Herunterladen Diese Seite drucken

Ooni Koda 12 Bedienungsanleitung Seite 47

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für Koda 12:

Werbung

NOTKUNARLEIÐBEININGAR FYRIR LP PIZZUGASOFN
VARÚÐ
VARÚÐ
Lestu þessar öryggisleiðbeiningar vandlega áður en þú notar
ofninn til þess að lágmarka hættuna á bruna eða öðrum
óhöppum.
VARÚÐ
Gangtu úr skugga um að slökkt sé á gasinu, að
stjórnunarhnappurinn sé stilltur á OFF og að brennarinn hafi kælt
sig áður en ofninn er þrifinn.
VARÚÐ
Notaðu aldrei ofninn án eftirlits. Ef eldur kemur upp, haltu þig þá
frá ofninum og hringdu umsvifalaust á slökkvilið. Reyndu ekki að
slökkva eld sem kemur upp vegna olíu eða feiti með vatni.
Ef þú ferð ekki eftir þessum tilmælum eykst hættan á
eignarskemmdum, slysum eða dauða.
VARÚÐ
Aðeins nota í vel loftræstu umhverfi.
HÆTTA
Ef þú finnur lykt af gasi:
• Slökktu á gasinu
• Slökktu alla elda ef á við
• Ef lyktin hverfur ekki haltu þig þá fjarri ofninum og hringdu
umsvifalaust á gasbirgi þinn eða á slökkvilið.
VARÚÐ
a. Haltu eldsneytisslöngunni frá heitu yfirborði.
b. Notkun áfengis, lyfseðilsskildra eða annara lyfja getur dregið
úr hæfni notanda til þess að setja saman eða nota ofninn á
öruggan máta.
c. Haldið ávallt börnum og gæludýrum frá ofninum.
d. Færið ekki ofnin til þegar hann er í notkun.
e. Þessi ofn er ekki ætlaður sem hitari og ætti aldrei að vera
notaður sem slíkur.
VARÚÐ
Slökktu á bensíni við gashólkinn eftir notkun.
VARÚÐ
Þetta tæki verður að vera fjarri eldfimum efnum meðan á notkun
stendur.
VARÚÐ
Ekki breyta tækinu
IS
VARÚÐ
Köngulær og skordýr geta komist í brennarann og spillt
gasflæðinu. Skoðaðu því brennarann a.m.k. einu sinni á ári.
VARÚÐ
Ef þú notar eldspýtu til þess að kveikja á ofninum, gangtu þá úr
skugga um að nota eldspýtuhaldarann sem fylgir með.
VARÚÐ
Geymið ekki ofninn innandyra án þess að aftengja gaskútinn.
VARÚÐ
Geymið ekki gaskútinn inn í húsi, í bílskúr eða öðru lokuðu rými.
Geymist ávallt þar sem börn ná ekki til.
VARÚÐ
Þessi ofn er ekki ætlaður til uppsetningar í eða á húsbílum og/
eða bátum.
VARÚÐ
Athugaðu allar gasfestingar fyrir notkun hverju sinni. Notaðu ekki
ofninn fyrr en allar festingar hafa verið athugaðar og gengið hefur
verið úr skugga um að enginn leki sé fyrir hendi.
VARÚÐ
Reyktu ekki á meðan þú athugar gasleka. Prófaðu aldrei gasleka
þegar eldur er í gangi.
VARÚÐ
Haltu andliti og höndum eins fjarri ofninum og mögulegt er þegar
þú kveikjir á honum.
VARÚÐ
Lágmarks fjarlægð frá hlið ofns til eldfims svæðis er 609 mm.
Lágmarks fjarlægð frá bakhlið ofns til eldfims svæðis er 914 mm.
45

Werbung

loading