Herunterladen Diese Seite drucken

Ooni Koda 12 Bedienungsanleitung Seite 49

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für Koda 12:

Werbung

ÁÐUR EN KVEIKT ER Á
Athugaðu gasslönguna áður en kveikt er á gasinu. Ef gat, slit eða núningur finnst, þarf að skipta um slöngu áður en ofninn er notaður.
Skrúfaðu þrýstingsstillinn á gaskútinn. Lekaprófaðu tengingarnar á slöngu og stilli með sápu og vatnslausn áður en kveikt er á ofninum.
Notið aðeins þrýstingsstillirinn og gasslönguna sem fylgir með þessum búnaði.
VIÐVÖRUN VEGNA LP GASKÚTA
1. Geymið ekki varagaskúta sem innihalda fljótandi própangas undir eða nálægt ofninum.
2. Fyllið aldrei kútinn meira en því sem nemur 80% af geymslurými hans.
3. Festa verður viðeigandi veltil (e. OPD) á gaskúta með fljótandi própangasi.
4. Ef ekki er farið nákvæmlega eftir upplýsingum hér að ofan getur eldur brotist út sem getur valdið alvarlegum slysum eða dauða.
ÖRYGGISTILMÆLI TIL ÞESS AÐ KOMA Í VEG FYRIR SLYS
Ef rétt er farið að mun ofninn þinn bjóða upp á trygga og örugga þjónustu. Það þarf þó að gæta ítrustu varúðar þar sem ofninn verður afar
heitur en slíkt getur leitt til slysa.
Nokkra grundvallarþætti þarf að hafa í huga þegar ofninn er notaður, m.a. en þó ekki eingöngu eftirfarandi:
• Gerið ekki við eða skiptið út neinum hluta ofnsins nema sérstaklega sé til þess mælst í þessum leiðbeiningum. Hafið þess í stað samband
við viðurkenndan viðgerðarmann.
• Ekki ætti að skilja börn eftir ein eða eftirlitslaus á svæði þar sem ofninn er notaður. Leyfið ekki börnum að sitja, standa eða leika sér á
nálægt ofninum undir nokkrum kringumstæðum.
• Látið aldrei föt eða önnur eldfim efni komast í snertingu við eða of nálægt eldi eða heitu yfirborði fyrr en það hefur kólnað. Kviknað gæti
í efninu sem gætið valdið alvarlegum áverkum.
• Vertu í viðeigandi fötum af öryggisástæðum. Aldrei ætti að ganga í lausum fötum eða fötum með afar langar ermar þegar ofninn er
notaður. Sum gerfiefni eru afar eldfim og ætti ekki að ganga í þeim þegar ofninn er notaður.
• Hitið ekki óopnuð matvælaílát í ofninum þar sem þrýstingur gæti valdið því að ílátin springa. Vertu alltaf vel meðvitaður/meðvituð um
hvað þú ert að gera þegar þú kveikjir á ofninum
• Snertu ekki yfirborð bökunarplötu eða nánast umhverfi ofnsins þegar hann er notaður þar sem þessi svæði verða afar heit og geta valdið
brunasárum.
• Notaðu ekki ofninn til þess að elda afar fitumikið kjöt eða aðrar vörur sem auka eldhættu.
• Haltu eldfimum efnum s.s. vökvum, rusli, gufum og öðru efni t.d. eldsneyti eða kolum frá nánasta umhverfi ofnsins
• Tryggðu nægt loftrými fyrir ofninn.
• Notaðu aldrei ofninn þegar það er afar vindasamt.
• Hitinn undir ofninum er hár. Settu ofninn ekki á borð með eldfimum klæðum, plasti eða öðrum eldfimum efnum.
47

Werbung

loading