Herunterladen Diese Seite drucken

Ooni Koda 12 Bedienungsanleitung Seite 50

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für Koda 12:

Werbung

LISTI YFIR HLUTI
1. Ooni Koda
2. Steinbökunarplata
SAMSETNING
Gangtu úr skugga um að allir hlutar séu fyrir hendi fyrir
samsetningu. Reyndu ekki að setja ofninn saman ef einhvern
hluta vantar eða er skaddaður. Hafðu samband við þjónustuver til
þess að fá viðkomandi hluta.
SAMSETNINGARLEIÐBEININGAR
1. Breiddu út fæturnar
2. Settu bökunarplötuna inn í ofninn
3. Tengdu gasslönguna við Ooni Koda
Í sumum löndum er gasslangan þegar tengd við Ooni Koda
3a. Tengdu gasslönguna beint í Ooni Koda
3b I). Tengdu gastengið við Ooni Koda
3b II). Tengdu gasslönguna við gastengið
Þéttu með viðeigandi skrúflykli
4. Tengdu við gaskútinn
VARÚÐ
- Láttu kútinn alltaf standa uppréttann.
- Ummál 9 lítra gaskútar er 31 cm og hæðin er 45.5 cm.
- Skrúfa þarf fyrir gastkútinn þegar ofninn er ekki í notkun.
- Nota þarf kraga með gaskút í notkun til þess að verja ventilinn.
- Gaskúturinn þarf að vera í a.m.k. 0.6 m fjarlægð frá ofninum.
PATIO GASSTILLIR
Þessu er smellt ofan á opið á gaskútnum. Gangtu úr skugga um
að svarti rofinn sé í lágréttri stöðu. Þrýstu á hnappinn fyrir neðan
svarta rofann og þrýstu stillinum ofan á kútsrofann þangað til
hann festist við kútinn.
POL GASSTILLIR
Þessi gasfesting er fest rangsælis. Gangtu úr skugga um að
algerlega sé slökkt á kútnum og skrúfaðu síðan stillirinn eins langt
og hægt er.
TENGING VIÐ KASKÚT MEÐ FLJÓTANDI
PRÓPANGASI
Að tengja við gaskút með fljótandi própangasi:
Slökkt ætti að vera á gasinu.
Gangtu úr skugga um að slökkt sé á stjórnrofanum.
Athugaðu ventilstengingar, tengi og tengissamsetningar.
Fjarlægðu óhreinindi og athugaðu hvort skemmdir séu á
slöngunni.
Þegar tengissamsetningin er tengd við ventilinn skaltu þétta
tengilinn með höndum rangsælis þangað til hann stoppar. Að
nota skrúflykil gæti skemmt tengið sem gæti verið hættulegt.
Opnaðu fyrir gasið með því að snúa ventlinum rangsælis.
Notaðu vatnslausn með sápu til þess að athuga allar tengingar og
ganga úr skugga um að þær leki ekki áður en kveikt er á ofninum.
Ef þú finnur leka, slökktu þá á gasinu og notaðu ekki ofninn fyrr
en umboðsmaður própangaskútsins í þínu landi hefur gert við
hann.
48
AÐ AFTENGJA GASKÚT MEÐ FLJÓTANDI
PRÓPANGASI
Slökktu á gasinu með því að snúa stjórnrofanum á OFF
Gangtu úr skugga um að fyllilega hafi verið lokað fyrir gasið með
gasventilnum.
Taktu tengisamsetninguna af gaskútnum með því að snúa
festingunni rangsælis.
Settu ryklok á gaskútinn þegar hann er ekki í notkun.
LEKAPRÓF
ALMENNT
Jafnvel þótt gastenginar ofnsins séu lekaprófaðar áður en þeim er
pakkað þarf að gera gaslekaprufu áður en ofninn er notaður.
Gerðu lekapróf á öllum gastengingum í hvert skipti sem þú ætlar
að nota ofninn. Notaðu aðferðina sem sjá má hér að neðan til
þess. Ef þú finnur lykt af gasi ættirðu samstundis að hætta notkun
og skoða ofninn og allt sem tengt er í hann til þess að athuga
hvort þú finnir leka.
ÁÐUR EN LEKAPRÓFAÐ ER
Gangtu úr skugga um að allar umbúðir hafi verið fjarlægðar.
Blandaðu síðan saman þvottaefni og vatni. Þú munt þurfa að nota
úðabrúsa, bursta eða tusku til þess að bera efnið á viðkomandi
festingar.
PRUFA
Settu stjórnhnappinn á OFF
Snúðu ventlinum á fljótandi própangaskútnum rangsælis til þess
að opna ventilinn.
Settu vatn með sápu á allar festingar og mót, sápukúlur koma þar
sem gas lekur.
Ef leki finnst skaltu umsvifalaust slökkva á gasinu og þétta
viðkomandi festingu.
Kveiktu aftur á gasinu og prófaðu aftur.
Ef gas lekur ennþá á einhverri festingu eða móti, skaltu
umsvifalaust slökkva á gasinu og hafa samband við
þjónustufulltrúa.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
AÐ NOTA OFNINN
Hver brennari er 4.0KW.
Til að byrja:
Gangtu úr skugga um að ofninn hafi verið lekaprófaður og
staðsettur á eðlilegan máta.
Fjarlægðu umbúðir ef einhverjar eru eftir.
Kveiktu á brennaranum með því að nota KVEIKILEIÐBEININGAR
hér að neðan
KVEIKILEIÐBEININGAR
AÐ KVEIKJA Á BRENNARANUM
Gangtu úr skugga um að stjórnhnappurinn sé stillur á OFF, og
snúðu síðan ventlinum á fljótandi própangaskútnum rólega
rangsælis á ON.
Íttu inn og snúðu stjórnhnappnum rangsælis þangað til að þú
heyrir smell og það kviknar á brennaranum.
Haltu stjórnhnappinum í 5 sekúndur til viðbótar.

Werbung

loading