Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

3M PELTOR ALERT M2RX7A2-01 Bedienungsanleitung Seite 78

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für PELTOR ALERT M2RX7A2-01:
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 23
3M™ PELTOR™ ALERT™ heyrnartól
M2RX7A2-01
M2RX7P3E2-01
1.
INNGANGUR
Til hamingju og þakka þér fyrir að velja þessi heyrnartól sem
samskiptalausnir!
1.1. ÆTLUÐ NOTKUN
Heyrnartólunum er ætlað að veita vernd gegn hávaða sem fer
yfir hættumörk og háum hljóðum um leið og hlustað er á
útvarp eða önnur hljómtæki samtímis því að heyra
umhverfishljóð um ytri hljóðnema. Gert er ráð fyrir því að allir
notendur lesi og skilji meðfylgjandi leiðbeiningar notenda
ásamt því að kunna að nota tækið.
3M PSD vörur eru eingöngu ætlaðar til notkunar í
atvinnuskyni.
Sumar 3M PELTOR vörur gætu einnig hentað til ákveðinna
verkefna annarra en í atvinnuskyni í Evrópu.
Lestu alltaf og farðu eftir Leiðbeiningum notanda.
1.2. ÚTBÚNAÐUR
Með orðinu útbúnaður er í þessu skjali átt við höfuðhlífar,
andlitshlífar og/eða búnað sem ekki veitir vernd.
2.
ÖRYGGI
2.1. MIKILVÆGT
Lestu vinsamlegast, gerðu þér grein fyrir öllum
öryggisupplýsingum í leiðbeiningum þessum og farðu eftir
þeim áður en þú tekur heyrnartólin í notkun. Geymdu
leiðbeiningarnar til þess að geta leitað í þær síðar. Hafðu
samband við tæknideild 3M (samskiptaupplýsingar er að
finna á öftustu síðu).
!
VIÐVÖRUN
Heyrnarhlífarnar draga úr hættu á heilsutjóni vegna hávaða
og annarra háværra hljóða. Séu heyrnarhlífar notaðar rangt
eða notkun þeirra sleppt þann tíma sem dvalist er í
hættulegum hávaða, getur það leitt til heyrnarskerðingar eða
-taps. Ræddu við verkstjóra, kynntu þér leiðbeiningar
notenda eða hafðu samband við tæknideild 3M til að kynna
þér rétta notkun. Ef þér finnst eins og þú sért með bómull í
eyrunum eða heyrir són eða suð í eða eftir hávaða
(byssuskot meðtalin), eða ef þú hefur einhverja aðra ástæðu
til að ætla að þú glímir við heyrnarvanda, skaltu yfirgefa
hávaðasama umhverfið umsvifalaust og hafa samband við
lækni og/eða verkstjóra þinn.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það leitt til
alvarlegs líkamstjóns eða dauða:
a. Þessar heyrnarhlífar gefa kost á flutningi hljómlistar til
afþreyingar. Sé hlustað á tónlist eða önnur hljóðskilaboð,
getur það dregið úr athygli þinni gagnvart umhverfinu og
getunni til þess að heyra viðvörunarmerki á tilteknum
vinnustað. Vertu á verði og hafðu hljóðið eins lágt stillt og
mögulegt er að sætta sig við.
b. Dragðu úr þeirri hættu sem getur fylgt sprengingu með því
að nota ekki ekki eiginöruggan búnað eða fylgihluti í
mögulega sprengifimu umhverfi.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það dregið
úr verndargetu heyrnarhlífanna og jafnvel leitt til
heyrnartjóns:
a. 3M mælir eindregið með því að hver og einn notandi felli
allar heyrnarhlífar vandlega að sér. Rannsóknir benda til
þess að stundum sé hljóðeinangrun minni en
hljóðdeyfingargildi á umbúðum gefa til kynna vegna frávika
við að fella hlífarnar að hverjum notanda fyrir sig og færni
viðkomandi og hvatningu til þess. Kynntu þér viðeigandi
reglur og leiðbeiningar á merkimiða um aðlögun suðhlutfalls/
falla til merkis. Séu viðeigandi reglur ekki fyrir hendi er mælt
með því að lækka suðhlutfall/föll til merkis til að geta betur
metið dæmigerða vernd.
b. Gættu þess að réttar heyrnarhlífar séu valdar, þeim komið
fyrir, þær aðfelldar og haldið við. Sé búnaðinum komið fyrir á
ófullnægjandi hátt, dregur það úr getu hans til þess að deyfa
hávaða. Kynntu þér meðfylgjandi upplýsingar um rétta
notkun.
c. Skoðaðu heyrnarhlífarnar fyrir hverja notkun. Séu þær
skemmdar, veldu þér óskaddaðar heyrnarhlífar eða forðastu
hávaðasamt umhverfi.
d. Sé nauðsynlegt að bæta við frekari persónuhlífum, (t.d.
öryggisgleraugum, öndunargrímum o.s.frv.), ber að velja
sveigjanlegar og þunnar teygjur eða bönd til þess að þau
hafi sem minnst áhrif á eyrnahlífarnar. Fjarlægðu allt annað
(t.d. hár, húfur, skartgripi, heyrnartól, hreinlætishlífar o.s.frv.)
sem gæti dregið úr einangrunargildi eyrnahlífapúðanna og
verndargildi hlífanna.
e. Ekki beygja eða breyta lögun höfuðspangar, hálsspangar
eða útbúnaðarfestinga og gættu þess að hún sé nógu öflug
til þess að halda eyrnahlífunum tryggilega á sínum stað.
f. Eyrnahlífar og einkum þó eyrnapúðar geta orðið lélegir með
tímanum og þá þarf að skoða með reglulegu millibili í leit að
t.d. sprungum og hljóðleka. Séu heyrnarhlífapúðarnir notaðir
reglulega, ber að skipta um þá og frauðhringina að minnsta
kosti tvisvar á ári til þess að viðhalda fullnægjandi vernd,
hreinlæti og þægindum.
g. Frálag rafeindarásar í þessum heyrnarhlífum getur farið fram
yfir dagleg hávaðamörk. Hafðu hljóðið eins lágt stillt og
mögulegt er að sætta sig við. Hljóðstyrkur frá hvaða
tengdum ytri hljóðgjafa sem er, svo sem talstöðvum og
símum, getur farið yfir örugg hávaðamörk svo notandinn
verður að takmarka þau á viðeigandi hátt. Hafðu hljóðstyrk
frá ytri hljóðgjöfum alltaf eins lágt stilltan og mögulegt er við
hverjar aðstæður og takmarkaðu þann tíma sem hættulegur
hljóðstyrkur, skilgreindur af vinnuveitanda og viðeigandi
reglugerðum, getur valdið váhrifum. Ef þér finnst eins og þú
heyrir verr, þú heyrir són eða suð í eða eftir hávaða
(byssuskot þar með talin) eða ef þú hefur einhverja aðra
ástæðu til að ætla að þú glímir við heyrnarvanda, skaltu
umsvifalaust fara í hljóðlátt umhverfi og hafa samband við
lækni og/eða verkstjóra þinn.
h. Sé ekki farið eftir ofangreindum kröfum, skerðir það
verndareiginleika heyrnarhlífanna verulega.
IS
73

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Diese Anleitung auch für:

Peltor alert m2rx7p3e2-01

Inhaltsverzeichnis