EKKI hylja ristar með álpappír eða öðrum
efnum. Það leiðir til þess að loftræsting
brennarans lokast og getur skapað ástand sem
er hugsanlega hættulegt og getur leitt til
eignatjóns og/eða meiðsla.
Notaðu grillið að minnsta kosti 1 m í burtu
frá veggjum eða yfirborðum.
fjarlægð frá hlutum sem getur kviknað í eða
eldsupptökum eins og gaumljósum á
vatnshiturum, rafmagnsbúnaði í gangi,
o.s.frv.
Reyndu ALDREI að kveikja á brennara með
lokið lokað. Uppsöfnun á gasi, sem ekki hefur
kviknað í, inni í lokuðu grilli er hættuleg.
Skrúfaðu ávallt fyrir gaskútinn og aftengdu
stillinn áður en þú færir gaskútinn úr þeirri
notkunarstöðu sem tiltekin er.
Notaðu grillið aldrei með gaskútinn í annarri
stöðu en tiltekin er.
Ekki gera breytingar á grillinu. Allar breytingar
eru stranglega bannaðar. Notandinn má ekki
fikta við límda hluti. Ekki taka innspýtingarbúnað
í sundur.
Öryggisráð
Áður en lokinn á gaskútnum er opnaður skaltu
athuga hvort stillirinn sé vel þéttur.
Þegar grillið er ekki í notkun skaltu skrúfa fyrir
alla stjórnhnúða og gasið.
Notaðu grilláhöld með löngu handfangi og
ofnhanska til að koma í veg fyrir að þú brennir
þig. Notaðu hlífðarhanska þegar þú meðhöndlar
heita hluti.
Hámarksþungi fyrir hitaplötuna, ef til staðar, og
hliðarhilluna er 4,5 kg. Lágmarksþvermál
eldunaríláts 200 mm og að hámarki 260 mm.
ATHUGAÐU: Það getur verið að grillið þitt sé
EKKI með hitaplötu!
Feitiílátið (ef fylgir) þarf að vera sett í tækið og
tæmt eftir hverja notkun. Ekki fjarlægja feitiílátið
fyrr en tækið hefur kólnað alveg.
Haltu 3m
91 IS
Sýndu mikla aðgát þegar þú opnar lokið því heit
gufa kann að koma út.
Sýndu mikla aðgát þegar börn, aldraðir eða
gæludýr eru nálægt.
Ef þú sérð feiti eða annað heitt efni leka úr
tækinu á loka, slöngu eða stilli skaltu skrúfa
tafarlaust fyrir gasið. Finndu orsökina, lagfærðu
vandamálið og þrífðu síðan og
skoðaðu lokann, slönguna og stillinn áður en
lengra er haldið. Framkvæmdu lekapróf.
Ekki geyma hluti eða efni í grind tækisins sem
getur lokað fyrir loftflæði fyrir brunann að
undirhlið annaðhvort stjórnborðsins eða
eldhólfsskálarinnar.
EKKI aftengja eða skipta um gaskút í minna en
3m fjarlægð frá opnum eldi eða öðrum
eldsupptökum.
Skipti á kút
Setja má kút, sem er 6 kg eða léttari, á jörðina
undir hliðarhillunni eða inn í grillið á tilætlaðan
stað. Aðeins má setja stærri kúta undir
hliðarhilluna eða á bak við grillið. Kútar, sem eru
settir inn í grillið, mega að hámarki vera 345mm
að þvermáli og 370mm að hæð. Kútar, sem eru
settir á jörðina, mega ekki vera settir undir
hitaplötuna.
Kröfur fyrir stilli
Nota skal stilli með grillinu. Notaðu aðeins
gasstillinn sem kemur með grillinu. Ef stillir, fylgir
ekki með, að þá skaltu aðeins nota vottaðan stilli í
samræmi við EN16129 (flæði að hám. 1,6
kg/klst.), sem er leyfður í heimalandi þínu, gasið
sem tilgreint er í tækniupplýsingunum.
Kröfur fyrir slöngu
Notaðu aðeins viðurkennda slöngu, sem er
vottuð fyrir viðeigandi EN staðal og er ekki lengri
en 1,5m að lengd. Í Finnlandi má slöngulengdin
ekki vera yfir 1,2m. Fyrir hverja notkun skaltu
athuga hvort slöngurnar eru skornar eða slitnar.
Gakktu úr skugga um að slangan hafi ekki
beyglast. Gakktu úr skugga um að tengd slanga
snerti ekki heitt yfirborð. Skiptu um skemmdar
slöngur áður en grillið er notað. Skiptu um
slönguna eftir innlendum reglum.
Kveiking
• Ekki halla þér yfir grillið þegar kveikt er upp í
því.
1. Snúðu stjórnlokum gasbrennarans á
2. Opnaðu lokið við kveikingu og endurkveikingu.
3. Skrúfaðu FRÁ gasinu á LP kútnum.
(af).