Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Peltor MT1H7A2 Gebrauchsanleitung Seite 47

Gehörschützer
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 22
IS
Tactical XP
Peltor Tactical XP eru búin hljóðtengingu fyrir ytra útvarp og styrkstýringu sem magnar
upp veik hljóð en deyfir þau sterku. Aðgerðirnar ytri hljóðtenging og styrkstýring eru
óháðar hvor annarri en það tryggir að tækið er bæði áreiðanlegt og öruggt í notkun.
Heyrnarverndin hefur verið prófuð og vottuð í samræmi við PPE-tilskipun 89/686/
EES og EMC-tilskipun 89/336/EES sem þýðir að hlífarnar uppfylla kröfur til CE-
merkingar. Kynntu þér þessar leiðbeiningar nákvæmlega til þess að tryggja þér sem
besta nýtingu á nýju heyrnartólunum þínum frá Peltor.
AÐGERÐIR
• Tactical XP eru búin jafnvægisstilli, tónjafnara, tímastilli og styrkstillingu fyrir ytri
hljóðtengingu.
• Síðustu stillingar eru vistaðar þegar slökkt er á tækinu, nema hár tónstyrkur á ytri
hljóðtengingu.
• Tækið slekkur sjálfvirkt á sér eftir tvær klukkustundir ef það er ekki í notkun. Tvö
tónmerki heyrast á tíu sekúndna fresti í mínútu eftir 1.59 klukkustunda notkun. Þau
gefa til kynna að slökkt verði á því.
• Þrjú viðvörunarmerki á hálfrar mínútu fresti heyrast þegar spennan er orðin lág tíu
klukkustundum áður en slökknar á heyrnartólunum. Bil á milli viðvörunarmerkja
styttist eftir því sem hleðsla minnkar í rafhlöðunum.
Skiptu aldrei um rafhlöðu þegar kveikt er á tækinu.
VIÐVÖRUN! Virkni getur versnað eftir því sem hleðsla minnkar í rafhlöðunum.
• Að jafnaði má búast við því að hægt sé að nota tæki þetta samfleytt í 1000
klukkustundir. Samfleytt notkun er skilgreind sem 20% notkun í hljóðlausum
ham 45–50dB(A), 60% notkun í meðalstyrksham 70–75dB(A) og 20% notkun í
hástyrksham 95–100dB(A). Endingartími rafhlöðu getur verið breytilegur, allt eftir
því hvaða tegund er notuð og við hvaða hitastig.
• Skautunarvörn verndar straumrásina sé rafhlöðum snúið öfugt.
• Tækið er búið hljóðinntaki með innstungu svo hægt sé að hlusta á utanaðkomandi
útvarp.
• Þegar sjálfvirka styrkstillingin er virk dregur úr mögnun ef utanaðkomandi hljóðgjafi
kemur inn á hljóðinntakið.
• Yfirlitsstilling tryggir að sameiginlegur hljóðstyrkur allra utanaðkomandi hljóðgjafa
í tólinu fer aldrei yfir 82 dB.
HVAÐ ER HVAÐ? (A)
1a. Höfuðspöng sem fella má saman (MT1H7A2) (málmplata, PU-húðað Pólýamíð/
elastan).
1b. Hnakkaspöng (MT1H7B2) (ryðfrítt stál).
1c. Hjálmfestingar (MT1H7P3*2).
1d. Höfuðspöng sem fella má saman (MT1H7F) (málmplata, leður).
1e. Heyrnartól (MT1H7A2-07) til notkunar með PTT millistykki.
1f. Flex heyrnartól (MT1H7A2-77) fyrir leiðslur með mismunandi tengjum sem hægt
er að skipta um.
2. Sjálfstæðir höfuðspangarvírar (ryðfrítt stál).
3. Lágt tveggja punkta upphengi.
4. Þéttihringir fyrir eyra (PVC-þynna og PUR-frauð).
5. Á / af og styrkstillingar.
6. Val- og stillihnappar.
7. Rafhlöðuhlíf.
8. Hljóðnemar.
9. Hljóðinntak.
10. Talhljóðnemi (bara á sumum gerðum) sem gefur kost á samskiptum í báðar áttir
um talstöð eða síma. Þá þarf sérstakt millistykki eða snúru.
Gættu þess að hljóðinntakið sé notað til þess að tengja hljóðnemann. Hafðu
talhljóðnemann 3 mm frá vörum til þess að fá sem besta styrkaðlögun vegna
umhverfishljóða.
MIKILVÆGAR UPPLÝSINGAR FYRIR NOTENDUR
Setja ber heyrnarhlífarnar upp og stilla þær, hreinsa og halda við í samræmi við
leiðbeiningar í þessari notendahandbók.
• Heyrnarhlífarnar eru búnar sjálfvirkri styrkstillingu. Notanda ber að kynna sér rétta
notkun áður en þær eru teknar í notkun. Ef óvenjuleg hljóð heyrast eða bilun
kemur fram ber notanda að leita til framleiðanda eftir ráðum um umönnun og
rafhlöðuskipti.
44

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Diese Anleitung auch für:

Tactical xpMt1h7*2Mt1h7f2Mt1h7b2

Inhaltsverzeichnis