Hleðsluborvélin er búin stillingu fyrir snúningsátak.
Snúningsátak skrúfu er still með stillihring (1). Átakið
er háð eftirfarandi atriðum:
Gerð og harðleika þess efnis sem að skrúfa á í.
Gerð og harðleika þeirra skrúfu sem notuð er.
Því átaki sem að skrúfan á að halda.
Ef að innstilltu átaki er náð, smellir í kúplingu
hleðsluborvélarinnar.
Athugið! Stillið einungis hersluátak á meðan að
hleðsluborvélin er kyrrstæð.
6.3 Borað (mynd 5/staða 1)
Stillið snúningsátakið á síðasta þrepið (bora) á meðan
að borað er. Í þessari stillingu er kúplingin ekki virk.
Hámarks snúningsátak er til staðar á meðan að borað
er.
6.4 Stilling snúningsáttar (mynd 6/staða 2)
Snúningsátt hleðsluborvélarinnar er breytt með því að
renna til rennirofa fyrir ofan höfuðrofann og einnig er
þá hleðsluborvélinni hlíft fyrir því að vera gangsett
óvart. Hægt er að velja milli snúnings réttsælis og
rangsælis. Til að koma í veg fyrir skemmdir á
hleðsluborvélinni er bannað að skipta um snúningsátt
á meðan að borvélin er í gangi. Ef að rennirofinn er í
miðstillingu er höfuðrofinn læstur.
6.5 Höfuðrofi (mynd 6/staða 3)
Með höfuðrofanum er hægt að stilla snúningshraða
vélarinnar stiglaust. Eftir því sem höfuðrofanum er
þrýst lengra inn eykst snúningshraði
hleðsluborvélarinnar.
6.6 Staða hleðslu (mynd 5 / staða 10)
Þrýstið á rofann fyrir hleðsluprufu (11).
Hleðsluástandsljósin (10) sýna hleðsluna með 3
lituðum LED-ljósum.
Öll LED-ljós loga:
Rafhlaðan er full hlaðin.
Gult og rautt LED-ljós loga:
Rafhlaðan er nægilega vel hlaðin.
Rautt LED-ljós:
Rafhlaðan er tóm, hlaðið hana.
78
27.07.2010
9:20 Uhr
Seite 78
6.7 Skipt um íhluti (mynd 7)
Athugið! Rennið snúningsáttarstillingunni (2) ávallt í
miðjustöðu á meðan að unnið er að borvélinni (til
dæmis ef skipt er um íhluti; hirt er um vélina og svo
framvegis).
Borvélin er útbúin sjálfherðandi borpatrónu (7).
Opnið borpatrónuna (7). Op borpatrónunnar (a)
verður að vera nægilega stórt til þess að ítólið
(bor, biti eða þessháttar) passi í það.
Velgið rétt ítól. Stingið ítólinu eins langt og það
kemst inn í op borpatrónunnar (a).
Herðið patrónuna (7) vel og gangið úr skugga um
að ítólið sé vel fast.
6.8 Skrúfað
Mælt er með notkun skrúfa með sjálfmiðjun (til dæmis
torx eða stjörnuskrúfur), sem auka öryggi við notkun.
Athugið að ístykkið sé rétt og að það passi vel í
skrúfuna. Stillið inn rétt snúningsátak eftir
leiðbeiningum.
6.9 Skipting milli 1. og 2. gírs (mynd 5 / staða 6)
Skiptingin velur á milli þess hvort unnið er með háum
eða lágum snúningshraða. Til að koma í veg fyrir
skemmdir á drifi vélarinnar má einungis skipta um
snúningsátt á meðan að vélin er ekki í gangi.
7. Hreinsun, viðhald og pöntun á
varahlutum
Áður en tækið er hreinsað skal taka það úr sambandi.
7.1 Hreinsun
Haldið öryggisbúnaði, loftopum og mótorhlífinni
eins rykfríum og lausum við óhreinindi og kostur
er. Þurrkið af tækinu með hreinum klút eða blásið
af því með þrýstilofti við lágan þrýsting.
Mælt er með því að tækið sé hreinsað eftir hverja
notkun.
Hreinsið tækið reglulega með rökum klút og dálítilli
sápu. Notið ekki hreinsi- eða leysiefni þar sem þau
geta skemmt plasthluta tækisins. Gætið þess að
vatn berist ekki inn í tækið.
Haldið sogopunum á slípiplötunni hreinum.
Ef tækið reynist vera gallað skal leita til fagmanna
með viðgerðir.
7.2 Viðhald
Í tækinu eru ekki fleiri hlutir sem þarfnast viðhalds.